Skessuhorn


Skessuhorn - 07.11.2018, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 07.11.2018, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 201810 Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull fékk á þessu ári úthlutað peningum úr svokallaðri Innviðaáætlun ríkis- stjórnarinnar sem styrkja á upp- bygginga á ferðamannastöðum. Pengingar fengust til ýmissa verk- efna í Þjóðgarðinum, eins og rakið er hér að neðan. Meðal stærri má nefna uppbyggingu bílastæðis við gestastofu Þjóðgarðsins á Malar- rifi, bætt bílastæði við Djúpalón og nýtt salernishús sem verður stað- sett við Útnesveg ofan vegamóta að Djúpalóni. Auk þess fékkst fjár- magn til þess að endunýja útsýnis- pall við Gatklett á Arnarstapa. Gestastofan á Malarrifi var opnuð í júnílok 2016 en var áður á Hellnum. Fjöldi gesta sækir gestastofuna heim og er áætlað að á þessu ári komi þangað ríflega 70.000 manns. Samhliða opnun gestastofunar hefur Malarrif öðl- ast sess sem einn af stærri áfanga- stöðum í Þjógarðinum og nýta fjölmargir gesta Malarrif til úti- veru og gönguferða. Í haust var hafist handa við stækkun og úr- bætur við bílastæði gestastofunn- ar, enda var eldra stæðið of lítið. Á bílastæðinu verða sérstæði fyr- ir rútur, stæði fyrir hreyfihamlaða og hraðhleðslustæði auk fjölda al- mennra bílastæða. Jafnframt verða lagðar stéttir að gestastofunni og umhverfi hennar bætt. Arkitekta- stofan Landslag hannaði bílastæð- in, en sú teiknistofa á einnig heið- urinn af stiganum á Saxhól sem hlotið hefur alþjóðleg hönnunar- verðlaun. Framkvæmdaraðili við bílastæðið er B.Vigfússon ehf og er áætlað að jarðvinnu og slétt- un bílastæðisins ljúki í nóvember á þessu ári og að bílastæðið verði malbikað og merkt á næsta sumri. Hönnun stendur yfir á bílastæð- inu við Djúpalón og hefjast fram- kvæmdir við þau næsta vor. Nú- verandi salerni á Djúpalóni verða fjarlægð og ný salerni reist ofan vegamótanna að Djúpalóni. Sal- ernin verða því við þjóðveginn og nýtast fleirum sem um Þjóðgarð- inn fara. Jafnframt verða sett upp bílastæði við salernishúsin. Þessa dagana er verið að setja upp fjarskiptasendi við Purkhóla og lítið fjarskiptamastur verður reist vestan í Beruvíkurhrauni. Með þessari framkvæmd mun nær allur Þjóðgarðurinn komast í síma- samband. Aðeins hluti Jökulháls- ins verður án sambands. Verktak- ar eru að leggja rafstreng og ljós- leiðara í vegöxlina frá Svalþúfu að sendistöðum og nýtur nýtt salerni ofan Djúpalóns góðs af því. Verð- ur salernishúsið opið allt árið. Þá stendur yfir hönnun á nýj- um útsýnispalli við Gatklett á Ar- nastapa og stefnir í að hann verði reistur á vordögum næsta árs. Viðbótarfjármagn fékkst til land- vörslu í Þjóðgarðinum á þessu ári og verður gestastofan á Malarrifi opin alla daga til áramóta, utan stórhátíðisdaga. Opnunartíminn verður frá klukkan 11:00 á morgn- ana til 16:00 á daginn frá og með 1. nóvember. Jón Björnsson þjóð- garðsvörður segir að það sé von stjórnenda Þjóðgarðsins að frek- ari viðbætur fáist til landvörslu í þjóðgarðinum á næsta ári og að opnunartími gestastofunnar verði tryggður alla daga. Stefnan sé að innan skamms verði landverðir ráðnir til heilsársstarfa og hvetur hann heimamenn til þess að sækja landvarðanámskeið og koma til starfa í Þjóðgarðinum, jafnt nátt- úru hans sem nærsamfélagi til heilla. þa Fimmtudaginn 1. nóvember síðast- liðinn færði bæjarstjórn Akraness Braga Þórðarsyni nafnbótina heið- ursborgari Akraness við hátíðlega athöfn á Bókasafni Akraness. Um 150 gestir voru viðstaddir. Bragi er áttundi einstaklingurinn sem hlýt- ur þessa nafnbót en á undan hon- um hafa verið: Einar Ingjaldsson, sr. Friðrik Friðriksson, Ólafur Fin- sen læknir, Guðrún Gísladóttir ljós- móður, sr. Jón M. Guðjónsson, Þor- geir Jósefsson og Ríkharður Jóns- son. Öll eru þau fallin frá. Allir þess- ir einstaklingar stuðluðu að því, hver með sínum hætti, að skapa bæj- arfélaginu Akranesi sérstöðu með- al annarra sveitarfélaga og efldu með íbúunum stolt, sem ekki verð- ur metið til fjár, segir í tilkynningu Akraneskaupstaðar. Á kvöldvöku á fimmtudaginn sem helguð var útnefningu heið- ursborgaa tók fyrstur til máls Sæv- ar Freyr Þráinsson bæjarstjóri. Fór hann yfir starfsferil Braga og fyrstu kynni þeirra Braga árið 1985 þeg- ar hann þá nýfermdur fór til hans í Bókaskemmuna og ráðstafaði drjúg- um hluta fermingarpeninga sinna til kaupa á hljómflutningstækjum. Mætti hann þar einstakri hlýju og góðri nærveru Braga. Að lokinni ræðu var Braga færður blómvönd- ur og skjal heiðursborgaratigninni til staðfestingar ásamt grip til minn- ingar sem Dýrfinna Torfadóttir gullsmiður og skartgripahönnuð- ur gerði af þessu tilefni. Gripurinn er táknrænn um samheldni þeirra hjóna, Braga og Elínar Þorvalds- dóttur á lífstíðinni, og áhrifa þeirra á samfélagið á Akranesi. Bragi tók þar næstur til máls og lýsti þakklæti sínu í garð bæjar- stjórnar og Skagamanna allra. Fór hann yfir atvinnusögu sína og líf þeirra hjóna á Akranesi. Halldóra Jónsdóttir bæjarbókavörður á Bóka- safni Akraness tók næst til máls og færði Braga hamingjuóskir með nafnbótina en Halldóra og Bragi eiga góðan vinskap í gegnum bók- menntir og má nánast fullyrða að Bókasafn Akraness sé annað lög- heimili Braga. Óskar Þór Þráins- son upplýsingafræðingur og útgef- andi hjá emma.is flutti næst erindi sem fjallaði um nútíma prenttækni og síðastur á mælendaskrá var Jak- ob Þór Einarsson leikari sem las úr safni Braga við góðar undirtektir. Jónína Erna Arnardóttir og Hrefna Berg fluttu tónverk og yngri hópur þjóðlagasveitarinnar flutti í kjölfar- ið verk undir leiðsögn Hrefnu Berg. Að dagskrá lokinni var boðið upp á veitingar. mm Athöfn þar sem Bragi Þórðarson var gerður að heiðursborgara Bragi og Elín ásamt sjö bæjarfulltrúum og bæjarstjóra. F.v. Sævar Freyr Þráinsson, Elsa Lára Arnardóttir, Gerður J Jóhannsdóttir, Valgarður Lyngdal Jónsson, Bragi Þórðarson, Elín Þorvaldsdóttir, Sandra Margrét Sigurjónsdóttir, Rakel Óskarsdóttir, Einar Brandsson og Ólafur Adolfsson. Ljósm. Myndsmiðjan. Vinna við niðurrif gamla tengi- virkisins við Þjóðbraut 44 á Akra- nesi hófst í síðustu viku. Það var Work North ehf. sem annast nið- urrif og förgun hússins fyrir Veitur ohf. „Verkið hófst föstudaginn 26. október og á að verða að fullu lok- ið föstudaginn 14. desember,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upp- lýsingafulltrúi Veitna, í samtali við Skessuhorn. Gamla tengivirkið við Þjóðbraut 44 hefur staðið ónotað frá því fram- kvæmdum við nýtt tengivirki Veitna og Landsnets lauk vorið 2016. Nýja tengivirkið var síðan formlega vígt í janúar á síðasta ári. Svæðið þar sem gamla tengivirkið stendur er hugs- að sem íbúabyggð til framtíðar í að- alskipulagi Akraneskaupstaðar, eins og nærliggjandi svæði. kgk Gamla tengivirkið á Akranesi rifið Þak hússins rifið síðdegis á þriðjudaginn í síðustu viku. Ljósm. kgk. Ýmsar framkvæmdir í gangi í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli Aðgengi að Djúpalónssandi verður bætt, en meðfylgjandi mynd sýnir þá óreiðu sem þar getur skapast vegna fjölda gesta. Framkvæmdir við stækkun bílastæða á Malarrifi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.