Skessuhorn - 09.05.2018, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018 11
Leikskólinn Andabær á Hvanneyri
Komdu í lið með okkur!
Okkur vantar deildarstjóra í leikskólann Andabæ á Hvanneyri. Um er að ræða 100% stöðu. Leitað er
að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í og leiða áfram gott faglegt starf í leik-
skólanum. Við erum Grænfánaskóli síðan 2005, Heilsuleikskóli síðan 2013, einnig erum við að vinna
með verkefnið Leiðtoginn í mér, sjö venjur til árangurs, en það er samstarfsverkefni leik- og grunn-
skóla í Borgarbyggð. Leikskólinn er vel staðsettur í fallegu umhverfi kletta og náttúru.
Helstu verkefni og ábyrgð deildarstjóra:
Deildarstjóri er þátttakandi í stjórnunarteymi skólans ásamt leikskólastjóra, aðstoðarleikskólastjóra,
sérkennslustjóra og öðrum deildarstjórum. Deildarstjóri fylgist með nýjungum á sviðið kennslu og
er leiðandi í faglegri umræðu. Hann vinnur samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra að uppeldi og
menntun leikskólabarna og tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn
leikskólastjóra.
Menntun og færnikröfur:
Leikskólakennararéttindi•
Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji•
Færni í mannlegum samskiptum•
Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum•
Góðir skipulagshæfileikar•
Færni í að tjá sig í ræðu og riti•
Góð íslenskukunnátta•
Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna•
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag leikskólakennara.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Ráðið er í starfið frá og með 1. júní 2018 eða eftir nánara
samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 18. maí 2018.
Nánari upplýsingar veitir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri eða Áslaug Ella Gísladóttir
aðstoðarleikskólastjóri í síma 433-7170.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til leikskólastjóra
á netfangið andabaer@borgarbyggd.is.
Fjölbrautaskóli Vesturlands
Innritun á haustönn 2018
Fjölbrautaskóli Vesturlands
Vogabraut 5, 300 Akranesi
Sími 433-2500 skrifstofa@fva.is www.fva.is
Námsbrautir í boði
Stúdentsbrautir
Náttúrufræðabraut
Félagsfræðabraut
Opin stúdentsbraut
Íþrótta- og heilsusvið
Listnámssvið
Tungumálasvið
Viðskipta- og hagfræðisvið
Afreksíþróttasvið
Iðnnám
Húsasmíði
Húsgagnasmíði
Vélvirkjun
Grunndeild bíliðngreina
Rafvirkjun
Framhaldsskólabraut
Starfsbraut
Viðbótarnám eftir iðn- og starfsnám
Dagskóli
Innritun fyrir nám í dagskóla á haustönn 2018 fer fram
rafrænt á menntagatt.is eða á skrifstofu skólans.
Umsóknarfrestur er til 8. júní.
Dreifnám
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í húsasmíðanám og
vélvirkjanám í dreifnámi fyrir haustönn 2018. Hægt er að
sækja rafrænt um dreifnám á heimasíðu skólans.
Umsóknareyðublað er að finna á heimasíðunni,
www.fva.is og umsóknum skal skilað á skrifstofu skólans
fyrir 8. júní 2018.
Heimavist
Við skólann er starfrækt heimavist með plássum fyrir 60
nemendur.
Nánari upplýsingar gefa Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir,
náms- og starfsráðgjafi, gudruns@fva.is og Jónína
Víglundsdóttir, áfangastjóri, jonina@fva.is.
Það var mikið fjör á vinnustofunni
hans Togga í Lavaland í Grund-
arfirði þegar ljósmyndari Skessu-
horns rak inn nefið síðasta laugar-
dag. Þá voru góðir gestir frá Ás-
byrgi í Stykkishólmi í heimsókn
og var Toggi að sýna þeim hag-
nýt handtök í fínsmíði. Gríðarleg
einbeiting var í loftinu og gleðin
skein úr hverju andliti þarna inni.
Í Ásbyrgi er rekin dagþjónusta og
vinnustofa fyrir fólk með skerta
starfsgetu og fá starfsmenn aðstoð
við að fá og halda vinnu á almenn-
um vinnumarkaði hluta úr degi eða
hluta úr viku. Thor Kolbeinsson,
eigandi Lavalands, hefur fengið
þau í heimsókn einu sinni til tvisvar
á ári undanfarin misseri með góð-
um árangri. tfk
Ásbyrgi heimsótti
Lavaland
Grundarfjörðurinn var spegilslétt-
ur þegar seglskútan Blue Clipper
skreið inn fjörðinn árla í gærmorg-
un. Það má segja að þarna hafi fyrsta
skemmtiferðaskip sumarsins mætt
en skipinu er nú ætlað það hlutverk.
The Blue Clipper er breskt skip sem
sinnir skemmtisiglingum með far-
þega á sumrin en á veturna er skipið
mikið í vísindaferðum við Svalbarða
en þá er það með vísindamenn í
áhöfn. Núna er skipið í fimm daga
siglingu með átta farþega en tíu
manns eru í áhöfn. Seinna í sumar
gerir skipið út á 21 dags ferðir með
farþega en þá verður meðal annars
komið við á Svalbarða.
tfk
Fyrsta skemmtiferða-
skip sumarsins
The Blue Clipper er glæsilegt á að líta þar sem möstrin gnæfa yfir höfnina í
Grundarfirði.
Þetta er Jonas, einn af áhafnarmeðlimum skipsins, en hann gaf sér smá tíma í
stutt spjall við fréttaritara Skessuhorns.