Heimsmynd - 01.07.1992, Page 26

Heimsmynd - 01.07.1992, Page 26
VIÐSKIPTI ERLEND VERÐBRÉFAKA UP Um næstu áramót falla niður tak- markanir á flutningum fjármagns frá íslandi til annarra landa. Pá mega íslendingar fjárfesta er- lendis eins og þá lystir og þeir hafa getu til, til dæmis í fasteignum og verð- bréfum. I þessari grein verða gefin nokkur ráð til almennings um fjárfestingar í erlendum verðbréfum. Hafa ber þó í huga, að engin ráð eru algild í þessum efnum og lesendur ættu að leita frekari upplýsinga og ráðgjafar, áður en þeir ákveða að festa kaup á erlendum verðbréfum. Hvers vegna er ráðlegt að fjárfesta í erlendum verðbréf- um? Vöxtur erlendra fyrirtækja getur orðið meiri og hraðari en almennt gerist hér á landi vegna stærri markaða og betri aðgangs að fjármagni. Ahættudreifing gefur að jafnaði hærri ávöxtun. íslensk- ir fjárfestar dreifa áhættunni með því að fjárfesta að hluta erlendis. Islendingar kaupa mikið af innfluttum vörum. Með því að fjárfesta erlendis að hluta er unnt að stuðla að verndun kaupmáttar gagnvart erlend- um innkaupum. Hvað ber að varast? Ekki er ráðlegt að kaupa er- lend skuldabréf. Verðtryggð, íslensk skuldabréf gefa betri ávöxtun en fæst víðast hvar annars staðar og gengisáhættan, tilkostnaðurinn og fyrirhöfnin er miklu minni. Varast ber að kaupa verðbréfaafbrigði sem fela í sér mikla áhættu, svo sem framvirk hrá- efnaviðskipti eða viðskipta- rétt (á ensku: Futures og Options). Almennir fjárfest- ar fara yfirleitt illa út úr slík- um viðskiptum, enda etja þeir kappi við sérfræðinga. Hve mikið á að kaupa? Fjárfestar ættu einungis að kaupa erlend verð- bréf fyrir þá peninga sem þeir hafa efni á að tapa. Unnt er að kaupa fyrir mun lægri upphæðir, en ná samt nægilegri áhættudreifingu, með því að kaupa einingar í hlutabréfasjóðum. Þar geta lágmarksupphæðir verið nokkur þúsund krón- ur, ef keypt er í sjóðum íslensku verðbréfafyrir- tækjanna, en nokkrir tugir þúsunda króna, ef keypt er í erlendum sjóðum. Kaup á hlutabréfum einstakra fyrirtækja kalla á mun meiri fjárfestingu, ef nægileg áhættudreifing á að nást. Lágmarksfjárhæð til kaupa í hverju einstöku fyrirtæki getur numið Ef markmiöiö er að hafa traustar tekjur af verðbréfum ættu íslenskir fjárfestar helst að velja sjálfir hlutabréf í fyrirtækjum eða greinum sem þeir hafa vit á eða fylgjast vel með vegna starfs síns. icia 1 bei iniKia a tugum þúsunda króna og þar af leiðandi getur þurft mörg hundruð þúsund króna til að fá nægilega dreifingu. Hve lengi á að eiga bréiin? Ráðlegt er að fjárfesta til langs tíma í erlendum verðbréfum, minnst 2ja-3ja ára. Stofnkostnaður við kaupin og gjaldeyrisyfirfærslu er gjarnan á bilinu fimm til sjö prósent og tíma tekur að vinna upp þann kostnað. Hvenær á að kaupa erlend verðbréf? Alltaf er rétti tíminn til að kaupa einhver er- lend hlutabréf, en þó er ráðlegt að reyna að minnka áhættuna með því að láta markaðs- og gengissveiflur vinna með sér: Kaupa þegar viðkomandi er- lend mynt er lágt skráð gagn- vart krónunni og öðrum við- miðunargjaldmiðlum. Hafa má í huga, að dollar hreyfist yfir- leitt öfugt við þýska markið, og íslenska krónan er að þremur fjórðu hlutum tengd við ECU og mun því yfirleitt sveiflast meira gagnvart dollurum og yenum. Kaupa þegar vísitala erlenda verðbréfamarkaðarins er í lægð, til dæmis hlutabréfa- eða skuldabréfavísitala. Hlutabréfavísitalan hefur að undanförnu farið hærra en nokkru sinni fyrr í Bandaríkj- unum og Bretlandi, verið hærri en tvö undanfarin ár í Frakk- landi og Þýskalandi, en í Japan er hún lægri en um margra ára skeið eftir mikið verðfall að undanförnu. Hvaða crlendu verðbréf á að kaupa? íslenskir fjárfestar eiga fyrst og fremst að kaupa hlutabréf og einingar í hlutabréfasjóð- um. Allir fjárfestar ættu að skilgreina fjár- festingarmarkmið sín og kaupa síðan í samræmi við þau: Ef markmiðið er hraður vöxtur peninganna, en því fylgir jafnframt mest áhætta, er yfirleitt heppilegast að kaupa einingar í verðbréfasjóð- um. Stjórnendur þeirra reyna stöðugt að finna ný vaxtartækifæri og hafa til þess betri tíma og aðstöðu en almennir íslenskir fjárfestar. Þar eru valin fyrirtæki með mikla vaxtarmöguleika, til dæmis fyrirtæki í nýjum framleiðslu- og þjónustugreinum, en einnig traust fyrirtæki sem hafa einungis starfað á hluta markaðarins. Ef markmiðið er að hafa traustar tekjur af verðbréfunum, en því fylgir yfirleitt minni ávöxtun, getur vel átt við að íslenskir fjárfestar velji sjálfir hlutabréf. Þeir eiga gjarnan að velja hlutabréf í fyrirtækjum eða greinum sem þeir hafa vit á eða fylgjast vel með vegna starfs síns. framhald á bls. 86 26 HEIMSMYND

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.