Heimsmynd - 01.04.1993, Page 59
alfarið undirheimasamtökum dr. Benways
til að heimta Joan úr helju seigfljótandi
eiturlyfja og saurlífis. Hann fær það verk-
efni að fara til „Frjálsalands" sem frétta-
maður og njósnari. Á landamærunum er
hann beðinn um að sanna að hann sé
rithöfundur. „Skrifaðu eitthvað,“ segir
hranalegur landamæravörður. Taka tvö:
Lee bregður sér í William Tell-hlutverkið
og skýtur Joan. Lee verður að skrifa. Endir.
vikmyndina er hægt að
lesa sem allegoríu um
þjáningu skáldsins;
skáldið sem verður að
skrifa, leggur sál sína að
veði. Lee drepur konu
sína (í ómeðvitaðri af-
brýði) og verður rit-
höfundur; í hvert skipti sem hann skrifar
drepur hann sína elskuðu, aftur og aftur og
hann verður að skrifa til að geta lifað af í
fáránlegum heimi, með angistinni og sekt-
inni. Við vitum jú að það er konan sem
fómar sér, hún er skáldskapargyðja manns-
ins. En til að styrkja goðsögnina verður að
færa hana í harmsögulegan búning: Af-
brýðisemi fellur að harmsögunni og hana
eigum við auðveldara með að fyrirgefa
heldur en banvæn fíflalæti. Og sjá:
Burroughs er í sömu sporum og Kreón eftir
að Antigóna er dáin af hans völdum:
dæmdur til að lifa áfram og horfast í augu
við fáránleikann.
í raunveruleikanum var dauði Joan
augljóslega hörmulegt, ömurlegt slys.
Bæði voru þau undir áhrifum, stödd í partíi
þar sem Burroughs átti stefnumót við mann
sem vildi kaupa af honum skammbyssu. En
þessa tilteknu byssu vildi hann losa sig við
því hún skaut of lágt! Atburðurinn gerðist
síðan eins og segir í myndinni nema
Burroughs var hreint ekki jafn svalur og
Lee í myndinni. Vegna þess að atburðurinn
gerðist í Mexíkó og sýnt þótti að um slys
væri að ræða, gat hann borgað tryggingu og
slapp við fangelsisdóm.
Eftir þetta fer Burroughs á flakk/flótta út
um víða veröld. Það var ekkert hetjulegt
við þetta fáránlega slys. Eftir skildi hann
fjögurra ára son sinn Billy sem foreldrar
Burroughs tóku að sér. Hann drakk sig til
dauðs þrjátíu og þriggja ára að aldri.
Nýlega hefur Burroughs sagt að hann hafi
komist að þeirri „hræðilegu niðurstöðu“ að
hann hefði ekki orðið rithöfundur nema
vegna dauða hennar, skrifin hafi bjargað
sér frá þeirri sálarkreppu sem hann þurfti að
eiga við. Sjálfsagt er sannleikskom í þessu
en ekki má gleyma að Burroughs var
byrjaður að skrifa og nota eiturlyf löngu
áður en hann kynntist Joan. Þessi róman-
tíska/módemíska skýring sem gengur út frá
hinni tilvistarlegu angist er einum of
auðveld og gengur aðeins upp ef líf manns
er „í raun“ samfella, eins og frásögn með
upphaf, byrjun, endi. En þessi skáldsaga,
þetta samfellda líf og merking kemur
aðeins eftirá. Ævisögur eru skáldsögur.
Burroughs er kominn úr útlegðinni í
Interzone; fluttur úr stórborginni og
kominn heim. Frá því um 1982 hefur hann,
að mestu, búið í Lawrence í Kansas,
dæmigerðum smábæ í miðríkjum Banda-
ríkjanna. Bærinn er aðeins í um 450 km
fjarlægð frá fæðingarstað Burroughs. Hann
býr einn í lágreistu timburhúsi með kött-
unum sínum sex sem hann elskar rneir en
nokkuð annað. Handan götunnar er
William Burroughs Communications til
húsa, en það fyrirtæki sér um öll viðskipta-
mál Burroughs og daglega kemur einhver
úr fyrirtækinu og eldar ofan í gamla mann-
inn. Burroughs er að mestu hættur að
skrifa, en þó hafa stuttir textar verið að birt-
ast allt fram á þetta ár.
Burroughs hefur alllengi fiktað við
málverkið en undanfarin ár hefur sá áhugi
færst í aukana. Hann hefur haldið nokkrar
sýningar og selur vel. En það er í fyrsta
skipti sem hann hagnast verulega á list-
sköpun. Ekki fer hann troðnar slóðir frekar
en í textagerðinni. Með því að sameina tvö
helstu áhugamál sín býr hann til
„haglabyssumálverk". Hann stillir máln-
ingardósum eða úðadósum með einum eða
fleiri litum fyrir framan krossviðarplötur og
skýtur þær síðan með haglabyssu. Stundum
notar hann pensil til að draga fram viss
atriði eða áhrif í „málverkinu“. Þama nær
hann fram handahófsáhrifunum en hann
sóttist einmitt eftir þeim í skrifunum.
Sumir af gömlu aðdáendunum vildu
sjálfsagt helst að hann legði skriftinar af
með öllu. Það er farið að bregða fyrir til-
finningasemi í textum gamla mannsins og
hann á það jafnvel til að ganga í skrokk á
eigin goðsögn. En Burroughs gamli hefur
59
ekki áhyggjur af efasemdum annarra og fer
sínar eigin leiðir eins og kötturinn. Bókin
The Cat Inside (1986) eða Kötturinn hið
innra eru hugleiðingar um lífið og tilveruna
og þar lýsir Burroughs ást sinni á köttum.
Þegar hann var ungur maður og heróínþræll
lagði hann á tímabili í vana sinn að pynta
ketti! En nú er hann búinn að finna köttinn
í sjálfum sér; veit nú að þegar hann kvaldi
kettina var hann að kvelja sjálfan sig.
Tilfinningasamur og meyr kattavinur lítur
yfir farinn veg og skilur ekki hvað hann
hefur verið hörð og köld manneskja, og
hann sér eftir ýmsu. Ef við skyggnumst á
bakvið goðsögnina og gleymum rithöfund-
inum um stund sjáum við mann sem er
búinn að eyða drjúgum hluta ævi sinnar í
sinnulausa vímu og hefur brugðist ýmsum
nákomnum; en helst syni sínum og vinkonu
sinni sem hann var giftur. Við sjáum þjáðan
einfara, sem þó þurfti alltaf á öðrum að
halda og hefði engu áorkað án hjálpar vina
sinna.
í Naked Lunch tilkynnir Burroughs: „Nú
mun ég, William Seward, losa orðamergð
mína...“ í lok The Western Lands (1987) þar
sem segja má að hann loki sinni miklu og
löngu skáldsögu, setur Burroughs sig í
þungbúnar stellingar sem minna á Samúel
Beckett: „Gamli rithöfundurinn gat ekki
skrifað lengur vegna þess að hann var
kominn að endalokum orða, endalokum
þess sem hægt er að gera með orðum.“
Honum hefur ekki tekist að „afmá orðið“ og
„eyðileggja öll málkerfi“, með orðin sjálf að
vopni. Vírusinn dafnar enn. En kannski
hefur gamli læknirinn alltént komið ágætri
sjúkdómsgreiningu á framfæri. Burroughs
er enn ekki „farinn“; eins og persóna úr
leikriti eftir Beckett heldur hann áfram að
vera, verður að halda áfram að vera. Hann
hangir áfram á þessari margfrægu ystu nöf;
kannski heldur hann í ræfilslega hvönn,
búinn að tína nóg. En hann á líka fóstbræður
að sem draga hann upp, í sífellu. Gamli
hrappurinn: William S. Burroughs; hættu-
legur maður í hættulegu starfi(?) ■
Handan götunnar er William Burroughs
Communications til húsa, en það fyrirtæki sér
um öll viðskiptamál Burroughs og daglega
kemur einhver úr fyrirtækinu og eldar ofan í
gamla manninn.
HEiMS
MYND