Skessuhorn - 07.11.2018, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2018 11
Fjáröflunartónleikar vegna stofnunar
Minningarsjóðs Heimis Klemenzsonar
*Minningarsjóður*
Heimis Klemenzsonar
reikn: 0370-13-906663
kt: 160854-7669
Reykholtskirkju
Föstudaginn 16. nóvember kl. 20:30
Húsið opnar kl. 20:00
Miðaverð er 4.000 kr.
1.000 kr. fyrir 16 ára og yngri
Allur ágóði tónleikanna rennur í
minningarsjóð Heimis Klemenzsonar
sem mun styrkja borgfirzka
tónlistarmenn til tónlistarnáms
Karlakórinn Söngbræður
Soffía Björg
Emma Eyþórsdóttir
Agnes Björgvinsdóttir
Heiðmar og Jakob
Borgarfjarðardætur
Halli Reynis
Eyrún og Tinna
Viðar og Barbara
Ásta Marý
Uppsveitin
Jónína Erna
Síðastliðið vor var stofnuð deild
innan Félags kvenna í atvinnulíf-
inu á Vesturlandi. Stofn- og kynn-
ingarfundur var haldinn í Stykkis-
hólmi í apríl og í maí var haldinn
fyrsti félagsfundurinn í Landnáms-
setrinu í Borgarnesi. Í tilkynningu
frá félaginu kemur fram að spenn-
andi viðburðir eru framundan hjá
konum í atvinnulífi Vesturlands.
„Vetrarstarfið er komið á fullt
og verður blásið til fyrsta viðburð-
ar 10. nóvember næstkomandi á
Akranesi. Aðventufundur verður
haldinn á Hellissandi og drög að
dagskrá ársins 2019 eru í vinnslu.
Starfssvæði félagsins nær frá Akra-
nesi/Hvalfirði um Borgarbyggð,
Snæfellsnes og inn í Dali. Við-
burðir verða haldnir á öllu svæð-
inu.“ Um 40 konur eru skráðar í
FKA Vesturland og fjölgar stöð-
ugt. „Við það að ganga í félagið
býðst margskonar fræðsla fyr-
ir konur í atvinnulífinu en FKA
miðlar ýmsum fundum yfir net-
ið auk þess sem allar FKA konur,
hvar á landinu sem þær eru, eru
velkomnar á alla viðburði félagsins
og landsdeilda þess. FKA Vestur-
land er þannig kjörinn vettvang-
ur til að efla tengslanet og kynn-
ast konum. Konur á Vesturlandi
sem reka fyrirtæki, eru eigendur,
leiðtogar eða stjórnendur eru vel-
komnar í FKA Vesturland.“
Fyrsti viðburður vetrarins er
heimsókn á Akranes laugardag-
inn 10. nóvember nk. „Atvinnu-
líf blómstrar á Akranesi og þar
var nýlega stofnaður félagsskapur-
inn Jókur sem konur á Skaganum
halda úti. Auk þess að vera félags-
konur í Jókum eru margar þeirra
einnig félagskonur í FKA Vestur-
land. Jókur hafa undirbúið spenn-
andi dag á Akranesi fyrir konur í
atvinnulífinu. Dagskráin hefst á
Akranesi klukkan 14:00 og verð-
ur boðið upp á rútuferðir frá Snæ-
fellsnesi ef næg þátttaka verður.
Nokkrar Jókur munu kynna fyr-
irtæki sín og byrjum við á jóla-
markaði á tjaldstæðinu á Akranesi,
heimsækjum Ritara ehf, þar sem
meðal annars verður boðið upp á
hugvekju um núvitund. Kíkjum í
Antik, gamla muni og allskonar,
heimsækjum vinnustofur og að
lokum verður kíkt við á Café Kaju
sem er kaffihús með lífrænar vörur
á Akranesi.“
Skráning fer fram á viðburði á
fésbókarsíðu hjá Jókum og FKA
Vesturland. Hlökkum til að sjá sem
flestar FKA konur og Jókur þar
sem við fáum tækifæri til að kynn-
ast og deila reynslu af stjórnun og
fyrirtækjarekstri,“ segir í tilkynn-
ingu. mm
Frá Félagi kvenna í
atvinnulífinu á Vesturlandi
Svipmynd frá heimsókn FKA Vesturland í Landnámssetrið í Borgarnesi sl. vor.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Kjötiðnaðarmaður!
Sláturhús Vesturlands ehf. er að byggja upp starfsemi
á sviði slátrunar og kjötvinnslu í Borgarnesi. Fyrirtækið
leggur áherslu á sérstöðu, upprunamerktar gæðavörur
og þjónustu við bændur sem selja afurðir sínar sjálfir.
Okkur vantar öflugan starfsmann með reynslu og
þekkingu á sviði kjötvinnslu til að annast þann þátt
starfseminnar og þróa og þroska nýja hluti með
okkur, bændunum og viðskiptavinum okkar.
Umsóknarfrestur til 15. nóvember.
Umsóknir óskast sendar á netfangið
hjardarholt@vesturland.is eða í pósti á Sláturhús
Vesturlands ehf. Brákarbraut 19, 310 Borgarnes.
Nánari upplýsingar gefur
Þorvaldur í síma 853-6464
www.skessuhorn.is