Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.2019, Síða 48

Víkurfréttir - 19.12.2019, Síða 48
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir MUNDI S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M Gleðileg jól! GLEÐILEGA HÁTIÐ og farsælt komandi ár Fyrsta áfanga Hlíðahverfis í Reykjanesbæ lýkur í júlí 2020 ÍBÚÐIR Á SÖLU HJÁ FASTEIGNASÖLUM Fjölmenni var við útför Ásbjörns Jónssonar, bæjarlögmanns Reykja- nesbæjar, frá Keflavíkurkirkju síð- astliðinn föstudag. Ásbjörn lést 3. desember eftir erfið veikindi. Hann varð sextugur 20. októ- ber síðstliðinn. Sr. Erla Guðmunds- dóttir jarðsöng og félagar úr Karlakór Reykjavíkur og sönghópurinn Lyrika sungu. Þá lék Kjartan Már Kjartans- son á víólu og Arnór Vilbergsson var organisti. Guðrún Matthildur Sigur- bergsdóttir söng einsöng og dúett með Jóni Val Guðmundssyni. Fjölmenni við útför Ásbjörns Jónssonar Dætur og ættingjar og vinir Ásbjörns báru kistu hans út úr kirkjunni og skátafélagar úr Heiðabúum stóðu heiðursvörð fyrir utan. LOKAORÐ Ragnheiðar Elínar Jólin, blessuð jólin Ég hreinlega veit ekki hvernig þetta gerðist, en það eru örfáir dagar til jóla. Aftur! Mér líður eins og einhver hjá almættinu hafi stolist í fjarstýringuna og skemmt sér konunglega í allt haust við að hraðspóla síðustu vikum ársins. Það er í alvöru ekki heilt ár liðið frá síðustu jólum. Alltaf skulu þessi elsku blessuðu jól læðast upp að mér og allar fyrirætl- anir um huggulega, rólega aðventu þar sem ég geri ekkert annað en að hafa það notalegt með öllum mínum bestu við kertaljós og jólatónlist, hafa enn eitt árið fokið út í veður og vind með síðustu trampolínum sumarsins. Það stefnir í mjög hefð- bundin jól á Heiðarbrúninni. Þegar þetta er skrifað eru enn nokkrar gjafir ókeyptar, allar gjafir enn óinn- pakkaðar, jólakort óskrifuð og húsið enn sem komið er með frekar lág- stemmdar skreytingar, svo ég orði það nú aðeins uppbyggilega. Gjafir eru þegar farnar að berast í hús til okkar frá elskulegum vinum og ættingjum sem við erum enn að velta fyrir okkur hvað við ætlum að gefa í jólagjöf. Þegar við Lubbi göngum um bæinn sé ég ekkert nema fullskreytt jólatré inni í stofu hjá fólki, sem sum hver hafa staðið þar frá því í nóvem- ber! Þessu hef ég mikið verið að velta fyrir mér. Ég er alin upp við það að jólatréð var sett upp á Þorláksmessu þegar allt var að verða klárt fyrir jólin og húsið ilmaði af hreinlæti í bland við ilm af hangikjöti og greni. Þetta var upphafið að jólunum heima hjá mér og gerði þennan tíma alltaf svo sérstaklega einstakan. Í minningunni var þetta svona alls staðar, nema hjá Bryndísi vinkonu minni, þar sem jólatréð fór snemma upp, en það var vegna þess að fjölskylda hennar átti bókabúð og voru önnum kafinn allan jólamánuðinn í búðinni. En hefur tréð kannski alltaf verið komið upp svona snemma hjá öllum nema minni fjölskyldu – getur það verið? Voru mamma og pabbi kannski bara alltaf í ruglinu á síðustu stundu með þetta allt saman sem skapaði þessa jólahefð hjá okkur? Jólahefð sem ég nota bene hef algjörlega tekið með mér inn í mín jól. Tja...þegar stórt er spurt! Ég mun væntanlega ekki breyta miklu þetta árið hvað tímasetningar varðar. Það saxast á listann og jólin munu koma í allri sinni dýrð hvað sem verður eftir ógert á listanum. Eins og alltaf. Og stóra, fallega jólatréð (sem búið er að kaupa!), verður frumsýnt á Þorláksmessu. Eins og alltaf. Njótið jólanna kæru lesendur.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.