Skessuhorn - 07.11.2018, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 201814
Útibú Fiskmarkaðs Snæfellsbæj-
ar á Akranesi var opnað að nýju 10.
október síðastliðinn, en þá hafði
verið lokað frá því í septembermán-
uði. Böðvar Ingvason hefur umsjón
með öllum daglegum rekstri mark-
aðarins. Sér til halds og trausts hef-
ur hann syni sína, þá Steinþór, Sig-
urð og Jón. Þá mun Bjarni Bragason
á Eskey hlaupa undir bagga ef þörf
krefur.
„Við munum kappkosta að veita
góða þjónustu. Akranes liggur vel
við fiskimiðum, hvort sem róið er
á línu, net, handfæri eða grásleppu.
Héðan er mjög gott að róa á strand-
veiðivertíðinni, sérstaklega í maí.
Eftir það er aðeins lengra á miðin
en samt styttra en víðast hvar annars
staðar,“ segir Böðvar í samtali við
Skessuhorn.
„Hér er líka öll sú þjónusta sem
sjómenn þarfnast á nær öllum svið-
um. Á efri hæð fiskmarkaðarins er
aðstaða sem stendur áhöfnum að-
komubáta til boða, því við viljum
endilega fá fleiri báta hingað. Sömu-
leiðis get ég útvegað beitningarað-
stöðu með fjórum plássum, ásamt
frystigámi og 40 bölum og rafmagns
beituskurðarhnífi. Einnig er ég til-
búinn til að leigja Mar AK-74, ef
einhver hefur áhuga á að reyna sig
við útgerð,“ segir Böðvar í samtali
við Skessuhorn fyrir helgi.
Aðspurður segist hann ekki endi-
lega hafa ætlað sér að taka við fisk-
markaðnum. „En ég var búinn að
gefa það út að ég væri tilbúinn að
taka þetta að mér ef enginn myndi
sækja um starfið. Það fór svo og við
opnuðum fyrir þremur vikum síðan,
en þá hafði verið lokað frá 1. septem-
ber,“ segir hann. „Þetta hefur bara
gengið vel en er auðvitað ekki fullt
starf á þessum tíma ársins. Núna eru
aðeins fjórir bátar sem landa á Akra-
nesi og svo fjölgar þeim þegar kem-
ur fram á háannatímann. Þá getur
starfið í fiskmarkaðnum kallað á tvo
menn,“ segir Böðvar.
Að ná sér eftir veikindi
Hann segir það henta sér vel að
starfa í hlutastarfi hjá fiskmark-
aðnum. Böðvar hefur verið til sjós
meira og minna alla ævi, en er nú
að ná sér eftir erfið veikindi. „Í ágúst
2016, fimmtudaginn fyrir verslunar-
mannahelgi, var ég að vinna í garð-
inum heima og fannst ég eitthvað
þreyttur og orkulaus. Ég hringdi á
sjúkrahúsið gat fengið tíma hjá lækni
eftir tvær vikur eða daginn eftir hjá
hjúkrunarfræðingi. Hulda Gests-
dóttir tók á móti mér kl. 15:00 og
ég sagði henni hvernig var, ég væri
þreyttur og orkulaus og hefði lést
um fimm kíló. Hún ræsti út blóð-
rannsóknardeildina, sem vanalega
lokar kl. 14:00 og sendi mig í blóð-
prufu. Klukkan 17:30 fékk ég síðan
símtal frá lækni sem sagði mér að ég
væri með bráðahvítblæði og þyrfti
að fara strax suður á bráðamóttöku
Landspítalans. Þar tóku á móti mér
Brynjar Viðarsson læknir og hjúkr-
unarfræðingur sem heitir Elsa.
Brynjar er enn minn læknir og Elsa
var minn hjúkrunarfræðingur með-
an ég lá inni á 11G, blóðsjúkdóma-
deild. Fyrsta lyfjameðferðin varði
í einn mánuð og síðan var lyfja-
meðferð í hverjum mánuði. Alltaf
nema einu sinni þurfti ég að leggj-
ast inn á spítalann vegna sýkinga,“
segir Böðvar. „En mér leið alltaf
vel á spítalanum og það var ekkert
til að kvíða fyrir að leggjast þar inn,
enda umönnunin og aðbúnaðurinn
frábær. Manni var bara vafið inn í
bómull og passað upp á mann í einu
og öllu,“ bætir hann við. „Þann 5.
febrúar var mér síðan flogið til Sví-
þjóðar í mergskipti ásamt konunni
minni, Jónínu Steinþórsdóttur. Það-
an er sömu sögu að segja. Þar tók á
móti okkur hjúkrunarfræðingur sem
heitir Inga. Hún hélt utan um okk-
ur allan tímann eftir komuna til Sví-
þjóðar, tók á móti okkur á flugvell-
inum og fór með okkur í viðtölin.
Fyrst var ég einn mánuð á spítalan-
um og síðan mætti ég tvisvar í viku
til læknis á spítalanum næstu tvo
mánuði, en á þeim tíma vorum við á
hóteli. Þetta var allt frítt og við feng-
um meira að segja dagpeninga. Síð-
an kom ég heim 5. maí 2017 og við
tók eftirfylgni á göngudeild og síðan
sjúkraþjálfun,“ útskýrir hann. „Hvar
sem ég kom í mínum veikindum þá
upplifði ég aldrei annað en yndislegt
viðmót og framúrskarandi þjónustu.
Fyrir það er ég ólýsanlega þakklát-
ur,“ segir Böðvar.
Framtíðin óráðin
Á meðan veikindunum stóð hugsaði
Böðvar alltaf með sér að hann ætl-
aði að sigrast á þeim og komast aft-
ur á sjóinn. „Ég ætlaði mér alltaf að
læknast og byrja að róa aftur, það
var eitt af því sem kom mér í gegn-
um þetta,“ segir Böðvar en bæt-
ir því við að hann hafi lent í vand-
ræðum með veiðiheimildirnar, 40
þorskígildistonn, þegar hann veikt-
ist. „Svokölluð veiðiskylda segir til
um að menn verði að veiða fyrir að
lágmarki helming af þeim heimild-
um sem þeir hafa á hverju fiskveiði-
ári, ellegar missa allar heimildirnar.
Ég hafði samband við Landssam-
band smábátasjómanna og bað þá
um að hjálpa mér að fá eftir und-
anþágu frá veiðiskyldunni frá Fiski-
stofu og ráðuneytinu. En það var
ekki hægt, sama hvað var reynt. Að
lokum varð ég að bjarga málunum
með öðrum hætti. Annars hefði ég
þurft að selja ævistarfið og minn
lífeyri sem er bundinn í útgerð-
inni án þess að geta treyst á að fá
almennilegt verð fyrir,“ segir hann.
„En þetta olli mér áhyggjum, van-
líðan og hugarangri því þegar fólk
er að berjast við lífshættulega sjúk-
dóma þá er það fullt starf. Maður
er ekki í ástandi til að taka stórar
ákvarðanir og enn síður til að róa
til fiskjar eða finna menn til að róa
fyrir sig og stýra útgerð úr sjúkra-
rúminu. Það bara gengur ekki upp.
Það verða að vera undanþágur frá
veiðiskyldunni,“ segir Böðvar. „En
þessa dagana einbeiti ég mér að því
að vinna upp þrek. Hvort ég fer aft-
ur á sjóinn verður bara að koma í
ljós. Aðstæðurnar hafa breyst tölu-
vert frá því ég veiktist. Öll gjöld og
álögur hafa hækkað á meðan fisk-
verð hefur lækkað. Veiðigjöldin eru
21,69 krónur fyrir kíló af þorski og
25,16 krónur fyrir kílóið af ýsu. Það
er allt of mikið. Ég náði oft að skila
um tíu prósentum í afgang þegar
ég var að veiða, en núna eru veiði-
gjöldin meira en tíu prósent af fisk-
verðinu. Það má segja að þar með
hafi smábátaútgerðinni verið veitt
náðarhöggið,“ segir hann. „Það
verður þess vegna bara að koma í
ljós hvort ég legg í að fara á sjóinn
aftur. Þangað til held ég áfram hjá
fiskmarkaðnum. Það er skemmti-
legt starf og hentar mér vel í dag,“
segir Böðvar Ingvason að endingu.
kgk
Fiskmarkaðurinn á Akranesi var
opnaður að nýju í síðasta mánuði
Böðvar Ingvason annast daglegan rekstur markaðarins
Böðvar Ingvason við bát sinn, Emilíu AK. Hann hefur verið til sjós meira og minna alla sína tíð en hefur nú umsjón með fiskmarkaðnum á Akranesi.
Böðvar við beitningu ásamt tveimur sonum sínum, þeim Sigurði og Steinþóri.
Ljósm. Steindór Oliversson.
Útibú Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar á Akranesi er til húsa að Faxabraut 5.
Mar AK er annar bátur í eigu Böðvars. Hann kveðst tilbúinn að leigja hann út, ef
einhver hefur áhuga á að reyna sig við útgerð.