Heimsmynd - 01.07.1992, Page 64

Heimsmynd - 01.07.1992, Page 64
febrúar 1991 kom Jón P. Kristjánsson í fyrsta sinn inn á líkamsræktarstöð, 45 ára gamall. Þeir sem fyrir voru í vaxtarræktinni litu á hann meðaumkunaraugum. Annan eins fituhlunk höfðu þeir ekki séð lengi. Einn þeirra hristi höfuðið og hvíslaði að vini sínum að þarna væri enn eitt misheppnað tilfellið á ferðinni. Þessi ætti nú ekki eftir að endast lengi í vaxtarræktinni. Við hverju mátti svo sem búast? Jón vóg tæp 150 kíló og var aðeins 174 sentímetrar á hæð. Hann er ókvæntur og barnlaus húsasmiður, búsettur ásamt foreldrum sínum á Laufásveginum. Þessi hægláti maður var löngu hættur að fara út fyrir hússins dyr nema þegar hann fór í vinnuna. Hann átti í erfiðleikum með að fá nógu stór föt. „Það var ekki nóg að biðja um extra large vinnubuxur, ég þurfti XXL stœrð.“ Þegar hann kom heim úr vinnu borðaði hann kvöldverð og fékk sér ríflega á diskinn. Að því loknu settist hann við sjón- varpið og hámaði í sig sætindi. „Einn konfektkassi var ekkert að þvælast fyrir manni á tyllidögum“, segir hann. Nú rúmu ári eftir að Jón fór að æfa hefur hann misst 60 kíló og slær hvert þolmetið á fætur öðru í líkamsræktarstöðinni sem hann sækir. Hann lét allar augngotur fram hjá sér fara. Fór hægt af stað en hefur stöðugt vaxið ásmegin og æfir nú tvisvar á dag. Auk þess skokkar hann í Öskjuhlíðinni, nokkuð sem hann gat ekki í upphafi vegna þyngsla og hættunnar á meiðslum á hnjám vegna hins gífurlega líkamsþunga. „Eg hef alltaf verið feitlaginn en aldrei eins þungur og ég var orðinn síðastu árin áður en ég hóf þetta átak. Eg hafði stundað skíði og hlaupið á árum áður. Ég bjó í Noregi í sjö ár og var í góðu formi þá. Þar hreyfði ég mig mikið þar til meiðsli í hné urðu þess valdandi að ég varð að hætta að hlaupa. Þá fór að að síga á ógæfu- hliðina hjá mér. Tímabilin á milli þess sem ég hreyfði mig lengdust og ég bætti stöðugt á mig. Segja má að líf mitt hafi skipst í tvö tímabil uppfrá því, annað hvort var ég í megrun eða ég var að hugsa um að fara í megr- un og þau tímabil stóðu mun lengur. Þegar ég hafði ákveðið að fara í megrun jók ég við mig mat þar sem mér fannst ég þegar hafa stigið stórt skref með ákvörð- uninni einni saman. í megrunarkúrunum missti ég iðu- lega tíu til fimmtán kíló og þó sá vart högg á vatni enda var ég fljótur að bæta þeim á mig aftur. Þegar maður er kominn í þennan vítahring skyndikúra og ofáts inn á milli er maður síborðandi. Auðvitað vildi ég ekki kann- ast við að borða mikið. Kvöldin og helgarnar voru verst því þá bætti ég sælgæti og kökuáti við venjulegar mál- tíðir. Ég var alla tíð mjög veikur fyrir sætindum.“ Svo kom að því að Jón sá að hann varð að aðhafast eitthvað. Þó dró hann það á langinn eins lengi og hann gat. „Mér var farið að líða afar illa. Ég var uppgefinn þegar ég kom heim úr vinnunni en var stöðugt að hugsa um að gera eitthvað í málinu. Áramótin 1990/91 strengdi ég þess heit að gera eitthvað en það tók tvo mánuði að koma sér af stað. í þessum þyngdarflokki hleypur maður ekkert út. Ég þekkti Jón Pál. Við höfðum unnið sam- an. Hann kom að máli við mig og spurði hvort ég vildi ekki koma í heilsuræktarstöðina hjá sér. Vandamálið við að koma inn á svona stað með veika sjálfsmynd er að manni finnst allir vera að horfa á mann. Sjálfsagt hefur fólk gónt á mig í upphafi en ég ákvað að láta það ekkert á mig fá. Eg fór í tæki sem er grind sem maður klifrar í, líkt því og maður væri að klífa fjall. Þolið var ekki mikið í upphafi. Ég entist í fimm mínútur fyrst þegar ég prófaði þetta. Hægt og rólega fór ég í gegnum öll tækin en lagði mesta áherslu á þessa klifurvél en þar fær mað- ur góða brennslu og auk þess er lítil hætta á álagsmeiðslum á hné eða aðra líkamshluta í þessu klifri þegar maður er í lítilli þjálfun.

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.