Víkurfréttir - 19.12.2019, Qupperneq 48
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M Gleðileg jól!
GLEÐILEGA HÁTIÐ
og farsælt komandi ár
Fyrsta áfanga Hlíðahverfis í
Reykjanesbæ lýkur í júlí 2020
ÍBÚÐIR Á SÖLU HJÁ FASTEIGNASÖLUM
Fjölmenni var við útför Ásbjörns
Jónssonar, bæjarlögmanns Reykja-
nesbæjar, frá Keflavíkurkirkju síð-
astliðinn föstudag.
Ásbjörn lést 3. desember eftir erfið
veikindi. Hann varð sextugur 20. októ-
ber síðstliðinn. Sr. Erla Guðmunds-
dóttir jarðsöng og félagar úr Karlakór
Reykjavíkur og sönghópurinn Lyrika
sungu. Þá lék Kjartan Már Kjartans-
son á víólu og Arnór Vilbergsson var
organisti. Guðrún Matthildur Sigur-
bergsdóttir söng einsöng og dúett með
Jóni Val Guðmundssyni.
Fjölmenni við útför Ásbjörns Jónssonar
Dætur og ættingjar og vinir Ásbjörns báru kistu hans út úr kirkjunni og skátafélagar úr Heiðabúum stóðu heiðursvörð fyrir utan.
LOKAORÐ
Ragnheiðar Elínar
Jólin,
blessuð jólin
Ég hreinlega veit ekki hvernig þetta
gerðist, en það eru örfáir dagar til jóla.
Aftur! Mér líður eins og einhver hjá
almættinu hafi stolist í fjarstýringuna
og skemmt sér konunglega í allt haust
við að hraðspóla síðustu vikum ársins.
Það er í alvöru ekki heilt ár liðið frá
síðustu jólum.
Alltaf skulu þessi elsku blessuðu jól
læðast upp að mér og allar fyrirætl-
anir um huggulega, rólega aðventu
þar sem ég geri ekkert annað en að
hafa það notalegt með öllum mínum
bestu við kertaljós og jólatónlist,
hafa enn eitt árið fokið út í veður
og vind með síðustu trampolínum
sumarsins. Það stefnir í mjög hefð-
bundin jól á Heiðarbrúninni. Þegar
þetta er skrifað eru enn nokkrar
gjafir ókeyptar, allar gjafir enn óinn-
pakkaðar, jólakort óskrifuð og húsið
enn sem komið er með frekar lág-
stemmdar skreytingar, svo ég orði
það nú aðeins uppbyggilega.
Gjafir eru þegar farnar að berast í hús
til okkar frá elskulegum vinum og
ættingjum sem við erum enn að velta
fyrir okkur hvað við ætlum að gefa í
jólagjöf. Þegar við Lubbi göngum um
bæinn sé ég ekkert nema fullskreytt
jólatré inni í stofu hjá fólki, sem sum
hver hafa staðið þar frá því í nóvem-
ber! Þessu hef ég mikið verið að velta
fyrir mér. Ég er alin upp við það að
jólatréð var sett upp á Þorláksmessu
þegar allt var að verða klárt fyrir jólin
og húsið ilmaði af hreinlæti í bland
við ilm af hangikjöti og greni. Þetta
var upphafið að jólunum heima hjá
mér og gerði þennan tíma alltaf svo
sérstaklega einstakan. Í minningunni
var þetta svona alls staðar, nema hjá
Bryndísi vinkonu minni, þar sem
jólatréð fór snemma upp, en það var
vegna þess að fjölskylda hennar átti
bókabúð og voru önnum kafinn allan
jólamánuðinn í búðinni.
En hefur tréð kannski alltaf verið
komið upp svona snemma hjá öllum
nema minni fjölskyldu – getur það
verið? Voru mamma og pabbi kannski
bara alltaf í ruglinu á síðustu stundu
með þetta allt saman sem skapaði
þessa jólahefð hjá okkur? Jólahefð
sem ég nota bene hef algjörlega tekið
með mér inn í mín jól. Tja...þegar
stórt er spurt!
Ég mun væntanlega ekki breyta miklu
þetta árið hvað tímasetningar varðar.
Það saxast á listann og jólin munu
koma í allri sinni dýrð hvað sem
verður eftir ógert á listanum. Eins og
alltaf. Og stóra, fallega jólatréð (sem
búið er að kaupa!), verður frumsýnt
á Þorláksmessu. Eins og alltaf.
Njótið jólanna kæru lesendur.