Heimsmynd - 01.07.1992, Síða 22
mmi
HEILSA
Eitthvad á milli horrenglu og vödvafjalls
HVAÐ VILTU VERÐA?
stærðum og gerðum heilsuræktarstöðvar. Ásta
Vala sem kennir pallapuð í Mætti brýnir fyrir
konum að vera ófeimnar við að horfa á sig í
speglinum hvernig svo sem vaxtarlagi þeirra sé
háttað. Fleiri þjálfarar ráðleggja konum hiksta-
laust að festa kaup á fallegum æfingabúningum
því það virki hvetjandi í stað þess að þær feli
sig og komplexana undir síðum og stórum bol-
um.
Mjög margir eru orðnir meðvitaðir um mikil-
vægi hreyfingar enda er hún lífsnauðsynleg.
Aðhald í mataræði er ekki nóg. Það dugir held-
ur ekki að hætta eingöngu að reykja því nýjustu
fregnir herma að hreyfingarleysið sé álíka skað-
legt fyrir líkamann og reykingarnar.
Eróbikkæðið hafði sína ókosti í för með sér í
upphafi. Margir fóru alltof geyst í sakarnir með
ófyrirséðum afleiðingum. Hið sama var uppi á
teningnum í lyftingum lóða. Þar nutu konur oft
leiðsagnar karla og lyftu alltof þungum lóðum
með þeim afleiðingum að herptir vöðvarnir
styttust og tútnuðu út. Núorðið nýtur svokallað
pallapuð geysilegra vinsælda eða „the step“ eins
og þessi leikfimi er kölluð á ensku. Pallapuðið
framhald á bls. 88
TÍSKAN OG KVENÍMYNDIN
Kyntákn aldarinnar, Marilyn Monroe, Callie Grace
Macdonald íslenskur þjálfarl, horrenglan Twiggy, Jane
Fonda áður en hún hóf líkamsrækt, bandaríska fyrirsæt-
an Cheryl Tiegs, aðeins grönn en í engu
Newton John í Greese þegar áherslan
var enn á að vera grannur, Jane
Fonda eftir að
hún hóf lík-
amsrækt,
Jessica Rabbit ]
holdtekning
kynbombunnar,
Madonna og
Claudia Schif-
fer, ein eftirsótt-
asta fyrirsæta
nútímans.B
Íæstar konur sætta sig við spegilmynd
sína. Þær dreymir flestar um að vera
grennri, stæltari, íturvaxnari eða ein-
hvern veginn öðruvísi en þær eru. Hin
æskilega kvenímynd er háð tískusveifl-
um. Og undanfarið hefur stundaglas-
vöxtur Marilyn Monroe ráðið ríkjum. Marilyn
Monroe er eitt frægasta kyntákn allra tíma.
Vöxtur hennar og útlit sagði ef til vill meira um
vaxandi velmegun í Bandaríkjum eftirstríðsár-
anna en nokkur opinber skýrsla. Þegar Marilyn
Monroe hvarf af sjónarsviðinu fóru stærðir fjór-
tán og fjörutíu og fjögur úr tísku. Brjóst, rass og
læri áttu að heyra sögunni til. Við tóku ár
mjónanna þar sem Twiggy var fyrirmyndin og
leggirnir áttu helst að líkjast tannstönglum und-
an stuttpilsunum.
Frá þessum tíma hafa konur vart borið sitt
barr. Margar þeirra hafa verið í stöðugum
megrunarkúrum öll sín fullorðinsár og eilífu
stríði við kílóin í hinni endalausu þrá eftir fal-
legri líkama enda er anorexía orðinn vel þekkt-
ur sjúkdómur um allan hinn vestræna heim. Þar
hefur eróbikkæðið einnig farið sem eldur í sinu
undanfarinn áratug. Öll líkamsrækt er af hinu
góða en betri eru þær fréttir sem berast nú að
keppikeflið sé ekki lengur að verða eins og Ma-
donna eða Jane Fonda í laginu. Líkamsræktar-
spekingar segja að tíska tíunda áratugarins
beinist inn á þær brautir að hver manneskja
verði sátt við eigið vaxtar-
lag, sem liggi oftast einhvers
staðar á bilinu milli hor-
renglu og vöðvafjalls.
Hvað eru spekingarnar
með öðrum orðum að segja? Jú, að konur séu
loks að komast til vits og ára. Konur séu orðnar
nægilega meðvitaðar til þess að leggja stund á
líkamsrækt heilsunnar vegna en ekki eingöngu
til að líta vel út í augum annarra. Þetta er
augsýnilegt öllum þeim sem leggja leið sína inn
á líkamsræktarstöðvar. Þegar Sóley Jóhanns-
dóttir var að byrja með dansstúdíó sitt var
áberandi hvað konurnar voru flestar ungar og
vel á sig komnar. Núorðið sækja konur af öllum
tímamót
22 HEIMSMYND