Heimsmynd - 01.07.1992, Síða 30

Heimsmynd - 01.07.1992, Síða 30
JAFNRETTISMAL SAMSKIPTl KYNJANNA í BRENNIDEPLI kynferðisleg áreitni er löngu viður- kennt vandamál í Bandaríkjunum og nú hefur Evrópubandalagið beint tilmælum til aðildarríkjanna um að setja löggjöf um þetta mál- efni. Að mati Birnu Hreiðarsdótt- ur sem nú gegnir stöðu framkvæmdastjóra Jafnréttisráðs er kynferðisleg áreitni á vinnu- stað eitt af stóru málum jafnréttisumræðunnar núna. Hér er um grundvallaratriði að ræða í mannlegum samskiptum og afleiðingarnar af kynferðislegri áreitni, eins og Birna hefur bent á, eru mun víðtækari og alvarlegri en fólk hefur til þessa gert sér grein fyrir. Birna Hreiðarsdótt- ir sem er lögfræðingur að mennt, vakti at- hygli í fréttum nýverið þegar hún tengdi kyn- ferðislega áreitni á vinnustað fjárhagslegu tapi fyrirtækja og þjóðfélagsins í heild. „Mér fannst rétt að varpa ljósi á vanda- málið með þessum hætti“, segir Birna, „að tengja kynferðis- lega áreitni fjárhags- legri afkomu fyrirtækja því sé talað um peninga í þessu samhengi þá kveikja karlarnir á per- unni.“ Birna bendir á að innan Evrópubandalagsins hafi kynferðisleg áreitni á vinnustað verið mjög til umræðu síðastliðin tvö ár. „Innan EB er jöað markaðurinn sem ræður mestu og allt sem hef- ur áhrif á fjárhagsstöðu fyrirtækja er tekið til alvarlegrar umfjöllunar. Það er auðvitað aldrei hægt að meta til fjár þann skaða sem mann- eskja getur beðið sem verð- ur fyrir kynferðislegri áreitni en sú staðreynd að kynferðisleg áreitni teygir anga sína víða, bitnar ekki bara á fórnarlömbum hennar heldur hefur geysileg áhrif í atvinnulífinu, sem birtist í minni afkastagetu, aukinni fjarveru og uppsögnum. Allir þessir þættir hljóta að hafa lamandi áhrif á fyrirtækin og í ljósi þess hefur kynferðisleg áreitni ekki aðeins verið skoðuð sem mannrétt- indabrot heldur er hér um að ræða brennandi hagsmunamál fyrirtækjanna sjálfra.“ Vandamál tengd kynferðislegri áreitni á vinnustöðum hafa lengi verið í brennideplinum í Bandaríkjunum og eru eitt stærsta lögfræði- lega vandamálið sem stjórnendur þarlendra fyrirtækja þurfa að fást við. Lögum um kyn- ferðislega áreitni hefur verið breytt á síðasta áratug en eftirtektarverðasta málið sem komið hefur upp síðastliðin ár er mál Ellison gegn Brady árið 1991 en dómsúrskurðurinn tók mið af því hvar konan sem í hlut átti setti mörkin. Aður en þetta mál kom upp var það huglæg af- Birna Hreiðarsdóttir framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs. Kyn- ferðisleg áreitni er eitt af stærstu málum jafnréttisbarátt- unnar, segir hún. tímamót staða gerandans, karlsins sem beitti áreitninni, sem mestu máli skipti en afstaða fórnarlambs- ins skipti minna máli. „Svo ég skýri þetta nán- ar“, segir Birna, „þá staðfestir þessi dómur hvað kynferðisleg áreitni er óhemju víðtækt hugtak. Kynferðisleg áreitni er mjög lúmskt fyrirbæri og ekki bara fólgin í káfi eða beinni snertingu. Eftir að mál Anitu Hill kom upp í tengslum við skipun dómara í hæstarétti Bandaríkjanna vaknaði umheimurinn upp við vondan draum. Konur hafa lengi búið við kyn- ferðislega áreitni á vinnustað án þess jafnvel að gera sér grein fyrir því sjálfar. Auðvitað geta karlmenn orðið fyrir tCCflOCal kynferðislegri áreitni líka en það virðist hins vegar alger undantekn- ing.“ Fyrir nokkrum árum gerði bandarískt kvennatímarit könnun meðal fimm hundruð stærstu fyrirtækjanna þar í landi sem leiddi í ljós að flestum þeirra höfðu borist kvartanir um kynferðislega áreitni frá konum sem störfuðu í fyrirtækjun- um og þriðjungur þess- ara fyrirtækja hafði fengið á sig kærur. „Þetta vandamál er talið kosta hvert þessara fyrirtækja að meðaltali 6,7 milljónir dala á ári vegna fjar- vista, minni afkastagetu og þjálfun nýs starfs- fólks vegna þeirra sem hætta sökum kynferðis- legrar áreitni", segir Birna. Fyrir 1976 var erfitt fyrir fórnarlömb kyn- ferðislegrar áreitni að leita réttar síns hjá bandarískum dómstólum þar sem almennt var álitið að mál af þessu tagi féllu ekki undir mannréttindakafla laganna frá 1964. En með aukinni umræðu um jafnrétti og mannréttinda- mál komust dómstólar ekki hjá því að taka á þessu máli sem brotum á jafnrétti kynjanna á vinnustöðum og er kynferðisleg áreitni nú flokkuð undir brot á mannréttindum sam- kvæmt bandarískum lögum. „A síðustu dögum Alþingis í vor voru sam- þykktar breytingar á hegningarlögunum og samkvæmt þeim er kynferðisleg áreitni nú refsiverð og varðar allt að tveggja ára fangelsi“, segir Birna. „Þingmenn báru ekki gæfu til að skilgreina hugtakið þannig að íslenskar konur eru ekki mjög meðvitaðar um hvað flokkast undir kynferðislega áreitni eða hvernig þær eiga að leita réttar síns verði þær fyrir óþægind- um af þessu tagi.“ Árið 1991 var jafnréttislögunum breytt og þá tók til starfa kærunefnd jafnréttismála en í henni eiga sæti þrír lögfræðingar, einn tilnefnd- ur af félagsmálaráðherra og tveir af hæstarétti. „Til þessarar kærunefndar geta konur leitað ef þær verða fyrir kynferðislegri áreitni. Hlutverk nefndarinnar er að úrskurða í málum sem eru 30 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.