Skessuhorn


Skessuhorn - 07.11.2018, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 07.11.2018, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 201830 MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Af hverju ákvaðst þú að koma á ungmennaþingið? Spurni g vikunnar (Spurt á ungmennaþingi á Laugum í Sælingsdal) Guðrún Karítas Hallgríms- dóttir Mér þykir gaman að heyra mismunandi skoðanir sem fólk hefur. Emma Andersdóttir Ég er að leysa af aðra stelpu sem ætti að vera hér, en er í út- löndum. Oliver Snær Ólason Vegna þess að Helgi, besti vin- ur minn, bauð mér með sér og ég hef áhuga á þessu. Linda Rós Leifsdóttir Ég vildi sjá hvort ég hefði áhuga á að starfa í ungmenn- aráði í Borgarbyggð. Helgi Rafn Bergþórsson Vegna þess að ég er formaður nemendafélags er ég sjálfskip- aður í ungmennaráð og var því boðið hingað. Svo langar mig að hafa áhrif. Skallagrímsmenn máttu sætta sig við tap á útivelli gegn Breiðabliki í Domino‘s deild karla í körfuknatt- leik síðastliðinn fimmtudag. Borg- nesingar fundu taktinn aldrei al- mennilega í leiknum og urðu því að sætta sig við tíu stiga tap, 93-83. Blikar réðu lögum og lofum á vellinum í upphafi leiks en Skalla- grímsmenn voru heillum horfn- ir. Einkum var varnarleikur Borg- nesinga afleitur í upphafi. Það eina sem bjargaði Skallagrími var að varnarleikur heimamanna var ekki sá besti heldur. Blikar leiddu með ellefu stigum eftir upphafs- fjórðunginn, 34-23. Sóknarleikur Skallagríms batnaði lítið eitt í öðr- um leikhluta en Blikar voru áfram sterkari og leiddu með 14 stigum í hléinu, 53-39. Heimamenn byrjðu betur í síð- ari hálfleik og enn þyngdist róður Skallagrímsmanna, sem gekk illa að finna taktinn í leiknum. Staðan var orðin 63-44 þegar Skallagrímur skipti yfir í svæðisvörn að eitthvað fór að ganga hjá þeim. Þeir náðu að laga stöðuna í 74-65 fyrir lokaleik- hlutann. Blikar héldu forystunni í fjórða leikhluta. Skallagrímur náði að minnka muninn í 86-81 þegar stutt lifði leiks en nær komust þeir ekki og heimamenn sigruðu á end- anum með 93 stigum gegn 83. Eyjólfur Ásberg Halldórsson var besti maður Skallagríms í leikn- um. Hann skoraði 22 stig, tók ell- efu fráköst og gaf fimm stoðsend- ingar. Aundre Jackson var með 21 stig og fimm fráköst, Matej Buovac skoraði 20 stig og Bjarni Guðmann Jónsson skoraði tíu og tók sjö frá- köst. Christian Covile skoraði 26 stig, reif niður 22 fráöst og gaf sjö stoð- sendingar í liði heimamanna. Snorri Vignisson var með 16 stig, sex frá- köst og fimm stolna bolta, Erlendur Ágúst Stefánsson skoraði 16 stig og tók fimm fráköst og Snorri Hrafn- helsson skoraði 16 stig einnig. Skallagrímur hefur fjögur stig eftir fimm leiki og situr í sjötta sæti deildarinnar þegar þessi orð eru rituð. Næst leika Borgnesing- ar föstudaginn 9. nóvember þegar þeir mæta Haukum á útivelli. kgk Skallagrímur tapaði gegn Breiðabliki Eyjólfur Ásberg Halldórsson var besti maður Skallagríms í leiknum. Ljósm. úr safni/ Skallagrímur. Töluverðar sviptingar voru á fyrsta kvöldi aðaltvímennings Bridge- félags Borgarfjarðar sem spilað var á mánudagskvöld. Mótinu verður framhaldið næstu þrjú mánudags- kvöld. Sextán pör eru skráð til leiks. Eftir þetta fyrsta kvöld í keppninni leiða Sveinbjörn og Lárus með 66,7% skor og hafa töluvert forskot á næsta par sem eru Kolhrepping- arnir Gísli og Ólafur með 60,4%. Í næstu sætum eru svo Rúnar og Guðjón úr Borgarnesi, bændurn- ir Jón og Baldur í fjórða og Anna Heiða og Ingimundur í fimmta. mm Sveinbjörn og Lárus í forystu Knattspyrnufélag ÍA hefur samið við þá Viktor Jónsson og Óttar Bjarna Guðmundsson um að leika með liði Skagamanna næstu tvö árin. Viktor er fæddur árið 1994 og hóf sinn feril með Víkingi R. en hefur undanfarin tvö ár leikið með Þrótti R., þar sem hann skoraði 35 mörk í 39 leikjum. Heilt yfir hefur hann leik- ið 140 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 68 mörk. „Það er því ljóst að Viktor verður gífurlega góð viðbót í hópinn fyrir komandi átök í Pepsi deildinni 2019,“ segir í tilkynningu á vef KFÍA. Þar er jafnframt haft eftir Jóhannesi Karli Guðjónssyni, þjálf- ara karlaliðs ÍA, að hann sé himinlif- andi að samkomulag við Viktor sé í höfn. Sú viðbót við leikmannahóp- inn sýni metnað fyrir komandi verk- efnum. Óttar Bjarni er fæddur árið 1990 og uppalinn hjá Leikni R., en hefur verið á mála hjá Stjörnunni undan- farin tvö ár. Á vef KFÍA er haft eft- ir Jóhannesi Karli að hann telji Ótt- ar góða viðbót við leikmannahóp ÍA fyrir komandi átök í Pepsi deildinni, enda fari þar reynslumikill leikmaður með yfir 200 leiki að baki fyrir meist- araflokk. kgk/ Ljósm. KFÍA. ÍA semur við tvo leikmenn Frá undirritun samningsins við Viktor. F.v. Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari karlaliðs ÍA, Magnús Guðmundsson, formaður KFÍA, Viktor Jónsson og Sævar Freyr Þráinsson, varaformaður KFÍA. Samið við Óttar Bjarna Guðmundssno. F.v. Jóhannes Karl, Óttar Bjarni og Sævar Freyr. Skagamaðurinn Guðjón Þórðarson hefur samið við færeyska knatt- spyrnuliðið NSÍ Runavík. Samdi hann um að annast þjálfun liðsins næstu tvö árin, að því er fram kem- ur á heimasíðu félagsins. Runavík hafnaði í öðru sæti í færeysku úr- valsdeildinni, Betrideildinni, á ný- liðnu keppnistímabili. Guðjón er 63 ára gamall og er þetta fyrsta starf hans við knatt- spyrnuþjálfun síðan hann stýrði Grindavík árið 2012. Hann er þó enginn nýgræðingur í þjálfun, eins og kunnugt er. Hann vann fjóra Íslandsmeistaratitla sem þjálfari ÍA og gerði Skagamenn tvisvar sinn- um að bikarmeisturum, sem og lið KR-inga. Á Íslandi hefur Guðjón hefur einnig þjálfað KA, Keflavík og BÍ/Bolungarvík. Hann þjálfaði einnig Stoke City, Barnsley, Notts County og Crewe Alexandra í Bretlandi og norska liðið Start. Síðast en ekki síst stýrði Guðjón íslenska karlalandsliðinu frá 1997 til 1999. Sem leikmaður var Guðjón afar sigursæll, hampaði Íslandsmeist- aratitlinum fimm sinnum með ÍA og bikarmeistaratitlinum jafn oft. kgk/ Ljósm. nsi.fo. Guðjón Þórðarson þjálfar í Færeyjum Grundarfjörður tók á móti ÍA í Geysisbikarnum, bikarkeppni KKÍ föstudaginn 2. nóvember síðast- liðinn. Heimamenn í Grundarfirði leika í þriðju deildinni en ÍA spilar í deild ofar. Það var þokkalegt jafn- ræði með liðunum fyrstu mínút- urnar en fljótlega í öðrum leikhluta fóru Skagamenn að sýna styrk sinn og kláruðu leikinn með töluverðum yfirburðum. Lokatölur urðu 85-112 Skagamönnum í vil. tfk ÍA ekki í vandræðum með Grundarfjörð

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.