Heimsmynd - 01.07.1992, Síða 58

Heimsmynd - 01.07.1992, Síða 58
greindist fyrst spurði ég Sigurð hvort þetta væri dauðadómur. Eg var svo fáfróð um þessa hluti að annað hafði ekki hvarflað að mér. Hann sagði eitthvað á þessa leið: Spurðu mig hverjar líkurnar séu á að farast í bflslysi - því get ég heldur ekki svar- að. Eg óttast í sjálfu sér ekki dauðann en sú hugsun laust mig strax að meðferðin yrði erfið og kannski yrði ég mikill sjúkl- ingur. Hugrenningar mínar voru á þá leið að í fyrstu myndu allir heimsækja mig, síðan myndi heimsóknum fækka eða fólk segði: Æ, best að heimsækja Möllu greyið. Og samband mitt við fólk yrði allt á grundvelli skyldurækni. En mestar áhyggjur hafði ég samt af Herði og stelpunum mínum.“ Allt í einu bros- ir hún og segir: „Tveimur mánuðum áður en ég fékk þennan úrskurð hafði þekkt spákona spáð því fyrir mér að ég yrði 92 ára“, hún fær sér smók og bætir við af kvenlegri sanngirni til að gera ekki lítið úr hæfileikum spákonunnar, „ef ég færi vel með mig.“ Hún veltir ekki vöngum yfir orsökum sjúkdómsins. „Það hefur aldrei hvarflað að mér að sjúkdómurinn væri mér sjálfri að kenna eða einhverju hátterni mínu. En ein kenningin er sú að vissir persónuleikar fái frekar krabbamein en aðrir og sam- kvæmt henni hefði ég átt að fá útrás fyrir innibyrgða reiði með þessum hætti. Þá fann ég aldrei til beiskju yfir því að þetta skyldi henda mig fremur en einhvern annan. Mig grunaði strax að eitthvað væri að þegar ég fór í skoðun eftir að heimilislæknirinn minn hafði fundið hnút í brjóstinu. Þegar verið var að stinga á hnútinn fannst mér allir svo sam- úðarfullir og góðir við mig, því hlyti þetta að vera illkynja. Þegar ég fékk úrskurðinn, en það var á föstudegi, gekk ég eins „Sigríði Dúnu var ekki haínað aí Kvennalistanum . . . en segjum svo oð ég yrði ástíangin aí Davíð Oddssyni og Hörður aí íegurðardrottningu. . Hún verður hugsi og segir frá því að kona sem hafi fengið sjúkdóminn um leið og hún hafi upplifað meðferðina sem nið- urlægingu. „Hún ákvað að hætta henni sem mér finnst mikil dirfska en hún þoldi ekki tilhugsunina um afleiðingar með- ferðarinnar, hármissinn og að horast niður í ekki neitt. Fyrir mér er meðferðin engin niðurlæging, aðeins hjálpræði.“ Hún hefur ekki rætt sjúkdóminn mikið við dætur sínar. „Ég hef alltaf verið uppi á spítala þegar þær hafa fengið fréttirnar. Ég veit að tvær þær elstu, Halla og Katrín, gera sér grein fyrir alvörunni en ég veit einnig að Hörður talar við þær um að ég hafi þetta af. Við höfum það bæði á tilfinningunni.“ En nú hlýtur að hafa hvarflað að þér að þetta væru enda- lokin? „Já, elskan mín“, svarar hún, „en ég er þannig mann- eskja að ef ég týni buddunni minni, hugsa ég: Æ, þetta redd- ast. Dætur mínar eiga góða að, góðan föður og fjölskyldu. En auðvitað þætti mér sárt ef ég fengi ekki að vera með þeim áfram.“ Læknir sem ég hitti segir það sérkennilega lífsreynslu að fylgjast með fólki sem gangi í gegnum erfið veikindi. Hann segir þessu fólki eitthvað gefið, eitthvað sem við hin skiljum ekki. „Maður kynnist nýjum hliðum á sjálfum sér“, viðurkenn- ir Magdalena. „Og maður leggur meiri rækt við það sem er manni dýrmætt, fjölskylduna og vini sína.“ Hörður er stóra ástin í lífi hennar, segir hún. Hún varð hrif- in af honum í menntaskóla, „og ég er það enn. Hann er svo góður strákur og laus við alla þá lesti karlmanna sem fara í taugarnar á mér, eins og hroka og véladellu. Herði finnst kon- ur merkilegri en karlar en þó fer í taugarnar á honum ef kon- ur reyna að koma sér á framfæri með útlitinu einu saman. Því hjálpaði hann mér að klæða mig í fegurðardrottningarbúning á sínum tíma þegar fulltrúar Kvennaframboðsins í borgar- stjórn mótmæltu ummælum Davíðs Oddsson- ar við krýningu fegurðardrottningar íslands. Við það tilefni sagði Davíð að ef allar kon- urnar í borgarstjórn væru svona fallegar væru þeir ekki í vandræðum þar. Þetta var ekki eingöngu grófleg móðgun við kvenkyns full- trúa í borgarstjórn heldur einnig við stúlkuna sem hann var að krýna. Úr orðum hans mátti lesa að vitsmunir hennar væru ekki að þvæl- ast fyrir öðrum, að hún væri bara sæt dúkka. Davíð Oddsson varð ofsalega reiður þegar við mættum í múnderingunni á fundinn en ég hef ekki oft séð honum verða orðfall. Svo náði hann sér náttúrulega á strik þegar leið á fundinn og fór að spýta út úr sér einhverjum svívirðingum.11 tí og í leiðslu út úr Leitarstöðinni í Skógarhlíð. Ég vissi ekki hvert ég ætti fara eða við hvern mig langaði til að tala. Lækn- irinn minn sagði strax við mig: Við tökum bara aggressívt á þessu og í sama streng tók Hörður. En í hvert skipti sem ný slæm tíðindi koma hefur Hörður stappað í mig stálinu og litið á þetta sem erfiðan kafla sem þyrfti að yfirstíga. Þegar ég fór í fyrstu meðferðina á spítala, keypti ég mér nýjan slopp og hafði mig til. Mér fannst þetta eiginlega ekki vera ég sjálf heldur einhver önnur, líkt og ég væri áhorfandi. Ég hafði ekki rætt þetta mikið við fjölskylduna fyrir utan manninn minn, en þegar ég veiktist mættu þau öll sem eitt. Ekkert þeirra hafði orðið alvarlega veikt fyrir utan mömmu. Mér fannst mamma hikandi við að ræða þennan sjúkdóm við mig. En þegar hún hitti góða vinkonu mína, sem er hjúkrunarkona, talaði hún mikið um mig og innti hana álits. Ári eftir fyrstu meðferðina fékk ég hnút í örið en það er víst al- gengt. Og þá tók við önnur meðferð. Svo fékk ég frið þar til síðastliðið haust. Þá var komið útsæði í kviðarholið og maginn á mér þandist út. Strax og meðferðin hófst sló á einkennin enda fékk ég stóra og góða lyfjaskammta.“ Þingkonur Kvennalistans segir hún hafa sætt sérstaklega miklum fordómum. „Þegar við vorum að bjóða fram til Alþingis 1983 heyrði fréttakona á tal tveggja þingmanna, sem sögðu að þetta hlytu að vera lesbíur. Það er ótrúlegt hvað þessum körlum dettur í hug. Gamla klisjan er að kvenfrelsiskonur geti ekki náð sér í karlmann. Ég heyrði um daginn sögu af tveimur litlum strákum þar sem annar sagði við hinn: Pabbi segir að kvenréttindakonur geti ekki náð sér í karlmann. Þá sagði hinn: En þessir karlar í jafnréttisnefndinni, geta þeir ekki náð sér í konur?“ Nú fengu þingkonur Kvennalistans mikinn meðbyr í kosn- ingunum 1987 en viku sér undan stjórnarsamstarfi. „Þær áttu engan kost á slíku samstarfi“, svarar hún strax. „Þeir vildu bara fá Kvennalistann með sér í stjórn. Þeir voru ekki tilbúnir að ganga að neinum skilyrðum okkar en héldu að við værum tilbúnar að koma inn fyrir ekki neitt. Bara til að vera með eins og Alþýðuflokkurinn nú. Það þýðir varla fyrir þann flokk að bjóða aftur fram á forsendum jafnaðarmennsku. Öllum er ljóst að þetta fólk sem gekk úr Alþýðubandalaginu yfir í Al- þýðuflokkinn, styður nú ríkisstjórn sem gengið hefur lengst í niðurskurði velferðarkerfisins. Ég ber mikla virðingu fyrir Jó- hönnu Sigurðardóttur ráðherra Alþýðuflokks en ég er efins um að hún hafi nokkuð í þessa sjálfþýðuflokksstjórn. Hún hefði átt að láta til skarar skríða og bjóða sig fram til for- 58 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.