Skessuhorn - 14.11.2018, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 201826
Í tilefni af þjóðhátíðardegi Pól-
lands og 100 ára sjálfstæði þjóð-
arinnar var haldin pólsk menning-
arhátíð í Samkomuhúsi Grundar-
fjarðar laugardaginn 11. nóvem-
ber. Það voru Grundarfjarðarbær
og pólskir íbúar í Grundarfirði
sem stóðu fyrir hátíðinni en þar
var sýning um Pólland, pólsk tón-
list fékk að hljóma, andlitsmálning
fyrir börn og pólskir þjóðarrétt-
ir voru á boðstólnum. Það voru
margir sem lögðu leið sína á há-
tíðina sem heppnaðist afar vel.
tfk
Það er nokkuð ljóst að þegar við
horfum til framtíðar þá erum við
öll sammála um að íþróttaaðstaða
er nauðsynleg fyrir unga jafnt sem
aldna í Dalabyggð. Við megum
samt ekki gleyma því að áhuga-
málin geta verið fleiri en íþróttir
og passa uppá að gera ávallt okkar
besta til þess að muna eftir öllum.
Við ættum að hugsa stórt til
framtíðar og taka frá lóð í nýju
deiliskipulagi fyrir íþróttahús af
flottustu gerð ásamt sundlaug.
Staðan í dag er þannig að ef við
ætlum að byggja og reka íþrótta-
hús í dag þá munum við ekki geta
lagt af mörkum gagnvart öðr-
um áhugamálum eins og t.d. að
reka tónlistarskóla en tónlistar-
nám hefur ekki verið í boði fyrir
eldra fólk en grunnskólanemend-
ur. Hestamennska (sem er reynd-
ar líka íþrótt) en hestamannafélag-
ið Glaður er með hvorki meira né
minna en 154 félaga og telst stórt í
ekki stærra samfélagi.
Ég hef verið að hugsa þessi mál
mikið út frá því hvernig við getum
gert eitthvað fyrir alla eða allavega
sem flesta.
Gætum við byrjað á því að taka
þá innviði sem þegar eru fyrir
hendi og reyna að bæta þá og að-
laga að þörfinni sem við stöndum
frammi fyrir í dag?
Getum við nýtt Dalabúð betur?
Getum við sett dúk sem hentar til
íþróttaiðkunar á gólfið í salnum
í Dalabúð, nýtt kjallarann betur
og komið upp viðunandi aðstöðu
búningsklefa og lagað þetta hús-
næði betur að þörfum okkar þar til
við höfum efni á að byggja og reka
íþróttahús í Búðardal.
Getur Dalabyggð orðið hluthafi
í Nesodda gegn því að einangra
Nesoddahöllina og setja upp sal-
ernisaðstöðu?
Ef við gerðum það þá sé ég fyr-
ir mér að þar væri hægt að gera
ýmislegt fleira en gert er á hest-
baki. Til dæmis væri hægt að vera
með frjálsíþróttaæfingar, fótbolta,
strandblak, skátastarf, eldri borg-
arar gætu gengið innan dyra ýmist
í Nesodda eða Dalabúð, það mætti
jafnvel halda tónlistarviðburði og
ótal margt annað sem félögum og
einstaklingum dettur í hug.
Ennþá er ekki búið að ákveða
hvaða umræðuefni verða tekin fyr-
ir á íbúaþinginu sem ákveðið hefur
verið að halda.
Hvort sem þú ert sammála þess-
um hugmyndum eða bara alls ekki,
væri ekki bara gott að nota íbúa-
þing til að finna lausn á vöntun á
íþróttaaðstöðu í Búðardal?
Ragnheiður Pálsdóttir
Höf. er í sveitarstjórn
Dalabyggðar.
Hugmynd sem skapaðist
eftir umræður á íbúafundi
6. nóvember 2018
Pennagrein
Laugardaginn 17. nóvember nk.
verða sannkallaðir stórtónleikar í
Vinaminni á Akranesi. Þar koma
fram þau Kristinn Sigmunds-
son bassasöngvari og Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari.
Á efnisskránni eru meðal annars
ljóðasöngvar eftir Robert Schu-
mann og Franz Schubert, ítalskar
antik-aríur og íslensk sönglög eft-
ir Atla Heimi Sveinsson. Aðgangs-
eyrir er kr. 3.000 en Kalmansvin-
ir greiða kr. 2.500. Miðasala er við
inngang en hægt er að kaupa miða
í forsölu í Vinaminni, föstudaginn
16. nóvember, milli kl. 10 og 16.
Það er listafélagið Kalman sem
stendur fyrir tónleikunum sem
hefjast kl. 16.
-fréttatilkynning
Kristinn og Anna Guðný
á tónleikum í Vinaminni
Pennagrein
Í bókun meirihluta Borgarbyggðar
á sveitarstjórnarfundi 8. nóvember
s.l. koma fram þau rök sem lögð eru
til grundvallar viðmiðunarreglna
um snjómokstur í Borgarbyggð.
Það hefur ekki gengið nægilega vel
að anna snjómokstri í dreifbýli þeg-
ar að þörfin hefur verið mikil og því
er nauðsynlegt að skerpa á hlutverki
sveitarfélagsins er kemur að snjó-
mokstri. Það er fyrst og fremst að
sinna lögboðinni skyldu sinni eins
og að tryggja aðgengi að skóla, að
sorphirða geti átt sér stað og hægt
sé að sinna félagsþjónustu.
Markmið viðmiðunar-
reglna og tilurð
breytinga
Árið 2016 voru gerðar viðmiðun-
arreglur um snjómokstur í sveit-
arfélaginu og hafa þær verið að-
gengilegar á heimasíðu Borgar-
byggðar. Upprunalega markmiðið
með viðmiðunarreglum um snjó-
mokstur var tilraun til þess að sam-
ræma þjónustu í sveitarfélaginu
og ítreka þjónustu snjómoksturs-
fulltrúa. Einnig var leitast við að
koma skipulagi á fyrirkomulagið til
að skýra boðleiðirnar og að íbúum
væri ljóst, t.d. í hvern ætti að hringja
vegna snjómoksturs á viðkomandi
svæði en það eru snjómoksturs-
fulltrúar. Snjómokstursfulltrúar eru
aðilar á nærsvæði sem þekkja við-
komandi svæði vel. Þeirra hlutverk
er að kalla út snjómokstursverktaka
þegar þörf er á og vera í sambandi
við Vegagerðina þar sem um helm-
ingamokstur er að ræða.
Síðastliðið vor funduðu snjó-
mokstursfulltrúar í Borgarbyggð
með sveitarstjóra og verkefnastjóra
umhverfismála þar sem farið var
yfir reynslu vetrarins og ræddar
voru þær áskoranir sem blöstu við í
störfum þeirra. Sú staða var uppi að
snjómokstursfulltrúum bárust ótal
símhringingar frá ósáttum íbúum
sem töldu á sér brotið þar sem illa
væri staðið að snjómokstri. Raunin
var sú að erfitt var að anna mokstri
allsstaðar þegar að þörfin var hvað
mest. Sem dæmi má nefna símtöl
frá fyrirtækjum og íbúum sem ósk-
uðu eftir snjómokstri daglega heim
að húsi, auk krafna um mokstur á
plönum við heimahús og fyrirtæki.
Þessi reynsla varð til þess að ákveð-
ið var að skýra viðmiðunarreglur
um snjómokstur enn betur og skil-
greina nánar hvaða mokstri sveitar-
félaginu beri að sinna og hverjum
ekki. Skýra þurfti hvað fellur und-
ir lögbundna þjónustu á vegum
sveitarfélagsins og hvernig er hægt
að halda aðgengi óskertu að þeirri
þjónustu sem sveitarfélaginu ber að
sjá íbúum fyrir.
Málið hefur fengið töluverða um-
fjöllun inn í umhverfis,- skipulags-
og landbúnaðarnefnd nú á haust-
mánuðum þar sem allir kjörnir full-
trúar gátu komið með athugasemdir
og ábendingar varðandi fyrirliggj-
andi breytingar. Viðmiðunarregl-
urnar voru sendar inn til staðfest-
ingar sveitarstjórnar á októberfundi
en þaðan vísað aftur inn í byggðar-
ráð að beiðni fulltrúa Framsóknar-
flokks sem á ekki sæti í áðurnefndri
nefnd. Byggðarráð Borgarbyggðar
fjallaði sérstaklega um hvaða breyt-
ingar sveitarstjórnarfulltrúar vildu
að yrðu gerðar og brugðist var við
þeim. Þrátt fyrir þennan feril máls-
ins kusu framsóknarmenn á móti
reglunum þegar að þær komu fyrir
sveitarstjórn á síðasta fundi.
Jafnræði og
forgangsröðun
Gagnrýni framsóknarmanna lýtur að-
allega að því að mokstur vegna ein-
stakra atvinnugreina sé ekki getið í við-
miðunarreglum. Þau sjónarmið sem
ráða för við endurskoðun reglnanna
eru meðal annars að atvinnurekstur í
sveitarfélaginu er mjög fjölbreyttur og
ber sveitarfélaginu að gæta jafnræðis í
störfum sínum en því telur meirihlut-
inn að ekki sé stætt á því að hygla til-
teknum atvinnugreinum umfram aðr-
ar í viðmiðunarreglum sveitarfélagins.
Ef þjónusta ætti allan atvinnurekstur
með snjómokstri alla daga þá hefur
það umtalsverðan kostnaðarauka í för
með sér fyrir sveitarsjóð. Því eru sett-
ar reglur sem ganga jafnt yfir alla þar
sem lögbundnar skyldur sveitarfélags-
ins eru í forgrunni.
Varðandi mokstur í þéttbýli Borg-
arbyggðar þá er að sama skapi og í
dreifbýlinu skilgreint betur hvaða
mokstursleiðir það eru sem sveitar-
félaginu ber að sinna. Þar eru götur
flokkaðar niður og þeim forgangs-
raðað. Til dæmis eru húsagötur ekki
mokaðar nema að þær séu við það að
verða ófærar. Ekki eru mokuð bíla-
stæði hjá einstaklingum eða á vegum
einstakra fyrirtækja svo eitthvað sé
nefnt.
Þá er rétt að halda því til haga að
snjómokstur er mjög dýr þjónusta og
því er það bein skylda kjörinna full-
trúa að skilgreina vel hvernig að þjón-
ustunni er staðið og setja mörk þar
um. Markmið með settum viðmið-
unarreglum er að hafa yfirsýn og gæta
jafnræðis.
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir
Höfundur er formaður umhverfis,-
skipulags- og landbúnaðarnefndar í
Borgarbyggð.
Snjókorn í augum Framsóknarmanna?
Þjóðhátíðardegi Póllands
fagnað í Grundarfirði
Pólskir íbúar ásamt hluta af menningarnefnd Grundarfjarðarbæjar sem stóð að hátíðinni.
Andlitsmálningin var vinsæl meðal
yngri gesta á hátíðinni.
Þarna er verið að lita fána Póllands eftir kúnstarinnar reglum.