Heimsmynd - 01.07.1992, Side 24

Heimsmynd - 01.07.1992, Side 24
KVIKMYNDIR ÞRJAR BOMBUR tímamót Þrjár góðar: Pfeiffer sem Kattarkonan, nauðasköllótt Weaver og ógnarkvendið Stone. Igamla daga voru kynbombur kvikmynd- anna eitthvað sem karlpeningurinn gat látið sig dreyma um ljúfa og að mestu hættulausa drauma. Þá skópu goðsagna- kenndar leikkonur allt frá Marlene Dietrich til Marilyn Monroe ímynd seiðandi fegurðar á hvíta tjaldinu. Pær voru brothættar kynverur með langa leggi og þrýstinn barm. Aðalhlutverk þeirra var að kynbombast. Þær tóku sig vel út á plakötum. En það er liðin tíð. í dag eru bomburnar brjálæð- ingar með markmið. Hörku- bombur já, en brjálaðar. Það nægir að nefna þrjú brennandi heit dæmi úr Hollywood sumarmyndanna; Sharon Stone í Ógnctreðli, Sigourney Weaver í Aliens 3 og Michelle Pfeiffer í Leður- blökumanninum. Þetta eru helstu kyntákn kvikmynda- borgarinnar í dag og sjáið hlutverkin sem þau leika: Stone er tvíkynhneigt morð- kvendi (eða er hún það ekki?, myndin svarar því aldrei!); Weaver mundar morðtólin gegn ósigrandi geimskrýmslum á nálægri fangaplánetu; Pfeiffer er hin lævísa læðudrottning Kattarkonan, einn af meginglæponunum í framhaldsmyndinni um Leðurblökumanninn. Vilduð þið leggja lag ykkar við þessi ævintýrakvendi? Kæmust þið lifandi frá þeim? Leikkonur vestra hafa á undanförnum árum orðið æ meira áberandi í myndum sem flokkast undir hasar- og spennumyndir og fengið í þeim veigameiri hlutdeild. Ekki er langt síðan þær voru hjálparvana fórnarlömb sem biðu frelsar- ans með bringuhárin, svellandi ástkonur eða pirraðar eiginkonur; hver hefur ekki heyrt sagt að kvenfólkið eyðileggi hasarinn? Er kvenmað- ur í myndinni? Bjakk. Nú horfir málið talsvert öðruvísi við. Núna eru það þær sem halda á byssunum, berjast við skrýmslin eða ráða nið- urlögum bófanna. Það er hið nýja hlutverk bombanna. Kyntákn fyrri tíma voru reyndar ekki öll silkimjúk og hættulaus. Gömlu bomburnar gátu verið harðjaxlar þegar svo bar undir. Fyrsta hörkutólið var Theda Bara, fædd 1890. Hún varð stjarna á einni nóttu árið 1915 þegar hún lék ruddalegt skuggakvendi í myndinni A Fool There Was er byggði á ljóðinu Vampíran eftir Rudyard Kipling. Upplýsingar um leikkonur í þá daga voru hreinn skáldskapur; Bara var sögð með dulargáfu, fædd í Saharaeyðimörk- inni, óskilgetið barn fransks listamanns og egypskar hjákonu. Hún ók um í hvítri limósínu, raðaði um sig alls kyns dauðatáknum eins og hauskúpum og hröfnum og gældi við höggorm þegar hún tók á móti blaðamönnum. Hún varð fljótlega þekkt sem Vampíran. Þá eru leikkon- ur á borð við Barbara Stanwyck eftirminnilegar sem femme fatale gömlu sakamálamyndanna eins og Tvöfaldar skaðabœtur en nær í tíma er Kathleen Turner í Body Heat þar sem hún snýr illyrmislega á William Hurt. en bomburnar hafa aldrei fengið hörkulegri hlutverk en í hasar- myndum nútímans og nýjasta og mesta bomban er Sharon Stone. Þeir, sem séð hafa Ógnareðli í Regnboganum, vita hvers vegna. Hún stelur myndinni léttilega frá karlmótleikaranum, Michael Douglas, og er það ekki lítið afrek. Stone er ekki beint ímynd kvenlegs yndisþokka í myndinni, hún er ruddaleg í kjaftinum, tekur Douglaspersónuna á taugum með æsilegum kynþokka og okkur er næstum í sjálfsvald sett að ákveða hvort hún er sakleysingi eða ofbeld- isfullur morðingi sem drepur með litlum járn- fleyg sem hún geymir undir rúminu. Ef Stone verður kjörin kynbomba tí- unda áratugarins (ekki er óeðlilegt að ætla að svo verði) á hún það leikstjóran- um Paul Verhoeven að þakka. Hann byrjaði að koma henni á framfæri sem bombu í framtíðarþrillern- um Total Recall en áður hafði hún leikið í vondum myndum eins og endurgerð- inni af Námum Salómons konungs með Richard Chamberlain þar sem var viðlíka kynþokki yfir henni og indverskum ffl. I Ógnar- eðli fór Verhoeven með hana alla leið, svo mjög að það kom henni sjálfri á óvart hvað hún gat verið frökk í margumtöluð- um kynlífssenunum. Myndin hefur fleytt henni upp á stjörnuhimininn en hættan er sú að hún festist í tvíkynja, morðóðum ruddahlutverkum. Mesta hörkutólið af þessum þremur kyn- táknum og sú sem sver sig helst í ætt við karl- hetjur kvikmyndanna er Sigourney Weaver. Hún fæst nú í þriðja sinn við geimskrýmslin 24 HEIMSMYND

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.