Skessuhorn


Skessuhorn - 27.06.2018, Page 23

Skessuhorn - 27.06.2018, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 23 VERKEFNASTJÓRI Upplýsingar veitir: Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is Gyða Kristjánsdóttir, gyda@hagvangur.is Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí nk. Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf. SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 Starfs- og ábyrgðarsvið: • Umsjón með Uppbyggingarsjóði Vesturlands • Umsjón með fjármálum SSV • Umsjón með upplýsingamálum SSV • Skjalavarsla Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun er æskileg sem og reynsla sem nýtist í starfi • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum • Frumkvæði, fagmennska og geta til að vinna sjálfstætt • Góð tölvukunnátta • Þekking á atvinnulífi og sveitarfélögum á Vesturlandi er kostur SSV er samstarfsvettvangur sveitarfélaganna varðandi hagsmunagæslu og þjónustu í ýmsum málaflokkum í landshlutanum s.s. byggðaþróun, samgöngumál, atvinnumál, menningar- og menntamál ásamt fleiri málum sem upp geta komið á þessum vettvangi. Samtök sveitafélaga á Vesturlandi (SSV) óska eftir að ráða verkefnastjóra til þess að annast umsjón með ýmsum málum fyrir samtökin. Leitað er að einstaklingi sem er drífandi og tilbúinn í að takast á við spennandi verkefni. SAMTÖK SVEITARFÉLAGA Á VESTURLANDI Þrjátíu og þrír nemendur sem hyggjast hefja nám í Háskóla Íslands í haust tóku við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands við hátíðlega athöfn á Há- skólatorgi fyrr í vikunni. Sjóðurinn fagnar tíu ára afmæli í ár. Styrkþeg- arnir koma úr tólf framhaldsskólum víða af landinu og eiga það sameig- inlegt að hafa náð framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs. Við mat á styrkþegum er einnig horft til virkni í félagsstörfum í framhalds- skóla og árangurs á öðrum sviðum, til dæmis í listum eða íþróttum. Þá leitast stjórn sjóðsins við að styrkja nýnema sem sýnt hafa fram á sér- stakar framfarir í námi eða góðan námsárangur þrátt fyrir erfiðar að- stæður. Styrkhafarnir eru: Ágúst Pálma- son Morthens, Ása Berglind Böðv- arsdóttir, Birta Lind Atladóttir, Bjarnveig Björk Birkisdóttir, Davíð Sindri Pétursson, Elsa Jónsdóttir, Elvar Wang Atlason, Enar Korn- elius Leferink, Erla Björk Sigurð- ardóttir, Guðrún Sólveig Sigríðar- dóttir, Gunnar Sigurðsson, Helgi Sigtryggsson, Hólmfríður María Þórarinsdóttir, Hörður Tryggvi Bragason, Inga Rósa Böðvarsdótt- ir, Ingibjörg Ragnheiður Linnet, Írena Rut Stefánsdóttir, Jiayu Ji- ang, Jóhann Gísli Ólafsson, Karól- ína Andrea Gísladóttir, Katarina K. Kekic, Katrín Agla Tómasdóttir, Kári Steinn Aðalsteinsson, Lingxue Guan, María Ármann, Matthildur Kemp Guðnadóttir, Rannveig Hlín Jóhannesdóttir, Selma Rún Bjarna- dóttir, Smári Snær Sævarsson, Tóm- as Halldórsson, Valgerður Jónsdótt- ir, Vignir Már Másson og Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir. mm Á fjórða tug afreksnema fær styrk til náms við Háskóla Íslands Opinn kynningarfundur verður hald- inn í matsal Reykhólaskóla í dag, miðvikudaginn 27. júní. Þar verður kynnt skýrsla norsku verkfræðistof- unnar Multiconsult um leiðir fyrir Vestfjarðarveg. Reykhólahreppur réði verkfræðistofuna til að rýna í vegkosti Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar vegagerðar í Gufudalssveit í tengslum við aðalskipulagsbreytingar. Vinna verkfræðistofunnar hófst í maí og er nú að ljúka. Þeir Lars Peter Larsgård og Sig- urður Jens Sigurðsson, ráðgjaf- ar verkfræðistofunnar, munu kynna skýrsluna. Einnig verða ráðgjafar frá Alta á fundinum, en þeir hafa aðstoð- að stjórnendur sveitarfélagsins við að halda utan um verkefnið, afla gagna og fleira. Fundurinn er öllum opinn, íbúum og hverjum þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta. Fundurinn hefst kl. 20:00. kgk/ Ljósm. úr safni/ mm. Kynningarfundur um vegakosti í Gufudalssveit Freisting vikunnar Eflaust lesa einhverjir titilinn á Freistingu vikunnar og velta fyrir sér „smákökur í júní?“ - og klóra sér í hausnum. Sem Íslending- ur tengi ég smákökur nánast ein- göngu við jólin en það eru vissu- lega ekki jólin þó svo að veður- far síðustu mánuði gefi stund- um til kynna að hátíðarnar séu á næsta leiti. Freisting vikunnar að þessu sinni er langt í frá að vera holl en hún vissulega fullnægir sykurþörfinni sem gerir oft vart við sig. Uppskriftin sprettur frá tíma mínum í Bandaríkjunum en þar dvaldi ég í fimm ár og borðaði ósjaldan smákökurnar ásamt öðr- um sætindum. Nóg var sko til. Smákökur sem þessar eru ekki hugsaðir sem spari heldur henta einstaklega vel inn í hversdags- leikann og því mæli ég með að skella sér í bakstursgírinn hvort sem það er eftir kvöldmat á þriðjudegi eða fyrir kaffitímann á sunnudegi. Ég mæli einnig með að skola þeim niður með ískaldri mjólk því það er fátt sem kyssist jafnvel eins og nýbakað kruðerí og ísköld mjólk. Innihald: 2 ¼ bolli hveiti 1 tsk bolli matarsódi 1 tsk salt ¾ bolli sykur ¾ bolli púðursykur 1 bolli smjör (mjúgt) 2 egg 1 tsk vanilludropar 2 pokar af súkkulaðibitum Aðferð: Byrjið á því að hita ofninn 175°C. Setjið hveiti, matarsóda og salt saman í skál. Geymið. Í aðra skál blandið vel saman sykri, púður- sykri, smjöri og vanilludropum þangað til létt áferð hefur mynd- ast. Bætið eggi, einu í einu við og hrærið vel saman á milli. Bætið þurrefnunum saman við og bland- ið hægt og rólega saman með sleif. Þegar allt er komið saman bæt- ið þá súkkulaðibitunum við (al- gjört smekksatriði með súkkulaði magnið! Því meira því betra segi ég). Setjið bökunarpappír á ofn- plötu og raðið deiginu, vel fulla teskeiðsstærð, á plötuna. Bakið í 10-12 mínútur. Verði ykkur að góðu, Gunnhildur Lind Hansdóttir Súkkulaðibita smákökur

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.