Heimsmynd - 01.07.1992, Síða 89
ustu fatastærðirnar nú eru tólf, fjórtán og
sextán. Hér á árum áður þótti eftirsókn-
arverðast að ganga í stærðum sex og átta
en nú eru það helst þær smávöxnu sem
ganga í þeim.
að er ekki þar með sagt
að konur séu hættar að
hafa áhyggjur af vigtinni
en það hafa þær alltaf.
Flestar eru hins vegar
farnar að gera sér grein
fyrir því að erfðum og
upprunalegu vaxtarlagi
verður ekki breytt með megrunarkúrum.
„Konur fara í líkamsrækt til að styrkja
sig og liðka. Þær eru ekkert að pína sig
heldur gera þetta fyrir vellíðanina sem
fylgir í kjölfarið", segir þjálfari í Reykja-
vík. Flestar sem byrja að stunda líkams-
rækt og gera það stöðugt í einhvern tíma
með sýnilegum árangri, halda áfram.
Ung kona sem var orðin hátt í níutíu
kíló, „eins og tröllskessa í laginu“, eins
og hún lýsir því sjálf hefur mætt þrisvar í
viku í einhvers konar leikfimi í einni lík-
amsræktarstöðinni í Reykjavík. Hún Iít-
ur ekki út eins og Marilyn Monroe en
hún geislar af ánægju yfir eigin styrk og
auknum vöðvamassa á kostnað fitunnar.
Önnur sem hefur losað sig við tuttugu
kíló á einu ári er enn í þungavigt en stolt
yfir stæltum líkama sínum.
Anægjulegustu tíðindin í allri umræð-
unni um heilsurækt er aukinn áhugi eldri
kvenna á hreyfingu. I Bandaríkjunum er
nýjasta æðið svonefndar kraftagöngur
„powerwalking“ og sérverslanir hugsað-
ar fyrir þann markað spretta upp eins og
gorkúlur.
Burtséð frá breyttri kvenímynd þar
sem konur eiga ekki allar að vera sam-
kvæmt kynbombu- eða horrengluformúl-
unni er staðreyndin sú að helsti hvatinn
fyrir allri líkamsrækt er að ganga í augun
á hinu kyninu, segir þekktur íþrótta-
frömuður. Flestar konur gera sér grein
fyrir því að líkamsrækt og rétt mataræði
breytir þeim ekki í Cindy Crawford,
Claudiu Schiffer eða Lindu Pétursdóttur.
En það gerir heldur ekkert til. Fæstar
eru giftar mönnum sem líta út eins og
Sean Connery eða Arnold Schwarzeneg-
ger. Stöðug líkamsrækt af einhverju tagi
breytir vaxtarlaginu, kemur fólki í betra
form, eykur þol, vellíðan og lífslíkur.B
EF ÞÚ GERIST
ÁSKRIFANDIAÐ
FÆRÐ ÞÚ ÞRIÐJA HVERT BLAÐ FRÍTT!
- ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERA ÁSKRIFANDI -
ÁSKRIFTARSÍMI622020
HEIMSMYND 89