Heimsmynd - 01.07.1992, Qupperneq 21
■ W HBMSMYi
timamot
MAÐUR MÁNAÐARINS, JAFNRÉTTISMÁL, BÓKMENNTIR, HEILSA, VIÐSKIPTI OG
KVIKMYNDIR í JÚLÍ1992
Hvar og hvernig
býröu?
Ég bý ásamt eiginkonu og
börnum í raðhúsi í Breið-
holti.
Hver er nýjasta upp-
götvun þín?
Það kemur mér á óvart
hvað viðhorf manna eru oft
nátengd hagsmunum þeirra.
Hvað er siðleysi fyrir
þér?
Þegar menn sannfæra
sjálfa sig um eitthvað vegna
eigin hagsmuna sem breytir
gegn lífsskoðun þeirra.
Hvað ergir þig mest í
íslensku þjóðfélagi?
Hvað smáatriði eru mikil-
væg.
Hvar vildir þú helst
búa?
Ég vil hvergi annars staðar
búa en á Islandi.
Hver er besta bíó-
myndin sem þú hefur
séð nýlega?
Ég fer sjaldan á bíó en hef
einna mesta ánægju af grín-
myndum, ekki síst ef fjármál
eða stjórnmál blandast inn í.
Ég gæti til dæmis nefnt
myndina Wall Street með
Michael Douglas.
Hver er uppáhalds-
bókin þín?
Njála.
Á hvernig tónlist
hlustar þú?
Klassíska tónlist og tónlist
sem var vinsæl á unglingsárum
mínum, Bítlana, Rolling Sto-
nes og nútíma popptónlist.
Hver er uppáhalds-
flíkin þín?
Gallabuxur og bómullar-
bolur.
Áttu eitthvað sem þú
eða aðrir álíta stöðu-
tákn?
Pað held ég varla. Mér er
meira virði að njóta en eiga.
í hverju vildir þú helst
fjárfesta?
í framtíðinni.
Hvaða hæfileika vildir
þú helst vera gæddur?
Hér er af mörgu að taka.
Pað væri gaman að geta
sungið jafn vel og lævirki.
Burtséð frá núverandi
starfi, hvernig vildir þú
helst afla þér tekna?
Hvaða starf sem er sem
viðheldur áhuga mínum og
þar sem mér finnst ég gera
gagn. Einu sinni ætlaði ég að
verða arkitekt og lengi vel
vildi ég verða bóndi en það
er víst nóg af arkitektum og
ekki horfir vel fyrir bændum.
Hvaða manneskju í
þínu fagi dáirðu mest?
Ég er á móti því að setja
einstaka menn á stall. Það
eru margir góðir menn í
mínu fagi: Adam Smith og
Keynes en af núlifandi hag-
fræðingum nefni ég Paul
Krugman.
Ef þú hefðir lifað áður,
hver heföir þú viljað
vera?
Ég hefði kosið að vera
uppi á Sturlungaöld og vera
einn af þeim fáu sem lifðu til-
tölulega lengi og voru dreng-
ir góðir.
Hvers iðrast þú helst?
Að hafa ekki nýtt liðin ár
betur.
Við hvernig kringum-
stæður missir þú helst
stjórn á skapi þínu?
Ég fer ekki auðveldlega úr
jafnvægi en einna verst er
mér við þegar menn gera það
illa sem þeir geta gert vel.
Hvað kemur þér helst
til að hlæja?
Fjölskyldan segir að ég
hlæi mest að eigin bröndur-
um.
Ertu trúaður?
Ég trúi á hið góða.
Hverju langar þig
helst að koma í verk?
Skrifa um eitthvað annað
en hagfræði.
Hverju vildir þú
breyta í fari þínu?
Þetta vefst fyrir mér!
Með hverjum vildir þú
snæða kvöldverö fyrir
utan maka?
Með einhverri jafn
skemmtilegri og konunni
minni. Þær eru ekki á hverju
strái.
Ef þú værir alveg á
kúpunni fjárhagslega
hvaða munað þætti þér
erfiðast að neita þér
um?
Súkkulaði, veiðiferðir og
hestamennsku.
Hverju berðu helst
virðingu fyrir?
Vel unnum verkum.
Hvað er fegurð?
Fegurð er afstæð. Fyrir
mér er fegurð það sem nálg-
ast fullkomnun.B
ÞORÐUR FRIÐJONSSON
forstjóri Þjóðhagsstofnunar er mjög í sviðsljósinu nú vegna
nýjuslu atburða á sviði efnahagsmála. „Nauðsynleg skerð-
ing þorskaflans er mikið áfall fyrir þjóðarbúið en við höf-
um séð það svartara áður!“
Að vísu lifði Þórður ekki síðustu kreppu en hann er
fæddur 1952 og er þeirrar skoðunar að áslandiö nú sé fjarri
því að vera eitthvað í líkingu við kreppuna miklu, nálgist
frekar ástandið sem ríkti hér 1967/68 þegar síldin hvarf.
Þórður er næstelstur fimm barna þeirra Krislínar Sig-
urðardóttir, sem nú er látin og Friðjóns Þórðarsonar sýslu-
manns og lyrrverandi ráðherra. Tveir bræður Þórðar eru
þjóðkunnir, Lýður á sviði viðskipla og Helgi Þorgils í
myndlistinni. Þórður og systkini hans eru alin upp í Búðar-
dal og síðan Stykkishólmi. Þórður varð stúdenl frá MR
1972 og lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Islands
1977. Hann lauk M.A. prófi frá Queen's háskólanum í
Kingston, Kanada. Þórður kenndi við háskólann í sjö ár og
hefur verið efnahagsráðgjafi tveggja forsætisráðherra,
Gunnars Thoroddsen og Steingríms Hermannssonar. Hann
er kvæntur Þrúði Guðrúnu Haraldsdóttur íslenskunema
við háskólann og eiga þau þrjú börn en Þórður á eina dótt-
ur fyrir. i
HEIMSMYND 21