Heimsmynd - 01.07.1992, Page 40
HORFÐU
Á ÞIG
„Here’s looking at you
kid,“ sagði Humphrey
Bogart, harðjaxl allra
tíma í bíómynd og varð
setningin fleyg. Hvernig
væri að prófa nýja leið til
að horfa á sjálfa þig?
Burstaðu allt hárið frá
andlitinu og berðu snjó-
hvítan lit á það allt.
Horfðu í spegil, alveg
hlutlaus og þér bregður
án efa í brún en með
þessu móti sérðu andlitið
í alveg nýju ljósi. Berðu
saman sinn hvorn helming
andlitsins, veltu fyrir þér
andlitsdráttunum og
reyndu í
framhaldi af
því að velja
liti til förð-
unar sem
henta þér. A þessari
mynd er allur farðinn frá
Chanel. Farðinn er hvítur:
Base Lumiere (Blanc).
Púðrið: Poudre Lumiere
(Aube). Blýanturinn sem
notaður er í kringum aug-
un er svartur og blár,
(Noir og Bleu Elec-
trique). Augnskuggar:
Cendre Bleu og Les Qua-
tre Ombres (Naturel).
Maskarinn er svartur.
Brúnn blýantur er notað-
ur á augabrúnir og vara-
litablýanturinn er Rubis.
Varaliturinn er rauður:
Météore.B
40
SÍÐS UMARFÖRÐ UN
nú er sá tími genginn í garð
þar sem farðanum er
skellt inn í skáp. Leyfum
sólbrúnkunni og hraust-
legu útlitinu að njóta sín.
Um hásumarið er rétt að nota aðeins létt
púðurmeik sem gefur létta satínáferð og
leyfir eðlilegum roða húðarinnar að
koma í gegn. Nú er í góðu lagi að nota
kinnalit (ólíkt kvöld- og vetrarförðun)
því áherslan á að vera á frísklegan roð-
ann, með rauðbrúnum litum og bronslit-
um (til dæmis Terracotta frá Guerlain en
Terracottapúðrið er bæði hægt að nota
yfir allt andlitið til að öðlast sólbrúna og
frísklega áferð eða eingöngu sem kinna-
lit). Augnskugginn er einfaldur, aðeins
er notaður einn litur yfir allt augnlokið -
allt frá húðlituðum brúnum út í bleikt og
ferskjulitað. Maskarinn er í mildum
brúnum lit og augnblýanturinn notaður
til að skyggja í kringum augun í stað þess
að draga sterkar línur. Varalitir eru
mildir og varagloss er upplagt á þessum
árstíma.B