Skessuhorn - 14.11.2018, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2018 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Snæfell vann góðan sigur á bar-
áttuglöðu liði Breiðabliks, 80-69, í
áttundu umferð Domino‘s deildar
kvenna í körfuknattleik. Leikið var
í Stykkishólmi á sunnudagskvöld.
Bæði lið mættu ákveðin til leiks,
spiluðu hratt og voru tilbúin að
berjast. Breiðablik hafði heldur yf-
irhöndina fyrstu mínúturnar. Snæ-
fell komst yfir fyrir miðjan fyrsta
leikhluta og leiddi með ellefu stig-
um að honum loknum, 30-19.
Sá munur hélst meira og minna
óbreyttur út fyrri hálfleikinn og
raunar allan leikinn. Gestirnir
börðust og Snæfellskonur þurftu
að vera á tánum til að halda þeim í
skefjum. Staðan í hléinu var 49-39
fyrir Snæfell.
Snæfellskonur náðu aðeins að
bæta í forskotið nokkrum sinnum
í þriðja leikhluta en alltaf komu
Blikar til baka, minnkuðu mun-
inn í um það bil tíu stig. Að sama
skapi svaraði Snæfell alltaf fyrir
sig þegar Blikar reyndu að gera at-
lögu að forystunni. Snæfellskonur
eru mjög sterkar og voru einfald-
lega einu númeri of stórt fyrir gest-
ina. Þær héldu einbeitingunni all-
an tímann og sigurinn var í raun og
veru aldrei í hættu. Þær leiddu með
níu stigum eftir þriðja leikhluta og
sigruðu að lokum með ellefu stig-
um, 80-69.
Kristen McCarthy
var öflug að vanda á
báðum endum vall-
arins. Hún skoraði
21 stig, tók tólf frá-
köst, gaf tíu stoð-
sendingar og stal sjö
boltum. Gunnhildur
Gunnarsdóttir var
með 21 stig, Berg-
lind Gunnarsdóttir
15 stig, fimm fráköst
og fimm stoðsend-
ingar og Angelika
Kowalska var með
tíu stig og tíu frá-
köst.
Sanja Orazovic
skoraði 24 stig fyrir
Breiðablik, tók tíu
fráköst og gaf fimm
stoðsendingar. Kelly
Faris var með 24 stig
einnig og tólf frá-
köst og Ragnheiður
Björk Einarsdóttir
skoraði ellefu stig og
tók sex fráköst.
Snæfell trónir á
toppi deildarinnar með 14 stig eftir
átta leiki, tveimur stigum á undan
næstu liðum. Næsti leikur Snæfells
er einmitt toppslagur gegn Kefla-
vík, sem situr í öðru sæti, sunnu-
daginn 25. nóvember næstkom-
andi. Sá leikur fer fram suður með
sjó. kgk
Snæfell á toppnum eftir
sigur á Breiðabliki
Kristen McCarthy var öflug að vanda, bæði í vörn og
sókn. Ljósm. sá.
Snæfellingar mættu Selfyssingum á
útivelli í 1. deild karla í körfuknatt-
leik á laugardag. Eftir nokkuð jafnan
fyrri hálfleik datt botninn algerlega
úr leik Snæfells í þeim síðari og þeir
töpuðu að lokum stórt, 96-51.
Snæfellingar byrjuðu betur, skor-
uðu fyrstu fimm stig leiksins, höfðu
undirtökin lengst framan af fyrsta
leikhluta og leiddu að honum lokn-
um, 17-18. Heimamenn voru sterk-
ari í öðrum fjórðungi og tóku stjórn
leiksins smám saman í sínar hend-
ur. Þegar hálfleiksflautan gall leiddu
Selfyssingar með átta stigum, 43-35.
Það var síðan fátt um fína drætti
hjá Snæfelli eftir hléið. Liðið átti af-
leitan þriðja leikhluta þar sem það
skoraði aðeins sex stig. Á meðan settu
heimamenn 23 á töfluna og gerðu í
raun út um leikinn. Þeir höfðu 25
stiga forskot fyrir lokafjórðunginn,
66-41. Fjórði leikhluti Snæfells var
ekki mikið betri en sá fyrri. Þar skor-
uðu þeir aðeins tíu stig gegn 30 stig-
um heimamann sem unnu að lokum
stórt, 96-51.
Deandre Mason var eini leikmað-
ur Snæfells sem komst í tveggja stafa
tölu á stigatöflunni. Hann lauk leik
með 21 stig og níu fráköst.
Það var annað uppi á teningn-
um í liði Selfyssinga, þar sem fimm
skoruðu í tveggja stafa tölu. Snjólf-
ur Marel Stefánsson var stigahæstur
með 22 stig og tíu fráköst, Michael
Rodriguez skoraði 21 stig, tók fimm
fráköst og gaf 11 stoðsendingar, Ma-
ciek Klimaszewski var með 16 stig
og fimm fráköst, Armanis Kelmelis
13 stig og Hlynur Freyr Einarsson
ellefu.
Snæfell er án stiga á botni deild-
arinnar eftir fimm leiki, en á leik
til góða á Sindra sem jafnframt er
án stiga. Næst leikur Snæfell föstu-
daginn 16. nóvember næstkomandi
þegar liðið mætir Þór Ak. í Stykkis-
hólmi. kgk
Afleitur síðari hálf-
leikur Snæfells
Deandre Mason var eini leikmaður
Snæfells sem náði sér á strik í leiknum
gegn Selfyssingum. Ljósm. úr safni/ sá.
Körfuknattleikslið Grundarfjarðar
tók á móti Hrunamönnum laug-
ardaginn 10. nóvember. Gestirnir
mættu ákveðnari til leiks og höfðu
mikla yfirburði í leiknum. Heima-
menn sáu aldrei til sólar og sigldu
gestirnir hægt og sígandi lengra
og lengra framúr og endaði leik-
urinn með sigri Hrunamanna; 81
– 48. Um næstu helgi fara Grund-
firðingar á Hvammstanga til að
etja kappi við Kormák áður en þeir
taka á móti liði Vestra B í Grund-
arfirði miðvikudaginn 24. nóvem-
ber.
tfk
Hrun gegn Hrunamönnum
Skallagrímsmenn máttu sætta sig
við tap í kaflaskiptum leik gegn
Haukum. 82-80, þegar liðin mætt-
ust í sjöttu umferð Domino‘s deild-
ar karla. Leikið var í Hafnarfirði á
föstudagskvöld.
Borgnesingar byrjuðu leikinn af
krafti og voru mun sterkari allan
upphafsfjórðunginn. Þeir náðu mest
tólf stiga forskoti í stöðunni 10-22 en
leiddu með átta stigum eftir leikhlut-
ann, 18-26. Dæmið snerist síðan við í
öðrum fjórðungi. Haukar voru mjög
öflugir og ekki lengi að koma gera
forystu Skallagríms að engu. Þeir
komust síðan yfir um miðjan leik-
hlutann og leiddu með tíu stigum í
hálfleik, 46-36.
Skallagrímsmenn fóru mikinn í
upphafi síðari hálfleiks, skoruðu tólf
stig fyrstu þrjár mínúturnar á móti
aðeins tveimur stigum heimamanna
og jöfnuðu metin, 48-48. Þeir tóku
síðan forystuna og héldu henni þar
til Haukar jöfnuðu í 67-67 fyrir loka-
fjórðunginn. Sá var heldur betur
spennandi. Liðin skipust á að skora
og hart var barist. Þegar þrjár mín-
útur lifðu leiks leiddu Haukar með
82 stigum gegn 80, en þá var eins og
lok hefði verið sett á báðar körfurnar
því hvorugu liðinu tókst að skora eft-
ir það. Skallagrímsmenn fengu tæki-
færi til að jafna eða sigra en höfðu
ekki erindi sem erfiði. Leiknum lauk
því með sigri Hauka, 82-80.
Aundre Jackson skoraði 23 stig fyr-
ir Skallagrím, tók átta fráköst og gaf
sex stoðsendingar. Björgvin Hafþór
Ríkharðsson var með 23 stig einnig
og sex fráköst og Hjálmar Stefánsson
skoraði 18 stig, tók sex fráköst og gaf
átta stoðsendingar.
Hilmar Smári Henningsson skor-
aði 23 stig fyrri heimamenn og gaf
sjö stoðsendingar, Hjálmar Stefáns-
son var með 18 stig og sjö fráköst og
Marques Oliver skoraði 16 stig og
tók sjö fráköst.
Skallagrímur situr í áttunda sæti
deildarinnar með fjögur stig eftir
sex leiki, jafn mörg og Grindavík í
sætinu fyrir neðan en tveimur stig-
um á eftir næstu liðum. Keflvíkingar
eru næstu andstæðingar Skallagríms.
Liðin mætast í Borgarnesi á morgun,
fimmtudaginn 15. nóvember.
kgk
Tap í kaflaskiptum leik
Hjálmar Stefánsson átti góðan leik fyrir Skallagrím. Ljósm. Skallagrímur.
Skallagrímskonur máttu sætta sig við
tap gegn Val þegar liðin mættust í
áttundu umferð Domino‘s deildar
kvenna í Borgarnesi á sunnudag. Eft-
ir að hafa verið öflugri framan af leik
misstu Skallagrímskonur flugið í síð-
ari hálfleik og töpuðu að lokum með
74 stigum gegn 96.
Borgnesingar byrjuðu leikinn af
miklum krafti, léku þétta vörn og
héldu Val í aðeins tólf stigum fyrstu
sex mínúturnar. Eftir það tók Vals-
liðið við sér og Skallagrímur missti
einbeitinguna í vörninni. Staðan að
loknum fyrsta leikhluta var 29-25
fyrir Skallagrím. Mikið jafnræði var
með liðunum framan af öðrum fjórð-
ungi. Valur tók forystuna með góðri
rispu eftir hann miðjan og leiddi
mest með átta stigum. En Skalla-
grímskonur enduðu fyrri hálfleikinn
af krafti og minnkuðu muninn í þrjú
stig fyrir hlé, 46-49.
Gestirnir settu allt í botn strax í
upphafi síðari hálfleiks en Skalla-
grímskonur áttu engin svör. Eins og
hendi væri veifað voru Skallagríms-
konur komnar 16 stigum yfir og þær
höfðu þægilegt forskot fyrir loka-
fjórðunginn, 62-76. Skallagríms-
konur minnkuðu muninn niður í
niú stig snemma í fjórða leikhluta
en nær komust þær ekki. Gestirn-
ir spiluðu góða vörn og léku vel í
sókninni það sem eftir lifði leiks og
sigruðu, 74-96.
Maja Michalska var stigahæst í liði
Skallagríms með 18 stig og átta frá-
köst að auki. Shequila Joseph var með
17 stig, sex fráköst og tólf stoðsend-
ingar, Bryesha Blair ellefu stig og sex
fráköst og þær Árnína Lena Rúnars-
dóttir og Sigrún Sjöfn Ámundadótt-
ir skoruðu ellefu stig hvor.
Heather Butler átti afbragðsgóð-
an leik fyrir Val, skoraði 25 stig, tók
sex fráköst og gaf sjö stoðsendingar.
Hallveig Jónsdóttir var með 18 stig,
fimm fráköst og sjö stoðsendingar,
Dagbjörg Dögg Karlsdóttir 15 stig
og Bergþóra Holton Tómasdóttir
skoraði 13 stig.
Skallagrímur situr í sjötta sæti
deildarinanr með sex stig eftir leiki
helgarinnar, jafn mörg stig og Valur í
sætinu fyrir ofan en tveimur stigum á
undan Haukum. Næst leikur Skalla-
grímur sunnudaginn 25. nóvember
næstkomandi, þegar liðið heimsækir
Breiðablik. kgk
Misstu dampinn í
síðari hálfleik
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir fer gegn
sterkri vörn Valskvenna.
Ljósm. Skallagrímur.