Skessuhorn


Skessuhorn - 09.05.2018, Síða 12

Skessuhorn - 09.05.2018, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 201812 Þorsteinn Steinsson, bæjarstjóri í Grundarfirði, ritaði í síðustu viku sýslumanninum á Vesturlandi bréf þar sem gerð var athugasemd vegna þess að ekki er gert ráð fyrir að íbúar í Grundarfirði geti kosið utan kjör- fundar í heimabyggð í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 26. maí nk. Fer hann þess á leit að bætt verði snarlega úr. Þá hefur dómsmálaráðu- neytinu einnig verið ritað bréf varð- andi utankjörfundaratkvæðagreiðslu í Grundarfirði. Frá þessu greindi bæjarstjóri á vefsíðu Grundarfjarðar- bæjar fyrir síðustu helgi. Samkvæmt auglýsingu sýslumanns er kosning utan kjörfundar hafin. Hægt er að kjósa á sex stöðum á Vesturlandi, þ.e. á Akranesi, í Borgarnesi, Búðar- dal, Eyja- og Miklaholtshreppi, Snæ- fellsbæ og Stykkishólmi. Þorsteinn greinir frá því að í svörum sínum vísi sýslumaðurinn til reglugerðar nr. 1151/2014 um sýslumannsumdæmi. „Á undanförnum árum hafa Grundfirðingar þurft að berjast fyr- ir rétti sínum til þess að kjósa utan kjörfundar í heimabyggð. Í kom- andi kosningum endurtekur sagan sig. Jafnræðisreglan virðist því ekki í heiðri höfð hvað þessi mál varðar. Erindum til sýslumannsins og dóms- málaráðuneytisins verður fylgt eftir og reynt að fá lausn í málið. Vonast er til að slík lausn finnist eins og raunin hefur verið undanfarnar kosningar,“ skrifar Þorsteinn Steinsson. mm Telur sýslumann brjóta jafnræðis- regluna gagnvart Grundfirðingum Einn framboðslisti barst kjörstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps fyr- ir lögbundinn lokafrest til að skila inn framboðum á hádegi á laugar- dag. Það var H-listi Betri byggð- ar, en oddviti hans er Eggert Kjart- ansson, núverandi oddviti í sveitar- félaginu. Samkvæmt kosningalög- um gaf kjörstjórn 48 tíma frest til að skila inn öðrum framboðslista/ um. Að minnsta kosti tveir íbúar í hreppnum, Gísli Guðmundsson og Sigurbjörg Ottesen, sendu í fram- haldi af því opinbera áskorun til H- listans um að draga framboðið til baka og höfðuðu til lýðræðislegs réttar fólks í fámennum sveitarfé- lögum að hafa val í kosningum. Í kjölfar þessarar niðurstöðu hélt H-listi fund á sunnudagskvöldið og réði ráðum sínum. Eggert sendi á sunnudagskvöldið frá sér yfir- lýsingu fyrir hönd Betri byggðar: „Listinn Betri byggð bauð fram fyrst í síðustu kosningum og höfum við náð að gera margt fyrir okkar samfélag á kjörtímabilinu. Vildum við halda því góða verki áfram og buðum því fram lista í kosning- unum núna. Þar sem það er mik- ið af góðu fólki í samfélaginu vor- um við að vonast eftir því að það kæmi annar listi fram. Þar sem ekki kom fram annað framboð í sveitar- félaginu fyrir tilskilinn frest hefur listinn tekið þá ákvörðun að draga til baka framboð sitt og þar með verður persónukjör að nýju í Eyja- og Miklaholtshreppi.“ mm Einn listi var lagður fram og síðan dreginn til baka Á hádegi síðastliðinn laugardag rann út frestur til að skila inn framboðs- listum vegna kosninga til sveitar- stjórna. Í Hvalfjarðarsveit var kosið persónukjöri fyrir fjórum árum en svo verður ekki 26. maí næstkom- andi. Að sögn Jóns Hauks Hauks- sonar formanns kjörstjórnar bárust þrír framboðslistar. Listarnir sem bárust kjörstjórn í Hvalfjarðarsveit voru: Á-listi Áfram, H-listi Hval- fjarðarlistinn og Í-listi Íbúalistinn. Á-listi Áfram „Við sem skipun Á lista Áfram bjóð- um fram krafta okkar til að vinna saman að góðum málefnum og vilj- um leitast við að efla samstöðu í samfélaginu. Þar sem framboð okk- ar ber að með skömmum fyrirvara er óhjákvæmilegt að undirbúningur hefur verið knappur. Við höfum nú hafið starf okkar og munum bjóða til umræðu um framtíð okkar sem búum í Hvalfjarðarsveit,“ segir odd- viti listans, Daníel Ottesen, í sam- tali við Skessuhorn. Í öðru sæti Á- lista er Bára Tómasdóttir leikskóla- stjóri, Guðjón Jónasson er í þriðja og Björgvin Helgason núverandi oddviti er í fjórða sæti. Listinn í heild er þannig: 1. Daníel A Ottesen, bóndi, Ytra-Hólmi 2. Bára Tómasdóttir, leikskólastjóri, Hagamel 1 3. Guðjón Jónasson , bygginga- tæknifræðingur, Bjarteyjarsandi 3 4. Björgvin Helgason, bóndi, Eystra-Súlunesi 2 5. Helga Harðardóttir, grunnskólakennari, Hagamel 17 6. Guðný Kristín Guðnadóttir, leiðbeinandi á leikskóla og háskólanemi, Tungu 7. Brynjólfur Sæmundsson , rafvirki, Silfurbergi 8. Marie Creve Rasmunssen, bóndi/félagsráðgjafi, Steinsholti 1 9. Benedikta Haraldsdóttir, háskólanemi, Vestri-Reynir 10. Jón Þór Marinósson, bóndi, Hvítanesi 11. Jónella Sigurjónsdóttir, grunnskólakennari, Lækjarmel 9 12. Helgi Pétur Ottesen, rannsókn- arlögreglumaður, Akrakoti 2 13. Sigríður Helgadóttir, bóndi/sjúkraliði, Ósi 1 14. Stefán G. Ármannsson, vélsmiður/bóndi, Skipanesi H-listi Hvalfjarðarlistans Hvalfjarðarlistinn mun bjóða fram í Hvalfjarðarsveit í komandi sveitar- stjórnarkosningum. Listanum hef- ur verið úthlutað listabókstafnum H. „Listann skipar fólk sem ber hag samfélagsins fyrir brjósti, er annt um umhverfið, sem vill jafna stöðu íbúa, auka skilvirkni í meðferð mála og bæta upplýsingastreymi til íbúa. Brynja Þorbjörnsdóttir, viðskipta- fræðingur MBA og sveitarstjórn- arfulltrúi, er oddviti listans. Ann- að sæti skipar Helgi Magnússon grunnskólakennari og þriðja sæti skipar Helga Jóna Björgvinsdóttir sjúkraliði og bóndi. Listinn í heild er þannig: 1. Brynja Þorbjörnsdóttir, viðskipta- fræðingur MBA, Kalastöðum 2. Helgi Magnússon, grunnskólakennari, Garðavöllum 2 3. Helga Jóna Björgvinsdóttir, sjúkraliði og bóndi, Eystra-Miðfelli 4. Sæmundur Rúnar Þorgeirsson, viðskiptafræðingur, Hlíðarbæ 2 5. Inga María Sigurðardóttir, verkstjóri, Stóra-Lambhaga 5 6. Elísabet Unnur Benediktsdóttir, starfsmaður félagsþjónustu, Eystra- Reyni 7. Hlynur Eyjólfsson, verkamaður, Hlíð 8. Sigurður Sverrir Jónsson, bílstjóri, Stóra-Lambhaga 4 9. Jón S. Stefánsson, bifvélavirki, Hnúki Í-listi Íbúalistans Íbúalistinn, sem fengið hefur lista- bókstafinn Í, býður fram lista í Hval- fjarðarsveit fyrir næstu sveitarstjórn- arkosningar. Ragna Ívarsdóttir, leið- beinandi á Lækjarmel, er oddviti listans, Atli Halldórsson sauðfjár- bóndi skipar annað sæti og Sunneva Hlín Skúladóttir þriðja. „Hvalfjarð- arsveit er glæsilegt og fjölbreytt sam- félag, með mikla möguleika til fram- fara og góð tækifæri til uppbygging- ar. Íbúalistinn leggur áherslu á opna og öfluga stjórnsýslu, þar sem íbú- ar geta haft áhrif á framgang mála. Tryggja þarf vandaða stjórnun þar sem lýðræðið er virkt og íbúar hafa greiðan aðgang að upplýsingum um ákvarðanatöku kjörinna fulltrúa samfélagsins, rekstur þess og starf- semi. Heildarsýn okkar fyrir næstu ár birtast í stefnuskrá sem nær til allra helstu málaflokka,“ segir í upp- hafi stefnuskrár Íbúalistans. Í heild er listinn þannig: 1. Ragna Ívarsdóttir, leiðbeinandi, Lækjarmel 6 2. Atli Halldórsson sauðfjárbóndi, Neðra-Skarði 3. Sunneva Hlín Skúladóttir skólaliði, Geitabergi 4. Örn Egilsson rafvirki, Lækjarmel 1 5. Elín Ósk Gunnarsdóttir búfræðingur, Belgsholti 1 6. Marteinn Njálsson bóndi, Vestri-Leirárgörðum 7. Hafsteinn Sverrisson viðskiptalögfræðingur, Hlíðarbæ 14 8. Jóhanna G. Harðardóttir Kjalnesingagoði, Hlésey 9. Hreinn Gunnarsson iðnverkamaður, Hagamel 16 10. Maria Milagros Casanova Sua- rez þerna, Hlaðbúð 11. Ingibjörg María Halldórsdóttir viðskiptafræðingur, Vestri-Leirárgörðum 12. Birgitta Guðnadóttir húsmóðir, Hlíðarfæti 13. Magnús Ólafsson eldri borgari, Hagamel 13 14. Eyjólfur Jónsson sjálfstætt starfandi, Hlíð. mm Kosið milli þriggja lista í Hvalfjarðarsveit Engir framboðslistar bárust kjör- stjórn Dalabyggðar fyrir tilskilinn frest laugardaginn 5. maí og verða því óbundnar kosningar (pers- ónukjör) í sveitarfélaginu 26. maí næstkomandi eins og fyrir fjórum árum. Allir kjósendur sveitarfélags- ins verða því í kjöri, nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri. Tvær beiðnir um und- anþágu bárust kjörstjórn, segir í til- kynningu frá kjörstjórn á vef Dala- byggðar. Þær eru frá Höllu Sig- ríði Steinólfsdóttur í Ytri-Fagra- dal og Ingveldi Guðmundsdóttur í Stórholti. Báðar hafa þær setið í sveitarstjórn í 12 ár og uppfylla því skilyrði um að biðjast undan end- urkjöri. „Óski fleiri eftir að verða undanþegnir skyldu að taka sæti í sveitarstjórn skulu þeir hafa sam- band við Svein Gestsson formann kjörstjórnar,“ segir í tilkynningu kjörstjórnar. mm/ Ljósm. úr safni. Persónukjör í Dalabyggð Í Reykhólahreppi barst kjörstjórn enginn framboðslisti vegna sveitar- stjórnarkosninganna 26. maí næst- komandi. Það þýðir að persónukjör verður viðhaft líkt og í undanförn- um kosningum til sveitarstjórnar. Á vef Reykhólahrepps kemur fram að þrír sveitarstjórnarmenn hafa skor- ast undan endurkjöri. Það eru þau Vilberg Þráinsson Hríshóli, Ás- laug B. Guttormsdóttir Mávavatni og Sandra Rún Björnsdóttir Reyk- hólum. Einnig gefur Gústaf Jökull Ólafsson á Reykhólum ekki kost á sér, en hann var búinn að sitja þrjú kjörtímabil samfleytt fyrir síðustu kosningar, og getur því skorast und- an að taka kjöri jafn lengi. mm Persónukjör verður í Reykhólahreppi Miðflokkurinn hefur birt framboðs- lista sinn fyrir bæjarstjórnarkosn- ingar á Akranesi 26. maí næstkom- andi. Helga K. Jónsdóttir vélsmið- ur mun leiða lista flokksins. Í öðru sæti er Rúnar Ólason framkvæmda- stjóri og þriðja sæti skipar Steinþór Árnason veitingamaður. Í tilkynn- ingu frá framboðinu segir að málef- naáherslur flokksins verði kynntar á næstu dögum. Listinn í heild sinni er eftirfar- andi: 1. Helga K. Jónsdóttir, vélsmiður. 2. Rúnar Ólason, framkvæmdastjóri 3. Steinþór Árnason, veitingamaður 4. Hörður Svavarsson, rafvirkja- meistari 5. Kolbrún Líndal Guðjónsdóttir, innkaupastjóri 6. Íris Baldvinsdóttir, kennari 7. Lárus Jóhann Guðjónsson, mál- ari 8. Krystyna Jabloszewa, fiskverka- kona 9. Gunnar Þór Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri 10. Hallbjörn Líndal Viktorsson, rafvirki 11. Ásgeir Einarsson, kafari 12. Svavar Sigurðsson, starfsmaður hjá Norðuráli 13. Örn Már Guðjónsson, bakari 14. Jón Andri Björnsson, verslunar- maður 15. Gunnar Þór Heiðarsson, hafn- arverndarfulltrúi 16. Oddur Gíslason, sjómaður 17. Bergþór Ólason, alþingismaður. mm Miðflokkurinn kynnir framboðslista á Akranesi

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.