Heimsmynd - 01.06.1990, Blaðsíða 92
FERÐALÖG
Eitt vinsælasta áhugamál okkar íslendinga eru ferða-
lög. Hér áður fyrr ferðuðust menn vart nema af
nauðsyn.
Halldór Laxnes lætur ömmuna í Brekkukotsannál til dæmis
lýsa glötun manns nokkurs með því að segja að hann hafi
lagst í ferðalög. Nú er öldin önnur og íslendingar flykkjast
út og suður. Hvert landið af öðru er heimsótt, hver heims-
álfan af annarri uns aðeins Antarktíka er eftir. Mikið er
einnig ferðast innanlands, sýslum, hreppum og kotum safn-
að uns ferðalangar telja sig hafa nær „fullkannað" ísland.
En hve mikið sem við teljum okkur hafa kannað eigið
land koma seint öll kurl til grafar. Hver hefur til dæmis
staðið á tindi Hvannadalshnjúks, kann-
að bæjarrústirnar á Þönglabakka í
Fjörðum, komið út í Hrappsey á
Breiðafirði og sigið niður í holuna í
austasta Þríhnúkinn í Bláfjöllum? Mjög
er ólíklegt að nokkur hafi komið á alla
þessa staði og eru þó aðeins fáir nefnd-
ir og valdir af handahófi.
Hraunhellar á íslandi eru eitt af þeim náttúrufyrirbærum
sem margir eiga eftir. Raunar má segja því betur miðað við
slæma umgengni þeirra sem þangað hafa komið. Nú eru
þekktir um 150 hraunhellar á landinu en holrúm undir 20
metrum að lengd flokkast sem skútar. Þeir eru ekki margir
íslendingarnir sem komið hafa í fleiri en tíu hraunhella.
Þeir hellar sem flestir hafa heimsótt eru Raufarhólshellir,
Surtshellir, Stefánshellir, Gjábakkahellir og Gullborgarhell-
arnir. Þá eru taldir fimm hraunheliar af um hundrað og
fimmtíu og þeir fegurstu og merkilegustu ótaldir.
Flóki er einn Dauðadalahellanna í Dauðadölum á
Reykjanesi. Hann er um 900 metra langur og sjötti lengsti
hraunhellir á íslandi. Hér er um mikið náttúruundur að
ræða, aðeins örskammt frá höfuðborgarsvæðinu. Um hálf-
tíma ferðalag er „úr bænum“ að hellinum. Fer um helming-
ur þess tíma í akstur en hinn helmingurinn í labb. Þannig
leynast miklar gersemar náttúrunnar rétt við túnfótinn hjá
okkur - en flestir leita þó langt yfir skammt og leggja ekki í
ferðalag innanlands nema ákvörðunarstaðurinn sé Þingvell-
ir, Snæfellsnes, Ásbyrgi eða Mývatnssveit.
Um svipað leyti og fyrstu norrænu mennirnir voru að setj-
ast að hér á landi til frambúðar hófst eldgos nálægt Grinda-
FLOKI
eftir BJÖRN HRÓARSSON
skörðum, austan Lönguhlíðar á Reykjanesi. Kvika kom upp
úr iðrum jarðar í tveim gígum og hraunið rann til vesturs og
norðurs allt að Helgafelli fyrir ofan Hafnarfjörð. Hellar
mynduðust í hrauninu og lifa nokkrir þeirra enn í dag, rúm-
um 1100 árum eftir að eldarnir loguðu. í Dauðadölum, ná-
lægt melnum Markhraka, eru nokkir hellar og hafa löngum
verið nefndir saman Dauðadalahellar. Flóki er þeirra
stærstur og fyrir utan hann og Hjartartröð eru einungis
þekktir þar smáhellar - sumir þó með fögrum hraunmynd-
unum. Flóki er því jafnaldri Ingólfs Arnarssonar.
Flóki er einn sérkennilegasti og margflóknasti hraunhellir
_hér á landi. Hann teygir ganga sína víða og í honum eru
fjölmörg gatnamót, meira að segja ein
þrjú hringtorg. Hellismunnarnir eru
margir en flestir þröngir, opnast sumir
þeirra inn í meginrásina en aðrir inn í
afkimana. Þegar á heildina er litið er
Flóki mikið völundarhús þar sem vill-
ast má auðveldlega - og jafnvel illa.
Mikið er um hraunmyndanir í Flóka,
dropasteinar eru þar margir en fæstir stórir. Mikið er hins
vegar um hraunstrá, spena og aðrar myndanir. Sumar
hraunmyndananna eiga sér vart hliðstæðu í formi og litum
hér á landi og á gólfinu mynda þær víða sérkennileg form og
má þar ímynda sér steingerða krókódfla og risaeðlur.
Ferðafélag íslands og ferðafélagið Útivist hafa staðið fyrir
ferðum í Dauðadalahellana og þá einkum Flóka. Er það til-
valinn vettvangur fyrir þá sem skoða vilja hellinn. Þar er
fararstjórn og menn fá tilsögn í umgengni. Rusl er því miður
enn á stöku stað í hellinum þó að töluvert hafi verið hreins-
að þaðan út á síðustu árum. Farir þú í Flóka er þó aðalat-
riðið að ekki aukist ruslið og ekki fækki hraunmyndununum
né láti á sjá. Einnig er best að fara varlega til að villast ekki.
Til að fá nánari upplýsingar um hvernig eigi að umgang-
ast hella, hvar þeir eru og svo framvegis er handhægast að
ganga í félagsskap hellamanna. Hellarannsóknafélag Islands
var stofnað á síðasta ári og fylla félagsmenn nú sex tugi. Á
vegum félagsins eru haldnir fræðslufundir, farið í hellaferðir
og skipst á skoðunum og fróðleik um hella. Þar er kjörinn
vettvangur fyrir þá sem mikið hafa skoðað af landinu okkar
en eiga hellana eftir.D
92 HEIMSMYND