Víkurfréttir - 19.12.2019, Side 14
Ef einhver ætti að fá titilinn fjölhæfasti Grindvíkingurinn þá er Pálmar Örn Guðmunds-
son örugglega ofarlega á listanum. Hann er menntaður íþróttafræðingur en hefur aldrei
kennt fagið í grunnskóla. Hann þjálfar drengi í knattspyrnu, kennir salsadans, málar,
sinnir skógrækt og spilar á gítar. Hann verður fertugur á næsta ári og ákvað að gera svo-
lítið skemmtilegt af því tilefni.
Grindvíkingurinn fjölhæfi ákvað að
gefa út eitt nýtt lag á viku og setja
á tónlistarstreymis-síðuna Spotify
í fjörutíu vikur og enda á afmælis-
tónleikum.
Tímamót á fertugsafmælinu
„Árin færast yfir,“ syngur Pálmar í
laginu sem hann flytur fyrir Víkurf-
réttamenn þegar þeir heimsækja
hann til Grindavíkur. Ertu farinn að
telja árin og gráu hárin?
„Mér finnst ég líta mjög vel út,
svona miðað við aldur, en yngri
verður maður ekki. Ég er að verða
fertugur á næsta ári og af því til-
efni ákvað ég að taka upp eitt lag
í hverri viku í 40 vikur og setja á
Spotify. Svo get ég vonandi haldið
tónleika í lokin. Það er draumur-
inn.“
Er langt síðan þú byrjaðir að
semja og syngja?
„Ég byrjaði að læra á gítar svona
tólf, þrettán ára. Svo þegar ég var
fimmtán ára byrjaði maður að
hnoða saman einhverjum texta. Ég
myndi ekki segja að ég væri ein-
hver svaka textahöfundur en ég get
alveg hnoðað í ágætis texta.“
Hefurðu verið að koma fram hér
og þar?
„Já, ég er að spila sem svona partý-
trúbador og mæti þá í afmæli og
vinnustaðapartý, gæsanir, brúð-
kaup og alls konar og kem þá með
lög sem fólk þekkir og reyni að fá
það til að syngja með og dansa. Ég
hef verið að spila svolítið í Reykja-
nesbæ og það er alltaf ótrúlega
góð stemning. Þar er partý-fólkið,
í Bítlabænum. Það er einhver teng-
ing þarna greinilega.“
Þú er menntaður íþróttafræð-
ingur. Af hverju ert þú ekki að
kenna leikfimi í þínu bæjarfélagi?
„Ég er alinn upp í Grindavík og fer
svo að mennta mig í skóla annars
staðar. Svo þegar ég kem til baka
þá vantar ekki íþróttakennara og
ég enda í almennri kennslu og var
í því í alveg tíu, tólf ár. Svo ákvað
ég að segja það gott og einbeita
mér aðeins að þessu, listinni og
gítarnum.“
Tapaði salsa stelpunni
Þannig að íþróttafræðingurinn er
líka myndlistarmaður og kennir
líka dans?
„Já, ég er að kenna salsa í Reykja-
vík. Fyrir nokkrum árum síðan fór
ég til Kúbu og var þar í tíu vikur
og þvældist um eyjuna. Það voru
svona ákveðin tímamót og ég fann
að ég þyrfti að breyta eitthvað til.
Ég hitti vin minn og hann hafði
farið til Kúbu. Hann á konu og börn
og sagðist ekki geta farið en sagði
við mig: „Þú getur farið“. Það var
ekkert að stoppa mig. Ég ákvað að
hætta að kenna og skellti mér til
Kúbu. Þar lærði ég svona grunn-
skrefið í salsa. Ég var þarna að
ferðast um og alls staðar er salsa.
Ég kynnist því þar en mér fannst
svo leiðinlegt að ég kynni ekki að
dansa. Í eitt skiptið var ég á leiðinni
á nýjan stað og kynnist þessari
gullfallegu stúlku í rútunni, við
tengjum vel saman og förum að
skipuleggja einhverjar ferðir. Svo
förum við út um kvöldið og á salsa-
kvöld. Til að gera langa sögu stutta
þá hverfur hún út í myrkrið með
einhverjum salsa dúdda. Ég hugs-
aði bara: „Þetta mun ekki gerast
aftur. Nú skal ég læra salsa.“
Aftur til Grindavíkur. Ertu búinn
að vera að spila eitthvað fyrir
Grindvíkinga?
„Nei, voða lítið. En ég segi oft að
það geti verið svolítið erfitt að vera
kóngur í eigin ríki. Líka sérstak-
lega þar sem ég hef verið að vinna
rosa mikið með börnum og þá er
kannski svolítið skrýtið. Ég er mjög
mikið á Reykjavíkursvæðinu en
ég var á Fjörugum föstudegi í Fish
House í Grindavík. Oftast er ég að
spila á lokuðum viðburðum, einka-
samkvæmum. Það er það sem mér
finnst skemmtilegast, þegar fólk
er ekki að koma til að hlusta á mig
heldur að syngja með mér.“
Mikill knattspyrnuáhugi ungra
Pálmar þykir hafa náð mjög
góðum árangri í þjálfun ungra
knattspyrnumanna í Grindavík og
áhuginn er mjög mikill. Þetta hefur
vakið athygli út fyrir bæjarfélagið.
„Já, ég hef þjálfað í mörg ár. Það
er mjög skemmtilegt að þjálfa
þessa yngstu. Þar er náttúrulega
grunnurinn. Ef maður vinnur vel
með grunninn þá er hægt að gera
ýmislegt seinna. En þó maður sé
náttúrulega að búa til fótbolta-
menn þá snýst þetta um að virkja
krakkana, fá þau í íþróttirnar. Ég
er með mjög hátt hlutfall krakka
að æfa bæði yfir sumar og vetur.
Það er árangur í fótbolta líka, að
fá krakkana til að vilja vera með.
Núna er ég með 6. og 7. flokk
drengja og þar eru í heildina um 70
strákar.“
Sérðu einhvern Eið Smára í
hópnum?
„Það eru allavega margir sem
vilja það. Það er fullt af efnilegum
strákum og spennandi að fylgjast
með þeim. Það er svo skemmtilegt
við þjálfuna, að sjá þá vaxa áfram
eftir að maður er hættur með þá.
Þá halda þeir áfram og blómstra.
Það er fín fótboltaaðstaða í
Grindavík, meðal annars knatt-
spyrnuhús.
„Jú, áður vorum við í íþróttahús-
inu yfir veturinn. Ég brosi ennþá
yfir þessu húsi, Hópinu. Líka bara
þekkjandi það þegar maður var
sjálfur að æfa í gamla daga á möl-
inni, þetta er allt annað.“
Fjölhæfasti
Grindvíkingurinn
Pálmar Örn Guðmundsson þjálfar unga knattspyrnumenn, sinnir myndlist,
skógrækt, dans og tónlist. Gefur út nýtt lag í hverri viku í 40 vikur.
14 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM