Skessuhorn - 07.11.2018, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2018 13
Norræn bókmenntavika
– Dagur íslenskrar tungu
Snorrastofa í Reykholti
12.–18. nóvember 2018
12. nóvember, mánudagur kl. 10
Morgunstund með börnum í bókhlöðunni
Ingibjörg Kristleifsdóttir les fyrir yngstu
nemendur á Kleppjárnsreykjum, sem koma
í heimsókn
13. nóvember, þriðjudagur kl. 20:30
Fyrirlestrar í héraði
Lestur af pappír og skjá
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufr. flytur
Í fyrirlestrinum er farið yfir nýjar
rannsóknarniðurstöður, bæði innlendar
og erlendar um samanburð lesmiðla og
áhrif snjalltækja á lestur og einbeitingu.
Niðurstöðurnar hafa vakið athygli og gefa
skemmtilega innsýn í yfirstandandi þróun.
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
15. nóvember, fimmtudagur kl. 20
Rökkurstund með fullorðnum
í Prjóna-bóka-kaffi
Sigurður Halldórsson les úr bókinni Íslenskir
kóngar eftir Einar Má Guðmundsson
Norræn bókmenntavika er verkefni á vegum
Sambands Norrænu félaganna sem leitast
við að efla lestrargleði og breiða út norrænar
bókmenntir á Norðurlöndunum
og nágrannalöndum.
Haukur Arnþórsson
Sigurður HalldórssonIngibjörg Kristleifsdóttir
Sigríður Steinunn Jónsdóttir hefur
verið ráðin verkefnastjóri atvinnu-
mála hjá Akraneskaupstað. „Ég er
mjög ánægð með ráðninguna og
spennt að vinna t.d. með Sævari
Frey bæjarstjóra,“ segir Sigríður
Steinunn í samtali við Skessuhorn.
Alls bárust tuttugu og sjö umsókn-
ir um starfið. Sigríður Steinunn
mun hefja störf 1. desember næst-
komandi. Hún lauk við meistara-
gráðu sína í rekstrarverkfræði í júní
2016 frá Danmarks Tekniske Uni-
versitet. Eftir það starfaði hún hjá
Uno-x Smøreolie sem verkefnaráð-
gjafi og síðan hjá Falck Global Ass-
istance, fyrirtæki sem sérhæfir sig í
tryggingum. Verkefni hennar þar
voru meðal annars bestun alþjóð-
legu virðiskeðjunnar og endur-
skoðun ferla með áherslu á kostnað
og verðlagningu. Nú síðast starfaði
Sigríður í tímabundnum verkefn-
um fyrir Kaupfélag Skagfirðinga
sem fjölluðu um fýsileika fjárfest-
ingakosta. Sigríður Steinunn bjó í
fjögur ár í Danmörku og er nýlega
flutt aftur til Íslands.
Sigríður Steinunn getur aðspurð
ekki svarað hvaða áherslur verða í
nýju starfi verkefnastjóra atvinnu-
mála á Akranesi, segir ótímabært að
tjá sig um það. „Það verður byrjað
á að móta stefnu í atvinnumálum,“
segir hún í samtali við Skessuhorn.
klj
Verkefnastjóri atvinnumála
hjá Akraneskaupstað
Sigríður Steinunn Jónsdóttir er nýráðinn verkefnastjóri atvinnumála hjá Akranes-
kaupstað og hefur störf 1. desember. Ljósm. akranes.is
Sveitarstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti nýverið stefnu í íþrótta-
og tómstundamálum fyrir árin
2018-2025. Þar má finna fram-
tíðarsýn, helstu markmið og
áherslur í málaflokknum. „Skýr
stefna tryggir að allir sem starfa
að íþrótta- og tómstundamál-
um stefni í sömu átt með það að
markmiði að efla íþrótta- og tóm-
stundastarf í sveitarfélaginu. Fjöl-
breytt val í íþrótta- og tómstunda-
starfi er mikilvægt hverju sam-
félagi. Borgarbyggð hefur gegn-
um árin stutt við uppbyggingu
íþrótta- og tómstundaaðstöðu í
sveitarfélaginu auk aðstöðu til
ýmiss konar útivistar. Þá á sveitar-
félagið á og rekur þrjú íþróttahús
og fjórar sundlaugar. Gott sam-
starf er við Ungmennasamband
Borgarfjarðar (UMSB) sem tók
virkan þátt í mótun stefnunnar,“
segir í tilkynningu.
Íþrótta- og tómstundastefn-
an var unnin á grunni tillagna og
athugasemda sem komu fram á
opnum íbúafundi um íþrótta- og
tómstundamál sem stýrihópurinn
stóð fyrir vorið 2018 og í samtöl-
um við ýmsa hagsmunaaðila, m.a.
nemendur í grunnskólum Borgar-
byggðar. Hægt er að lesa stefnuna
á upplýsingasíðu Borgarbyggðar.
mm/ Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Samþykktu stefnu í íþrótta-
og tómstundamálum
Kennsluaðferðir FSN eru verkefnamiðaðar og námsmatið leiðsagnarmat.
Fjarnemendum stendur til boða að mæta í tíma með dagskólanemendum í
Grundarfirði eða á Patreksfirði. Kennarar aðstoða nemendur m.a. á Skype og í tölvupósti.
Nemendum yngri en 18 ára stendur ekki til boða að gerast fjarnemendur við FSN.
Allar frekari upplýsingar fást hjá námsráðgjafa agnes@fsn.is og
aðstoðarskólameistara solrun@fsn.is og í síma 4308400.
Skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Dagskóli
Innritun fyrir nám í dagskóla á
vorönn 2019 fer fram rafrænt á
menntagatt.is eða á skrifstofu
skólans dagana 1.-30. nóvember.
Fjarnám
Opið er fyrir umsóknir í fjarnám
dagana 7.-30. nóvember.
Námsbrautir í boði
Stúdentsbrautir:
Félags- og hugvísindabraut•
Náttúru- og raunvísindabraut•
Opin braut til stúdentsprófs•
Framhaldsskólabrautir
Framhaldsskólabraut 1•
Framhaldsskólabraut 2•
Starfsbraut
Innritun á vorönn 2019
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is