Víkurfréttir - 19.12.2019, Blaðsíða 38
Útskriftarnemendur textílbrautar FS sýna lokaverkefni sín í Landsbankanum
Kvíðinn hvarf í textílstofunni
„Það þurfa allir einhvern eins og Katrínu kennara í líf sitt“
Útskriftarnemendur textílbrautar Fjölbrautaskóla Suðurnesja hafa síðustu daga sýnt lokaverkefni sín í Landsbankanum í Reykjanesbæ en lokaverk-
efnin eru flíkur hannaðar af þeim sjálfum. Víkurfréttir náðu tali af útskriftarnemendunum og fræddust nánar um hönnunina þeirra en hönnuðirnir
eru þau Helgi Líndal, Kristín María Ingibjargardóttir og Natalía Nótt Árnadóttir. Þau tala fallega um námið og kennarann sinn, Katrínu, og stefna öll á
áframhaldandi nám en þó með ólíkum hætti.
„Ég fékk að sauma jakkaföt þar sem það er mjög erfitt og
krefjandi. Innblásturinn fékk ég frá jakkafötum sem Childish
Gambino, eða Donald Glover, var í á Met Gala árið 2018 en lita-
samsetningin mín er allt öðruvísi,“ segir Helgi en jakkafötin
hans voru gerð úr hans uppáhaldslitasamsetningu, rauðum
og svörtum.
Hann segist sáttur með textílnámið í FS, það hafi kennt sér heil-
margt og verið krefjandi. „Katta er svo góður kennari og hún
hefur hjálpað okkur öllum í lokaáfanganum mikið í gegnum
námið. Það mikilvægasta sem ég lærði í náminu er agi og þolin-
mæði. Ég hef hannað rosalega krefjandi flíkur þar sem það er
ekkert hægt að flýta sér. Það var rosalega erfitt fyrst, að vinna
flíkurnar hægt, en svo venst það.“
Eftir útskrift stefnir Helgi á nám erlendis. „Ég ætla núna að
fara að vinna og safna mér pening þar sem mig langar að halda
áfram að læra fatahönnun.“
Natalía Nótt saumaði tvo
kjóla, bol og pils úr svörtum og
hvítum. Hún lítur mikið til ein-
stakra kjóla sem birtast okkur
reglulega á rauða dreglinum
sem fræga fólkið hefur látið sér-
sauma fyrir sig. „Það besta við
textílhönnun er það að við fáum
tækifæri til þess að hanna eftir
okkar eigin ímyndunarafli. Ég
horfi á litina sem ég notaðist við
sem tákn. Það svarta tilheyrir
Íslendingunum og hið hvíta er
snjórinn sem við sjáum úti.“
Natalía stefnir svo á meistara-
nám í kjólasaum eftir útskrift,
enda heilluð af textíl eftir námið
í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
„Enginn tími var eins og ég
lærði alltaf eitthvað nýtt undir
leiðsögn frábærs kennara. Allt
frá því að teikna flík á blað,
búa hana til, auglýsa vöruna
með módelum og koma henni
á markað.“ Kristín María hannaði sumarlega barnalínu í útskriftarverkefni
sínu en hugmyndina fékk hún eftir fjölskyldufrí á Spáni. Þar
þótti dóttur hennar þægilegast að klæðast „túnic“ og Kristín
vildi hanna flíkur sem hentuðu henni. Línan inniheldur buxur,
kjól og topp. „Buxurnar anda vel í hita og eru pokalegar þannig
hún verður frjálsari í þeim en öðrum buxum.“
Eftir FS stefnir Kristín á kennaranám við Háskóla Íslands þar
sem hún vill leggja áherslu á kennslu við textíl. „Planið var alltaf
að halda áfram að læra fatahönnun en Katrín, sem kennir textíl
í FS, er svo yndislegur kennari og hefur hjálpað mér mikið í
skólanum og mig langar að feta í fótspor hennar sem kennari.
Allir þurfa einhvern eins og Katrínu kennara í líf sitt. Ég mun
samt halda áfram að hanna og sauma.“
Að læra textíl í FS segir Kristín hafa breytt lífi sínu þar sem
námið hafi hjálpað henni að kljást við kvíðaröskun. „Ég komst
fljótt að því að kvíðinn hjá mér hvarf um leið og ég gekk inn í
textílstofuna. Það mikilvægasta sem ég lærði var að það væri
allt í lagi að vera ófullkomin og rétt eins og Katrín sagði svo oft
í gegnum skólagönguna þá er gaman að rekja upp.“
Sendum bæjarbúum bestu óskir um gleðiríka jólahátíð og farsæld á nýju ári.
Sólborg Guðbrandsdóttir
vf@vf.is
VIÐTAL
38 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. desember 2019 // 48. tbl. // 40. árg.