Skessuhorn


Skessuhorn - 07.11.2018, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 07.11.2018, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 201818 Frú Anna Guðrún Klemensdótt- ir, eiginkona Tryggva Þórhalls- sonar forsætisráðherra, opn- aði Hvítárbrúna fyrir umferð með því að klippa á silkiborða sem strengdur hafði verið yfir brúna. Tók vegamálastjóri fram að skærin skyldi hún geyma til minja um atburðinn. Það gerði Anna Guðrún og gaf síðar son- ardóttur sinni og nöfnu, Önnu Guðrúnu Björnsdóttur, sem nú varðveitir skærin. Skæri þessi eru úr silfri, smíðuð af Jónat- an Jónssyni frá Stóra-Kálfalæk, gullsmið í Reykjavík. Skærin góðu eru einn af sýningargrip- um á sýningu um Hvítárbrúna. Á skærin góðu er grafið: „Hvít- árbrú – Vígð 1/11 1928“. Trúlofuðu sig á brúnni „Benta mín var sýsluskrifari og þjónaði báðum sýslum og faðir hennar sýslumaður. Því þótti ekki gott að gera upp á milli sýslnanna,“ segir Valgarð Briem lögmaður í frásögn sem finna má á sýningunni. Hann og Benta Margrét Jónsdóttir trú- lofuðu sig uppi á miðri Hvítár- brúnni 12. maí 1948. Þennan dag fór Benta á sýslumannsbíln- um út á Akranes og sótti unn- ustann. Hann var með hringana í vasanum og tók þá upp í stuttu stoppi á miðri brúnni. „Þegar búið var að innsigla trúlofunina var Dóri mjólkurbílstjóri kom- inn upp á brúna á eftir okkur en hann hafði verið að sækja mjólk í Andakíl. Hann var í stúkusæti og þegar ég leit út um aftur- gluggann sá ég glottið á hon- um,“ segir Valgarð. Af skærum og trúlofun Síðastliðinn fimmtudag var opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgar- nesi sýning um Hvítárbrú við Ferju- kot. Þennan dag fyrir réttum níutíu árum var brúin formlega vígð og tek- in í notkun. Sögusýningin er sam- in af Helga Bjarnasyni, blaðamanni frá Laugalandi í Stafholtstungum, sem jafnframt átti hugmyndina að verkefninu, safnaði ljósmyndum auk mynda sem hann sjálfur hefur tek- ið í áranna rás. Heiður Hörn Hjart- ardóttir hönnuður á Bjargi hannaði sýninguna og færði á spjöld. Á þeim gefur að líta afar fróðlegan texta og fjölda mynda allt frá brúargerðinni og til dagsins í dag. Fjölmenni var við opnun sýningarinnar á fimmtudags- kvöld, ávörp flutt og saga brúargerð- arinnar sögð. Héraðsbúar eru hvatt- ir til að sjá þessa sýningu. Þá er kost- ur að gefa sér góðan tíma til lesturs. Ókeypis aðgangur er að sýningunni og verður hún opin kl. 13-18 fram til 12. mars 2019. Hvítárbrúin olli straumhvörf- um í samgöngum jafnt innan héraðs og sem tenging milli landshluta, en straumhörð Hvítáin var mikill far- artálmi þar til brúin var byggð. Brú- in sjálf þótti frá fyrstu tíð og æ síð- an einkar glæsilegt mannvirki og er metin eitt af stærstu verkfræðilegum afrekum tuttugustu aldarinnar hér á landi. Athygli vekur að vinnan við brúargerðina tók einungis sjö mán- uði. Hafist var handa við brúargerð- ina í apríl 1928 og því lokið í október sama ár. Sýningin er helguð minningu Þor- kels Fjeldsted, fyrrum bónda í Ferju- koti, sem lést fyrir aldur fram árið 2014. Þorkell bjó alla sína ævi í ná- grenni við brúna og lét sér alltaf mjög annt um hana. Hann varðveitti og miðlaði auk þess sögulegum fróð- leik alla sína tíð. Sýningin er styrkt af Kaupfélagi Borgfirðinga. Um tilurð brúarinnar og umskiptin sem urðu við opnun hennar Í Morgunblaðinu síðastliðinn fimmtudag birtist ágrip af sögu brú- arsmíði yfir Hvítá. Sú frásögn fer hér á eftir með góðfúslegu leyfi: Sameinaði héraðsbúa „Hvítá var mikill farartálmi og skipti Borgarfjarðarhéraði í raun í tvo hluta. Brú sem byggð var við Kljáfoss undir lok nítjándu aldar bætti nokkuð úr en íbúar neðri sveita héraðsins notuðu lögferjurnar. Ferjan hjá Ferjukoti var mest notuð enda var hún á einni fjöl- förnustu leið landsins. Sem dæmi má nefna að eftir að byrjað var að slátra í Borgarnesi þurftu bændur úr Anda- kíl, Lundarreykjadal, Skorradal og hluta Flókadals að láta ferja fé sitt og nautgripi yfir ána. Það var und- ir duttlungum árinnar komið hvern- ig ferðin gekk. Hvítárbrúin breytti því heilmiklu í atvinnulífi og félagslífi íbúa Borgarfjarðarhéraðs. Hún opn- aði dyr innan héraðs, jók héraðsvit- und og átti sinn þátt í því að gera hér- aðið að einni heild.“ Ferjustaðir um aldir Þegar ferjan hjá Ferjukoti lagðist af með opnun Hvítárbrúarinnar árið 1928 hafði þar verið lögferja í 62 ár. Eins og nöfn bæjanna Ferjubakka og Ferjukots benda til er saga ferju- flutninga á þessum stað mun lengri. Almenningsferja var í Ferjukoti eft- ir að það var stofnað sem sjálfstætt býli undir lok 17. aldar en máldagi sælubús á Ferjubakka, eitt elsta skjal um sögu Borgarfjarðar og landsins alls, bendir til að þar hafi verið ferja snemma á miðöldum. Jón Þorláksson, þá landsverk- fræðingur en síðar forsætisráðherra, gerði fyrstu mælingar á brúarstæði á milli Hvítárvalla og Ferjukots á árinu 1910. Brúarstæðið þurfti að vera neð- an ármóta Norðurár til þess að ekki þyrfti að brúa hana líka. Eðlilegt er að litið hafi verið til ferjustaðarins enda er þar styst yfir ána. Niðurstaðan varð að brúa ána 200 metrum ofan við ferjustaðinn. Þar eru traustar undir- stöður í klettum beggja vegna ár. Borgfirðingar og Mýramenn höfðu lengi barist fyrir brú. Safnað var í vega- og brúarsjóð og stóðu sýslurn- ar fyrir lagningu vegar hjá Eskiholti. Þjóðvegurinn var færður frá Kljáfossi að Ferjukoti á árinu 1924 og eftir það komst brúargerð fyrir alvöru á dag- skrá stjórnvalda. Steinsteypt bogabrú ódýrust Til þess að hægt væri að byggja brú á þessum stað þurfti að sprengja fyr- ir vegi í Ferjukotsklettum, að brú- arendunum. Það var gert sumar- ið 1927 og brúin var byggð sumarið eftir. Miklar athuganir voru gerðar á því hvaða gerð af brú væri heppi- legust. Verkfræðingar töldu í upp- hafi hengibrú úr járni tiltækilegasta vegna þess að þá þyrfti ekki að gera stöpul úti í ánni. Járngrindarbrú með steyptu gólfi kom einnig til greina en þegar gerðar voru athuganir á stein- steyptri bogabrú kom í ljós að góðir möguleikar voru á því að grafa niður á trygga undirstöðu og steypa stöpul og reyndist sú gerð ódýrasti kostur- inn. Þess vegna varð bogabrú í tveim- ur höfum fyrir valinu, brúin sem enn stendur. Vinna við brúargerðina hófst 12. apríl og stóð til loka nóvembermán- aðar. Verkið tók því um sjö og hálf- an mánuð þótt mesta vinnan hafi verið um sumarið þegar miðstöpull- inn var byggður. Það þótti vel af sér vikið og þætti einnig gott í dag, mið- að við þann hægagang sem oft er á opinberum framkvæmdum. Geir G. Zoëga vegamálastjóri, Árni Pálsson verkfræðingur, sem hannaði brúna og hafði eftirlit með smíðinni, Sigurður Björnsson, brúarsmiður og verkstjóri við brúarsmíðina, og brúarmenn allir unnu gott starf, eins og brúin sjálf ber best vitni um. Það sem meira er og margir sem standa í framkvæmdum í dag mættu læra af, þá stóðust áætlanir um kostn- að. Brúin kostaði nálægt 165 þúsund krónum og vegurinn utan í hamrin- um 23 þúsund til viðbótar. Hvítárbrúin var með mestu brúar- mannvirkjum. Þegar hún var byggð var hún fjórða lengsta brú landsins og sú steinsteypta brú sem mest var lagt í. Sem dæmi um umfangið má nefna að kostnaður við Hvítárbrúna eina var jafnmikill og samtals við 22 aðrar brýr sem lokið var við á þessu sama ári og nam um fimmtungi allra út- gjalda ríkisins til vegamála þetta ár. Kom til handalögmála Frá upphafi var litið til þess að Hvít- árbrúin væri mikilvægur liður í því að koma á bílvegasambandi á milli Reykjavíkur og Norðurlands. Veg- urinn þokaðist úr Reykjavík og upp á Kjalarnes og að lokum var ákveð- ið, eftir nokkrar vangaveltur, að hann yrði lagður um láglendi fyrir Hval- fjörð og vestur fyrir Hafnarfjall. Eftir að brúin kom tók það í raun skamm- an tíma að gera slarkfæran veg fyr- ir Hvalfjörð og varð sú leið fljótt til- tölulega fjölfarin þótt enn um sinn væru flóabátarnir talsvert notaðir. Þótt brúin væri hugsuð fyrir bíla var hún lítið breiðari en gömlu brýrn- ar sem gerðar höfðu verið með þarf- ir gangandi fólks og ríðandi og vagna í huga. Þegar fram í sótti fóru um brúna margfalt þyngri bílar en hönn- un hennar var miðuð við og umferðin jókst stórkostlega. Þegar umferðin var sem mest, áður en Borgarfjarðarbrúin tók við megin- hlutverki Hvítárbrúarinnar árið 1980, gerðist það oft að bílstjórar lentu í því að vera hraktir til baka þegar bíll úr gagnstæðri átt var kominn lengra inn á brúna. Oft var illmögulegt að sjá þetta fyrir vegna bogans og blindrar aðkeyrslu inn á brúna. Þótt sá ætti réttinn sem fyrr komst inn á brúna var fólk misjafnlega hæft til að bakka og þá var oftast reynt að leysa úr mál- um með friðsamlegum hætti. Stund- um kom þó til snarpra orðaskipta og jafnvel handalögmála. Ekki hefur komið til þess á Borgarfjarðarbrúnni, svo vitað sé. Hvítárbrúin er enn á sínum stað. Hefur hún hlutverki að gegna í sam- göngum innan héraðs og er aðdrátt- arafl fyrir ferðafólk sem gjarnan staldrar þar við.“ mm Sýning opnuð á níræðisafmæli Hvítárbrúarinnar Helgi Bjarnason og Heiður Hörn Hjartardóttir, höfundar sýningarinnar um Hvítárbrú. Meðal gesta á sýningunni voru Sæmundur Sigmundsson sem ættaður er frá Hvítárvöllum og Flemming Jessen fv. skólastjóri. Gestir skoða sýninguna. Hér má m.a. sjá þá Pétur Jónsson og Davíð Pétursson. Fjölmargar myndir eru til af Hvítárbrú enda er mannvirkið vinsælt myndefni. Hér er mynd sem tekin er ofan af Þjóðólfsholti. Ljósm. Haukur Júlíusson. Fjögur systkini frá Laugalandi ásamt tveimur mökum. F.v. Jón Kristjánsson, Steinunn Bjarnadóttir, Helgi Bjarnason, Sigrún Bjarnadóttir, Þórhallur Bjarnason og Erla Gunnlaugsdóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.