Heimsmynd - 01.04.1993, Síða 61
vegna þess að erfðaprinsar brezku krúnunnar
vaxa upp við gífurlegan þrýsting, það er sið-
ferðisleg skylda þeirra að tryggja krúnunni
lögmæta erfingja, ekki aðeins einn, heldur
l£ka nokkra til vara (reynslan hefur sýnt, að
prinsar týna tölunni eins og negrastrákamir í
kvæðinu). En þegar stóra stundin kom í lífi
þeirra, þá henti það Karl að falla fyrir lífs-
glöðu fiðrildi. Líklega hélt hann, að ung-
æðislega diskódísin dansaði úr sér á stuttum
tíma, tæki hlutverk sitt alvarlega og sæti
innan skamms við hlið hans í bókaher-
berginu með Milton í kjöltunni.
Kannski sá hann sig í hlutverki prófessors
Higgins.
Georg féll ekki fyrir Karólínu,
hann féll á eigin bragði. Georg
skuldaði. Pabbi hans, líka Georg
en annað númer, neitaði að
borga skuldir hans oftar. Georg
prins hafði þegar reynt ýmis
brögð eins og að selja af eignum sínum til
lúkningar skulda og þykjast lifa eins og ör-
eigi til að knýja fé út úr föður sínum. En
Georg pabbi var búinn að fá nóg. Prinsinn
eyddi og bruðlaði án þess að hlusta á orð
föður síns um ástandið í landinu. Að vísu
keypti hann oft listaverk sem í dag em
þjóðararfur Breta, en þá vom þau einkadekur
hans við sjálfan sig. Hingað og ekki lengra,
sagði Georg erfðaprins, þú hefur ekki fyrir
neinum að sjá nema sjálfum þér, ef þú vilt
hærri lífeyri, þá skaltu kvænast.
Svo Georg ungi kvæntist - í fjáröflunar-
skyni.
Það var raunar ekki satt að hann hefði
ekki fyrir neinum að sjá nema sjálfum sér.
Hann var þegar kvæntur, leynilega. Hjóna-
bandið var ólöglegt og ógilt, en hann var eigi
að síður með eiginkonu á framfæri, að
viðbættri hjákonu. Og hér getum við lagt
hluta sakarinnar við fætur Georgs III.
Georg konungur var heit-mótmælenda-
trúar og heit-andkaþólskur. Hann hannaði
hjónabandsskilmála brezku konungsfjöl-
skyldunnar sem eru í fullu gildi enn þann dag
í dag. Meðal annars banna skilmálamir
meðlimum fjölskyldunnar að kvænast eða
giftast kaþólikkum eða fráskildum og einnig
verða allir að fá samþykki ríkjandi konungs
eða drottningar fyrir ráðahag sínum, annars
er hann ógildur. Eiginkona Georgs var
kaþólsk. Honum hafði einnig láðst að leita
samþykkis föður síns fyrir ráðahagnum. Því
var honum í lófa lagið að svíkja hana þegar
að kreppti.
Akvæðið um trúarbrögð takmarkaði
prinsessuúrvalið vemlega. Eiginlega var fátt
grasa í garðinum utan þýzkra og enskra
prinsessa. Georg vildi enga enska prinsessu,
þær gátu verið svo náskyldar honum. Hann
ákvað að taka sér Karólínu af Brúnsvík til
eiginkonu, fyrirvaralaust (það gerðu inn-
heimtumennimir) og óskoðaða.
Þetta með skyldleikann kemur spánskt
fyrir sjónir. Karólína og Georg
voru nefnilega systkinaböm.
Þó var það náttúrulega alls
ekki eins mikill skyld-
leiki og sumir aðrir í
fjölskyldunni áttu við
að etja, til dæmis
bam bróður hans
og systur. Það var
náskylt sjálfu sér. B,
Kannski var það
vegna þess að tvö
bama hans áttu
bam saman og
annar sonur bjó
með giftri leik-
konu í 20 ár og átti
með henni 10 böm,
að Georg III hannaði
þessa ströngu hjóna-
bandsskilmála.
Karólína kemur, sést,
heyrist og tapar.
Brúnsvík var, þegar
Georg ákvað að giftast til
fjár, hertogadæmi á kletta-
syllu í Þýskalandi. Lafði
Karólína var 26 ára, eða
nokkuð til ára sinna kornin
af heimasætu að vera, ekki tiltakanlega fríð,
nokkur bmssa og tennumar teknar að gefa
sig. Hún var bráðlynd og sérstaklega var
skortur hennar á þolinmæði áberandi þegar
snyrting og klæðaburður var annars vegar.
Malmesbury lávarður, sem var sendur að
biðja um hönd hennar og sækja hana, tók
eftir sér til skelfingar að tilvonandi prins-
essan af Wales skipti sjaldan um sokka, gekk
í grófum strigaundirpilsum og eina fegrunar-
lyfið sem hún notaði var kinnalitur. Af
honum notaði hún þó frjálslega. Jafnvel þeir
sem náðu að kynnast henni vel gátu ekki
alltaf greint á milli hvort hún væri rauð af
æsingi eða hvort fullríflega hefði slampast af
kinnalitnum.
A meðan Malmesbury beið eftir nánari
fyrirskipunum og skipsfari til Englands með
Karólínu, vann hann í málinu. Hann undir-
stakk hirðmeyjar hennar varfæmislega um
þvott og snyrtingu, sendi málin af Karólínu
til Englands þar sem frambærilegri fatnaður
en fékkst í Þýzkalandi var hannaður, og ein-
beitti sér að því að fága prinsessuna.
Það reyndist iðja sem hvað eftir annað olli
honum siðferðislegu skipbroti. Karólína var
GEORG PRINS AF WALES
Ilmandi fagurkeri með nœmt
taugakerfi. Hann valdi sér
þýska hlussu, sem var lítt gefin
fyrir líkamsþvott.
hvorki haldin næmleika eða fíngerðari til-
finningum. Hún var hvatskeytin, hafði sterka
kímnigáfu sem braust út í tíma og ótíma og
var, í einu orði, óhefluð.
Malmesbury, Karólína og fylgdarlið
lögðu upp frá Brúnsvík í lok
desember 1794. Aðstæður til
ferðalaga vom einstæðar
um það leyti, harðasti
vetur í manna minnum
og Napóleonstríðin
að geysa í kringum
þau. Þau strönduðu
snemma ferðar í
•*. Osnabmck,
franski herinn
lokaði leiðinni og
kuldinn lokaði
þau inni. Malmes-
bury notaði biðina
til að fullkomna
fágun Karólínu, en
skriftir hans í Osna-
bmck bera bjartsýni
hans vitni: „Hún er
sérsinna, kauðsk, mdda-
leg í framkomu og ómót-
tækileg fyrir tilsögn." Og síðar:
„Prinsessan er alltof bama-
leg og var yfirgengilega kát
við kvöldverðinn."
Þegar Díana var búin
undir að taka við hlutverki
prinsessunnar af Wales,
flutti hún inn hjá drottningarmóðurinni um
skeið. Hafi drottningarmóðirin haldið dag-
bók, þá stendur líklega eitthvað í þessa veru
þar: „Prinsessan er nokkuð bamaleg, var
yfrrgengilega kát við kvöldverðinn og kann
ekki kímnigáfu sinni hóf.“
Karólína var táp og fjör og frískir menn
holdi klædd. Hún rabbaði kumpánlega við
hvem sem var, 150 árum áður en handhafar
brezku krúnunnar tóku upp þá stefnu að vera
lýðræðisleg við alþýðuna. Það var ekki
nokkur leið að kenna henni hvað maður
gerði og hvað maður gerði ekki. Malmes-
bury féll endanlega saman þegar Karólína
fékk tannpínu. Tönnin var dregin úr og
Karólína sendi velunnara sínum Malmes-
bury skemmdu tönnina að gjöf sem vott um
virðingu sína og væntumþykju.
Það er hér sem líflínur Díönu og Karólínu
taka að liggja samhliða. Hver man ekki eftir
myndum af kurteisisheimsóknum Díönu þar
sem hún er með rauða díla í kinnum að segja
eitthvað spaugilegt við menn og mýs og
viðkomandi getur ekki leynt vandræðalegu
fáti sínu?
Eftir tæpra þriggja mánaða bið komust
61
HEIMS
MYND