Heimsmynd - 01.07.1992, Síða 61
FRABÆR ARANGUR
Ragnar Tómasson var eins
og hver annar miðaldra
maður búinn að sætta sig
við að aldurinn færðist yf-
ir hann. Svona næstum
því. Fertugur upplifði
hann það vonleysi sem
fylgir því að eldast án
þess að finnast maður
hafa komið miklu í verk
né séð æskudraumana
rætast. Hann átti sína
konu og fjögur börn, stundaði hesta-
mennsku ásamt fjölskyldunni en
hafði aldrei lagt stund á líkamsrækt.
Líkt og flestir sem eru að nálgast
miðjan aldur hafði hann farið í megr-
unarkúra og eitthvað reynt að koma
sér í form en án nokkurs árangurs.
ístran óx og hárið tók að þynnast.
Hann var tekinn í andliti og vöðvarn-
ir slappir, drættirnir í kringum munn-
inn voru áberandi og andlitið var að
fá á sig álkulegan svip. Arin liðu.
Hann fann fyrir streitu, stóð í alls-
konar vafstri í atvinnurekstri sínum
en gaf sér alltaf tíma til að koma við í
bakaríinu á leiðinni heim til að fá sér Hann var orðinp 95 kíló, „dæmdur úr leik“, meiddi sig og
dísæta köku. Hann horfði með sam- tognaði auðveldlega við hið minnsta átak.
blandi af öfund og beiskju á sér yngri
menn, frísklega, stælta og kvika í
hreyfingum. Hann stóð álengdar og
horfði á ungt fólk leika tennis og setti
handleggina yfir framstæðan magann.
Liðin var sú tíð að hann keypti þau
föt sem hann langaði í. Ekkert fór
honum vel lengur. Hann var orðinn
95 kíló, iangt fyrir ofan kjörþyngd
sína miðað við 178 sentímetra hæð.
En þetta var víst fylgifiskur aldursins,
hugsaði hann eins og flestir hans jafn-
aldrar.
Þetta er veröld sem var. I dag er
Ragnar Tómasson 53 ára gamall, 83
kíló og stæltari en flestir þeir sem eru
tuttugu árum yngri en hann sjálfur.
Hann er kvikur í hreyfingum, þrekið
og vellíðanin geislar af honum. Hann
er sportlega klæddur með snögg-
klippt grásprengt hár. Áður kinn-
fiskasogið andlitið hefur öðlast fyll-
ingu og grár húðliturinn hefur vikið
fyrir hraustlegum ljósbrúnum lit. Já,
Ragnar Tómasson leggst á ljósabekk-
inn af og til. Það tilheyrir því að vera
í frábæru formi. Punkturinn yfir i-ið
er að útlitið sé í fullu samræmi við
líðanina.
HEIMSMYND 61