Skessuhorn


Skessuhorn - 07.11.2018, Page 8

Skessuhorn - 07.11.2018, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 20188 „Ég veit að það er fullt af fólki þarna úti sem er með hugmynd- ir. Þetta verður vonandi hvatning fyrir fólk að taka þær lengra,“ seg- ir Eva Margrét Jónudóttir, sérfræð- ingur hjá Matís og einn skipuleggj- enda Lambaþons sem verður hald- ið um næstu helgi, dagana 9.-10. nóvember. Lambaþonið verð- ur sett í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og er ætlað að kanna hvernig hægt er að auka verðmæti í virðiskeðju sauðfjár. Verkefnið er samstarf margra stofnana og há- skóla. Að því koma Matís, Land- búnaðarháskóli Íslands, Háskólinn á Bifröst, Landgræðslan, Ráðgjafa- miðstöð landbúnaðarins, Matvæla- stofnun, Landssamtök sauðfjár- bænda, Samtök ungra bænda, Há- skóli Íslands og Icelandic Lamb. Landinn sækir í annað kjöt „Það eru alveg örugglega vannýtt tækifæri í lambakjötsframleiðslu á Íslandi,“ segir Eva Margrét. Hún segir að neyslutölur síðustu ára bendi til að neysla á lambakjöti hafi fallið innanlands. „Neysla á kjúk- lingi og svínakjöti hefur aukist á kostnað lambakjötsins en samt hef- ur kjötneysla aukist í heildina eins og gerist oft þegar efnahagsleg vel- sæld eykst.“ Í staðinn fyrir að enda á diskum landsmanna er hins vegar reynt að selja lambakjötið úr landi. Vilja fá alls kyns hugmyndir Lambaþonið gengur þannig fyrir sig að einstaklingar eða lið skrá sig til leiks í síðasta lagi fimmtudaginn 8. nóvember. Keppt er í 4-8 manna liðum um bestu hugmyndina til að auka verðmætasköpun í virðiskeðju sauðfjár á Íslandi. Fimm manna dómnefnd dæmir í keppninni og verðlaunin eru tvöhundruð þúsund krónur. Það sem leitað er eftir þeg- ar sigurlið er valið er: Hversu mik- ið eykst verðmætasköpun bónda sem hrindir hugmyndinni í fram- kvæmd? Hversu mikið ávinnst fyrir neytendur? Felur hugmyndin í sér uppbyggjandi tillögur um starfs- umhverfi bænda? Hefur hugmynd- in jákvæð umhverfisáhrif? Felur hugmyndin í sér þróun nýrra vara eða þjónustu? Er liðið ástríðufullt fyrir hugmyndinni sinni? „Miðað við hvað bændur fá oft lítið fyrir afurðir sínar, þá hljóta að vera tækifæri á hinum ýmsu stöð- um í ferlinu,“ segir Eva Margrét og tekur nokkur dæmi. „Það geta verið tækifæri í framleiðsluferlinu, í vinnsluferlinu, söluferlinu, vöru- þróun, lagaumhverfi, nýtingu hlið- arafurða bara svo dæmi séu tekin. Vöruþróun er oft það fyrsta sem manni dettur í hug, en það þarf ekki að stoppa þar. Kindin var nýtt svo vel hér áður fyrr þegar mat- væli voru oft af skornum skammti en það er ekki eins og við borðum þorramat allt árið um kring leng- ur.“ Hjálpa til við vinna úr hugmyndinni Eva Margrét segir að það sé eitt að fá hugmyndina en annað að vinna úr henni. „Ef þú ert með hugmynd þá viljum við hjálpa viðkomandi að koma henni á blað og fara með hana lengra.“ Liðin kynna sína hugmynd fyrir dómnefnd í húsakynnum Mat- ís í Reykjavík en mögulegt er að kynna hugmyndina í gegnum vef- útsendingu ef keppendur kjósa það. Frekari upplýsingar eru á heima- síðu Matís og skráning fer fram á lambathon@matis.is. klj Aflatölur fyrir Vesturland dagana 27. október - 2. nóvember Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: 3 bátar. Heildarlöndun: 15.216 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 7.834 kg í þremur róðrum. Arnarstapi: 3 bátar. Heildarlöndun: 64.892 kg. Mestur afli: Kvika SH: 29.553 kg í sex róðrum. Grundarfjörður: 5 bátar. Heildarlöndun: 156.997 kg. Mestur afli: Hringur SH: 62.560 kg í einni löndun. Ólafsvík: 10 bátar. Heildarlöndun: 166.828 kg. Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs SH: 40.354 kg í fjórum róðr- um. Rif: 6 bátar. Heildarlöndun: 81.439 kg. Mestur afli: Stakkhamar SH: 47.470 kg í fjórum löndunum. Stykkishólmur: 7 bátar. Heildarlöndun: 79.058 kg. Mestur afli: Hannes Andrésson SH: 25.422 kg í fimm róðrum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Hringur SH - GRU: 62.560 kg. 31. október. 2. Helgi SH - GRU: 45.011 kg. 28. október. 3. Farsæll SH - GRU: 41.044 kg. 30. október. 4. Stakkhamar SH - RIF: 13.557 kg. 30. október. 5. Stakkhamar SH - RIF: 12.729 kg. 27. október. -kgk Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráð- herra, átti fund með Jon George Dale, samgöngu- og fjarskiptaráð- herra Noregs, síðastliðinn föstudag. Fundarefnið var að kynna sér skipu- lag vegamála í Noregi, útfærslur og breyttar áherslur þeirra í uppbygg- ingu á vegakerfinu. Á fundinum var farið yfir gjaldtökuleiðir sem Norð- menn hafa tileinkað sér til að hraða uppbyggingu vegakerfisins. Með Sigurði Inga í för var m.a. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðar- innar. Í Noregi eru tvenns konar gjald- tökur í vegakerfinu, annars vegar vegtollar til að mæta allt að helm- ingi kostnaðar við uppbyggingu til- tekinna framkvæmda og hins veg- ar gjaldtaka innan þéttbýlis til að mæta kostnaði við innviðauppbygg- ingu í tengslum við almenningssam- göngur og til að draga úr mengun af völdum umferðar. Þá hafa Norð- menn farið þá leið að færa tilteknar framkvæmdir; á vegum, göngum og brúm, úr höndum norsku vegagerð- arinnar og til einkaaðila í því skyni að bæði flýta og hámarka ábata af fram- kvæmdum. Nye Veier AS, opinbert hlutafélag, sér um umfangsmiklar framkvæmdir á völdum svæðum en undirbúningur slíkra framkvæmda er langur og er markmið fyrirtækis- ins m.a. að ná kostnaði framkvæmda niður um 20% að meðaltali. Þá eru nokkur samvinnuverkefni, líkt og Hvalfjarðargangamódelið, víðsvegar um landið og eru þau hluti af norsku samgönguáætluninni. Vilja hraða fram- kvæmdaþáttum í samgönguáætlun Ráðherra og föruneyti fundaði einn- ig með fulltrúum Nye Veier AS sem kynntu starfsemi sína nánar og for- gangsröðun framkvæmda. Daginn áður var norska vegagerðin heimsótt sem fór yfir árangur af samvinnu- verkefnum liðinna ára. „Ljóst er að á síðastliðnum árum hafa Norð- menn náð góðum árangri á tiltölu- legum stuttum tíma sem verðmætt er að horfa til með það að markmiði að nýta þá reynslu sem hefur gef- ist vel,“ segir í tilkynningu frá ráðu- neytinu. „Þess má geta að starfshóp- ur á vegum samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytisins sem vinnur að því að finna nýjar leiðir í fjármögn- un á vegakerfinu, hefur einnig ver- ið að horfa til annarra landa, þ.ám. Noregs, og fengið til sín á fundi er- lenda sérfræðinga sem hafa frætt og miðlað sinni vitneskju. Næstu skref eru að starfshópurinn móti tillög- ur sem miða að því að hraða ein- staka framkvæmdum, sem eru nú í tillögu að samgönguáætlun, með því að nýta nýjar fjármögnunarleið- ir að hluta eða öllu leyti. Einnig var starfshópnum falið að móta tillög- ur um fjármögnun vegakerfisins til lengri tíma vegna orkuskipta. Starfs- hópurinn mun skila tillögum sínum til ráðherra í byrjun næsta árs.“ mm Samgönguráðherra hitti norskan kollega sinn Skoðað hvernig Norðmenn útfæra gjaldtöku í vegakerfinu Jon George Dale, samgöngu- og fjarskiptaráðherra Noregs og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra Íslands. Vannýtt tækifæri í lambakjötsframleiðslu -Vilja kalla fram nýjar hugmyndir til að auka verðmæti í virðiskeðju sauðfjár Eva Margrét Jónudóttir er sérfræðingur hjá Matís. Hún segist viss um að það sé fullt af fólki þarna úti sem á góðar hugmyndir um hvernig auka megi verðmæti í virðiskeðju sauðfjár.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.