Heimsmynd - 01.07.1992, Qupperneq 87

Heimsmynd - 01.07.1992, Qupperneq 87
Jón Ólafsson, kenndur við Skífuna, hefði getað tromrnað upp þáverandi forystu- menn Verslunarráðs og Verslunarbanka til að slá skjaldborg um sig meðan hann gerði hókus-pókus og náði til baka þeim milljónatugum sem var „hlutafjárfram- lag“ hans. Meira að segja hefði hann komist upp með að stinga upp á Þor- varði skólastjóra Verslunarskólans, sem reyndar var líka varaformaður bankar- áðs Verslunarbankans, í embætti sjón- varpsstjóra. Þetta hafi verið freistandi vegna launa og hlunninda enda hafi það hjálpað skólastjóranum til að kaupa hús í Arnarnesi. En skólastjórinn í sjón- varpsstjórahlutverkinu var auðvitað óskaviðsemjandi fyrir manninn sem hafði útvegað honum starfið. Jón seldi nefnilega Stöðinni lifandis býsn af tækj- um og auk þess útsendingarrétt á bíó- myndum í stórum stíl. Hann keypti einn- ig af myndverinu fjölföldun á vídeóspól- um Skífunnar. Á þessum tíma var ýtt úr starfi fjár- málastjóra sem ekki vildi bera ábyrgð á því að Stöð 2 bæri kostnað af lánum þeim sem Jóhann J. Ólafsson, Haraldur Haraldsson og Jón Ólafsson veltu á und- an sér í Búnaðarbankanum vegna „kaupa“ á hlutafé í Stöð 2, segir Nóri: Sömuleiðis var látinn róa dagskrárstjóri Stöðvar 2, sem klígjaði eitthvað við kvik- myndapökkunum frá Jóni Ólafssyni, innihaldi og verði. Ráðinn var í hans stað maður sem í tíð brautryðjendanna hafði verið sparkað til þess að ráða hinn. Svo skemmtilega vildi til að nýi dag- skrárstjórinn var með nýlegt fótarfar Jóns Ólafssonar á rassinum eftir spark úr starfi hjá Bylgjunni þegar honum var boðið inn á Stöð 2 og hann látinn skrifa undir efniskaupasamning við Skífuna. en skítt með það hver græðir á hverjum og með hvaða hætti, enda er það ekki það sem ,vekur ugg í brjósti frænda míns, segir Nóri: Hann segir að hættuástandið byrji þegar fjárhagur Stöðvarinnar hafi braggast nóg til að þessir fuglar fari að snúa sér að því að hafa áhrif á skoðanamyndun í land- inu. Hann segir að Halli í Andra hafi reynt að vinna þeirri skoðun fylgi að beita ætti Stöð 2 gegn Davíð Oddssyni í formannsslagnum við Þorstein Pálsson í fyrra. Ekkert varð af þessu, enda voru Davíðsmenn líka í hópnum. En auðvitað eru sumir þessara manna til alls vísir, ekki síst nú þegar þeir eru búnir að missa öll ítök í samtökum viðskiptalífsins og þar með lausir við allt aðhald frá þeim. Heldurðu að þetta sé nú ekki orðum aukið? segi ég: Þetta eru kannski ekki miklir menningarvitar, en þeim var þó treyst til að vera í forsvari fyrir Verslun- arráðinu og Verslunarbankanum á sín- um tíma og Jóhann J. er áreiðanlega vænsti maður því hann er vinur Harðar Sigurgestssonar, eins voldugasta manns- ins í viðskiptalífinu um þessar mundir. Mér skilst að Haraldur sé líka besti ná- ungi og geti rakið vináttusambönd um allt valdakerfið. Það kippa einhverjir í spotta ef þeir, eða Valsararnir, ætla að fara út af sporinu. Ekki ef Jón Ólafsson hefur þá í vasan- um, segir Nóri. að er lengi hægt að ná samkomulagi ef vitrir menn leggja gott til mál- anna, segi ég eins spek- ingslega og ég get. Þú talar eins og þú hef- ur vit til, segir Nóri: Þér dettur kannski í hug að það sé vænlegt að gera heiðursmanna- samkomulag við Jón Bæjó?B Rörabörn. . . framhald af bls. 32 hjá börnum á öllum aldri. Flestir foreldr- ar verða þó varir við einkenni þess að barnið þeirra sé komið með í eyrun. Oft verða börnin óvær á nóttunni en þrýst- ingur í eyranu er mestur þegar legið er útaf. Þau verða lystarlaus, pirruð og van- sæl og heyra oft illa. Lítil börn toga oft í eyrun og eru aum þegar komið er við þau. Þau sem hafa aldur til kvarta um eyrnaverk. í langflestum tilvikum fá börnin þó hita með bráðri sýkingu. Sú meðhöndlun sem börn fá við eyrnabólgum og vökva- söfnun í miðeyra er venjulega nokkurra daga sýklalyfjakúr ásamt nefdropum. í sumum alvarlegri tilfellum er gerð hljóðhimnu- ástunga og er barnið þá svæft á meðan og vökvinn sogaður út. Oft læknar tím- inn vökvasöfnunina og um sjötíu prósent barna læknast af sjálfu sér innan þriggja mánaða. I öðrum tilvikum getur sjúk- dómsástandið þó varað lengur, jafnvel árum saman. Öll meðferð miðast við að opna kokhlustina sem í eðlilegu ástandi á að opnast og sjá um þrýstingsjöfnun við hverja kyngingu. Það flýtir fyrir bata að lækna sýkingar í efri loftvegum með við- eigandi iyfjum, hafa hátt undir höfði að nóttu og ef barn hefur þroska til, að kenna því að blása lofti út í eyrun til að opna kokhlustina. Stundum þarf í fram- haldi af hljóðhimnuástungu að koma fyr- ir röri, eins konar ventli í hljóðhimnu- gatinu. Forsendur slíkrar röraísetningar eða hljóðhimnuástungu og nefkirtlatöku eru: Endurteknar bráðar eyrnabólgur, til dæmis mánaðarlega í fimm til sex mán- uði, eða vökva- og slímsöfnun í miðeyra sem ekki gengur yfir á um það bil þrem- ur mánuðum. egar rörinu er komið fyrir er barnið svæft, þá er maski lagður yfir vit þess og það andar að sér svæf- ingarlyfi. Svæfingin varir aðeins í um það bil tíu mínútur og barnið jafnar sig á skömmum tíma. Rörin eru notuð sem þrýstijafnari á and- rúmsloftið fyrir miðeyrað, þegar kok- hlust nær ekki að sinna því hlutverki og rörin hindra þar með vökva, það er að segja slímsöfnun í miðeyra og þar með dregur úr hættunni á tímabundinni eða viðvarandi heyrnarskerðingu, svo og samgróningum í miðeyra, en jafnframt minnka þau líkur á bráðri sýkingu í mið- eyra þar sem það er þá eðlilegra loftað. rörin eru yfirleitt gerð úr plasti og eru því aðskotahlutur sem líkaminn losar sig við með tímanum. Það er einstaklings- bundið hve lengi þau sitja, oft í fimm til sex mánuði, stundum eitt til tvö ár og einstaka sinnum þarf að fjarlægja þau með aðgerð. Til eru sérstök rör sem ekki losna af sjálfu sér og eru þau notuð í þeim tilfellum þar sem ljóst þykir að þeirra sé þörf í langan tíma. Sé um að ræða gat á hljóðhimnu eða sýkingu í hlust er nauðsynlegt að hlífa eyrum við vatni og börn með rör í hljóð- himnu eiga ekki að kafa djúpt í vatni. ekki virðist unnt að koma í veg fyrir þessa eyrnasjúk- dóma en hægt er að minnka líkurnar á þeim, til dæmis með heilbrigðu líferni og góðu mataræði, með því að meðhöndla sýkingar í efri öndunarfærum og talið er að brjóstagjöf fyrstu mánuði lífsins minnki líkurnar á eyrnabólgum. I ljósi þeirra alvarlegu afleiðinga sem þessir sjúkdómar geta haft á heyrn ungra barna, sé ekki brugðist rétt við þeim í tíma, verður að brýna það fyrir þeim sem annast ung börn að vera vel á verði gagnvart einkennum þessara sjúkdóma, til dæmis svefntruflunum, pirringi, lystar- leysi og vansæld. Börn eru yfirleitt á fyrstu æviárunum undir reglubundnu eft- irliti; ungbarnaeftirliti, hjá barnalæknum eða heimilislæknum . Oft líður langur tími á milli slíkra skoðana og þar sem þessir eyrnasjúkdómar geta dulist mjög lengi er sjálfsagt að leita strax til sérfræð- ings í eyrnalækningum leiki minnsti grunur á að barn sé komið með í eyr- un.B - Jóhanna H. Oddsdóttir HEIMSMYND 87
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Heimsmynd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.