Heimsmynd - 01.07.1992, Síða 86

Heimsmynd - 01.07.1992, Síða 86
Akurliljan. . . framhald af bls. 73 Þegar hann gekk til vitnastúkunnar hafði hann klætt sig í svört föt, bar silkivasa- klút í brjóstvasanum og röndótt bindi um hálsinn. Hann þóttist verða undrandi á hinum gífurlegu ásökunum sem settar voru fram gegn honum. Hann sagðist ekki hafa hugmynd um hvað mafía væri og þekkti ekkert til eiturlyfja: „Eg hef ekkert gert í lífi mínu sem ég þarf að sjá eftir, hef aldrei verið óvinur nokkurs manns. . . . Þeir geta slúðrað um mig, en enginn hefur neitt við mig að sakast", lýsti hann yfir. Síðan sagði hann: „Ég hef eitt svar við öllum þessum ákærum. Ég var í fangelsi og er enn í fangelsi. Afsakið, en hvernig ætti ég að fara um allt landið, ganga um göturnar og fara aftur til klefa míns nema það væri gert með leyfi. Og það hefði ég ekki fengið nema með hjálp ótalmargra fangavarða, fangelsisstjóra, þeirra sem fara yfir póstinn og hlusta á símann. En hér er ég í búri, ég sé enga fangaverði eða fangelsisstjóra í búri. Ef þeir hafa hjálpað mér, af hverju hafa þeir þá ekki verið ákærðir." Svarið við þessu var auðvitað það að enginn í ítölskum fang- elsum var svo heimskur að amast á einn eða annan hátt við Luciano Leggio eða hindra samband hans við umheiminn. Þá var dauðinn vís. Ekki er að efa að Don Luciano hefur lagt á ráðin og samþykkt líflát Falkone dómara nú í vor, en hann var sprengdur í loft upp ásamt fjölskyldu sinni á þjóðveginum milli Trapani og Pa- lermó. Hann var síðastur í röð langs lista af dómurum og lögregluforingjum sem mafían hefur komið fyrir kattarnef. Nú er Don Luciano, guðfaðir sikil- eysku mafíunnar, að nálgast sjötugt og búist er við því að honum verði fljótlega sleppt úr fangelsi. Þrátt fyrir ótalmörg réttarhöld og rassíur hefur sikileyska mafían aldrei verið öflugri en nú. Hún ræður yfir sextíu þúsund milljarða króna heróínmarkaði og er þannig í raun yfir allri skipulagðri glæpastarfsemi í heimin- um. Luciano Leggio frá Corleone er ókrýndur konungur hennar, capo di tutti capiM Viðskipti. . . framhald af bls. 26 Með því móti spara þeir sér mikla vinnu við upplýsingaöflun. Að öðru leyti er ráðlegt að horfa fyrst og fremst á bestu fyrirtækin í hverri grein, sem eiga við- skiptí um allan heim, eru traust í sessi og fjárhagslega sterk, en eiga samt vaxtar- möguleika. Dálkur erlendra hlutabréfa á fjármálasíðu Morgunblaðsins gefur góða vísbendingu um hver þessi fyrirtæki eru og þar er ódýrt að fylgjast með gengi bréfanna. Hvernig á að fara að því að kaupa verð- bréfin? gildandi reglur kveða á um, að kaupin verði að fara fram fyrir milligöngu ís- lensks verðbréfafyrirtæk- is, sem meðal annars sér um að fá gjaldeyri úr banka til kaupanna. Kaupandinn fær ein- ungis kvittun í hendur, en verðbréfin sjálf verða að vera í vörslu innlends eða erlends vörslufyrirtækis. Hvernig eru erlend verðbréf skattlögð? Erlend verðbréf, arður af þeim og sölu- hagnaður, eru að fullu skattskyld hér á landi. Fjárfesting í erlendum hlutabréfum veitir ekki rétt til lækkunar tekjuskatts, fenginn arður er ekki skattfijáls né heldur vextir af skuldabréfum, og söluhagnaður er skattskyldur án tillits til þess hve lengi bréfin höfðu verið í eigu seljanda. Því er ráðlegt að nýta fyrst það svig- rúm sem gildandi skattalög veita til skattfríðinda af fjárfestingu í íslenskum verðbréfum og kaupa ekki erlend verð- bréf fyrr en allur skattafrádráttur hefur verið fullnýttur. nú eru boðaðar breytingar á skattalögum og er rétt að hafa þær í huga þegar ákvarðanir um fjárfesting- ar verða teknar. Ef frum- varpið, sem kynnt var nýlega, verður að lögum óbreytt, falla sérstök skattfríðindi íslenskra verðbréfa niður að mestu leyti um næstu áramót og hverfa alveg á næstu árum.B - Stefán Halldórsson Nóri. .. framhald af bls. 18 Áttu meiri rjómaís, fóstri? spyr Nóri, og þegar hann hefur fengið afganginn af ísnum og ávöxtunum og rjómanum held- ur hann áfram: Og aumingja Höskuldur í Verslunarbankanum, þessi indæli maður, vaknaði allt í einu upp við þann vonda draum, um það bil sem átti að fara að sameina bankann öðrum bönkum, að þessir guttar voru búnir að naga út úr honum 300 milljónir króna umfram það sem hann hafði veð fyrir. Stöð 2 rambaði á barmi gjaldþrots og um það bil helm- ingur af eiginfé Verslunarbankans var í stórhættu að tapast vegna þess „krafta- verks“ frjálshyggjufrömuðanna að pumpa amerísku afþreyingarefni inn á fjörutíu þúsund heimili í landinu tólf tíma í sólarhring. Skuldirnar voru þá orðnar hátt í einn og hálfan milljarð. Vel af sér vikið miðað við þriggja milljón króna startkapítal. Enda fékk sjónvarps- stjórinn norrænu markaðsverðlaunin mánuði áður en ævintýri hans var úti. en látum þetta nú allt vera, segir Nóri og þurrkar munnvikin á gulri bréfserví- ettu sem virðist hafa orðið afgangs frá páskunum og á óneitanlega illa við þennan prúðbúna dánumann. Hann heldur áfram: Þrátt fyrir allt voru nefnilega auralausu strák- arnir miklu skárri fjölmiðlamenn heldur en þeir þursar sem stigu út úr hömrum viðskiptaheimsins og tóku að sér Stöðina þegar útséð var um að „ábyrgir aðilar“ létu Verslunarbankann pranga vand- ræðabarninu upp á sig á fáránlegu yfir- verði. Þessir nýju eigendur voru úr fram- varðarsveit verslunarstéttarinnar. Ég skal segja þér hvað hann frændi minn segir um þetta mál, segir Nóri, enda er honum mikið niðri fyrir þegar hann ræðir þær hættur sem hann telur þjóð okkar búnar af fjölmiðlum í lúkun- um á kaupahéðnum sem rista grunnt í siðferði og vitsmunum. Hann æsti sig svo upp um daginn að litla negraprinsessan hans varð að klóra honum bakvið eyrun til að ná honum niður. Hún er afskap- lega blíð og góð við hann. Hvar náði hann í þessa vænu stúlku? spyr ég. Hann veiddi hana á söngröddina, svar- ar Nóri: Frændi minn var við verðbólgu- lækningar í Afríku og þurfti að ferðast um sveitir í vettvangskönnun. Eitt sinn snæddi hann nesti í skógarrjóðri ásamt bólugröfnum, norskum bílstjóra sínum sem hafði flosnað upp úr lýðháskóla- námi í Svíþjóð. Eftir máltíðina hófu þeir glúntasöng þarna í frumskógarrjóðrinu. Litla svarta kennslukonan var á göngu með barnahóp og gekk á hljóðið. Hún heillaðist svo af þingeyska söngvaranum að hún fól börnin öðrum en tók frænda minn að sér og hefur ekki vikið spönn frá honum síðan. Ég var víst ekki búinn að segja þér að frændi minn er bæði lag- vís og raddsterkur, jafnvígur á Litlu flug- una og Der var en skikkelig bondemand. Jæja, segi ég og geispa dónalega, en hvað hafði hagfræðingurinn víðförli um ástand og horfur á Stöð 2 að segja? Hann sagði að hingað til hefðu karlarnir sem keyptu Stöð 2 verið of uppteknir við að koma fyrirtækinu á réttan kjöl fjárhagslega og maka eigin króka í leiðinni til að reynast hættulegir öðrum, segir Nóri: En siðferðið í aðferð- um þeirra lofaði sannarlega ekki góðu. * 86 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.