Heimsmynd - 01.06.1990, Qupperneq 69
eiginkona hans, Sigrún Huld Jónsdóttir,
ásamt börnunum Guðmundi
Hannessyni og Guðbjörgu
Snorradóttur.
Hulda Pálsdóttir
á Höllustöðum.
Árdís Pálsdóttir.
frægur maður. Þegar vinstri stjórnin tók við árið 1956 var hann
skipaður í nefnd til að kanna húsnæðismál og álit hennar varð
aðalkosningamál í bæjarstjórnarkosningum 1958 er sjálfstæðis-
menn unnu stórsigur í Reykjavík. Hannes taldi sig órétti beitt-
an og eftir kosningar kom frá honum Gula bókin til að skýra
málin og hrekja ósannindi Sjálfstæðisflokksins eins og Hannes
kallaði. Andrés Kristjánsson skráði æviminningar Hannesar
og komu þær úti ári eftir dauða Hannesar undir nafninu
Vopnaskipti og vinakynni.
Hannes Pálsson frá Undirfelli var þrígiftur. Fyrsta kona
hans var Hólmfríður Steinunn Jónsdóttir og eignuðust þau
fimm börn. Önnur
kona hans var Kristín
Dagmar Þorstcinsdóttir
en þau voru barnlaus.
Þriðja kona hans var
Sigrún Huld Jónsdóttir
og eignuðust þau einn
son. Börn Hannesar
eru þessi:
SYSTKININ FRÁ
UNDIRFELLI -
HANNES
HÓLMSTEINN
a. Páll Hannesson (f.
1925) byggingaverk-
fræðingur í Kópavogi.
Hann vann framan af á Keflavíkurflugvelli, meðal annars hjá
Regin hf. og íslenskum aðalverktökum. Hann var um hríð
bæjarverkfræðingur í Kópavogi en hefur að öðru leyti starfað
sjálfstætt. Þá hefur hann verið í forystu fyrir ýmis verktakafyr-
irtæki svo sem Þórisós sem hann var framkvæmdastjóri fyrir
og síðan stjórnarformaður. Hann var einn af stofnendum
Dagblaðsins 1978 og sat þar í stjórn og var formaður Samtaka
íslenskra verktaka um skeið. Kona hans er Hjördís Péturs-
dóttir og eru börn þeirra Póranna Pálsdóttir (f. 1951) veður-
fræðingur sem nú upp á síðkastið sést oft í veðurfréttum sjón-
varpsins, gift Þorsteini Ólafssyni dýralækni, og Hólmfríður
Guðrún Pálsdóttir (f. 1955) tölvufræðingur, gift Guðmundi
Skúla Stefánssyni kennara.
b. Ásta Hannesdóttir (f. 1926) kennari og formaður Félags
framsóknarkvenna í Kópavogi. Hún er gift Gissuri Jörundi
Kristinssyni trésmið, framkvæmdastjóra Verkamannabústaða
í Kópavogi. Þau hjón eru ekki í sama flokki því að hann hefur
verið flokksbundinn alþýðubandalagsmaður. Börn þeirra eru:
Hannes Hólmsteinn Gissurarson (f. 1953) lektor í stjórnmála-
fræðum við Háskóla íslands. Hann er þekktasti talsmaður
frjálshyggjumanna hér á landi um þessar mundir og hefur þar
farið aðrar brautir en ættmenn hans flestir en sver sig í ættina
fyrir glaðbeitta bardagagleði og hvatvísi. Hann varð doktor
frá Oxford og hefur verið framkvæmdastjóri Stofnunar Jóns
Þorlákssonar frá 1983, gefið út fjölmörg rit og var ritstjóri
Frelsisins 1980 til 1986. Salvör Gissurardóttir (f. 1954) við-
skiptafræðingur, gift Magnúsi Gíslasyni raforkufræðingi.
Kristinn Dagur Gissurarson (f. 1957) verslunarmaður og Guð-
rún Stella Gissurardóttir (f. 1962) laganemi.
c. Jón Hannesson (f. 1927) framkvæmdastjóri Steypustöðv-
ar Blönduóss. Dóttir
hans fyrir hjónaband er
Jósefína Þorbjörnsdótt-
ir (f.1952) sem er viður-
kennd dóttir hans þó
að hún beri ekki nafn
hans. Kona Jóns er
Ása S. Magnúsdóttir
og eru börn þeirra
Steinar Jónsson (f.
1956) verkamaður á
Blönduósi, Rúnar Jóns-
son (f. 1957) stýrimað-
ur í Reykjavík, Hannes
Jónsson (f. 1961) múra-
ranemi á Blönduósi og
Jónína Guðbjörg Jóns-
dóttir (f. 1963) verkakona á Höfn í Hornafirði.
d. Guðrún Hannesdóttir (1931-1945)
e. Bjarni Guðlaugur Hannesson (f. 1942) skrifstofumaður í
Húnaþingi. Hann sver sig í ættina fyrir sérvisku nokkra og að
láta ljós sitt ekki undir mæliker. Hann hefur skrifað mikið í
blöð og meðal annars gefið út ritin Hagþróun og byggðaþróun
á íslandi og Verðmœtasköpun og byggðaþróun. Hann hefur
aðsetur á Laugabakka í Húnavatnssýslu og rekur þar upp á
eigin spýtur Rannsóknarstofnunina Gefjuni.
f. Guðmundur Hannesson (f. 1960) húsgagnasmiður í Vest-
mannaeyjum.
2. Elínbergur Pálsson (f. 1903, lést um þrítugt) ókvæntur.
ÞJÓÐSAGNAPERSÓNAN BJÖRN Á LÖNGUMÝRI
3. Björn Pálsson (f. 1905) bóndi og alþingismaður á Ytri-
Löngumýri. Hann er búfræðingur frá Hólum og var síðan í
Samvinnuskólanum um hríð en gerðist síðan bóndi á Ytri-
Löngumýri, skammt frá Guðlaugsstöðum. Hann var pólitísk-
ur eins og þeir frændur flestir en þótti leika mjög lausum
HEIMSMYND 69