Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.2019, Page 14

Víkurfréttir - 19.12.2019, Page 14
Ef einhver ætti að fá titilinn fjölhæfasti Grindvíkingurinn þá er Pálmar Örn Guðmunds- son örugglega ofarlega á listanum. Hann er menntaður íþróttafræðingur en hefur aldrei kennt fagið í grunnskóla. Hann þjálfar drengi í knattspyrnu, kennir salsadans, málar, sinnir skógrækt og spilar á gítar. Hann verður fertugur á næsta ári og ákvað að gera svo- lítið skemmtilegt af því tilefni. Grindvíkingurinn fjölhæfi ákvað að gefa út eitt nýtt lag á viku og setja á tónlistarstreymis-síðuna Spotify í fjörutíu vikur og enda á afmælis- tónleikum. Tímamót á fertugsafmælinu „Árin færast yfir,“ syngur Pálmar í laginu sem hann flytur fyrir Víkurf- réttamenn þegar þeir heimsækja hann til Grindavíkur. Ertu farinn að telja árin og gráu hárin? „Mér finnst ég líta mjög vel út, svona miðað við aldur, en yngri verður maður ekki. Ég er að verða fertugur á næsta ári og af því til- efni ákvað ég að taka upp eitt lag í hverri viku í 40 vikur og setja á Spotify. Svo get ég vonandi haldið tónleika í lokin. Það er draumur- inn.“ Er langt síðan þú byrjaðir að semja og syngja? „Ég byrjaði að læra á gítar svona tólf, þrettán ára. Svo þegar ég var fimmtán ára byrjaði maður að hnoða saman einhverjum texta. Ég myndi ekki segja að ég væri ein- hver svaka textahöfundur en ég get alveg hnoðað í ágætis texta.“ Hefurðu verið að koma fram hér og þar? „Já, ég er að spila sem svona partý- trúbador og mæti þá í afmæli og vinnustaðapartý, gæsanir, brúð- kaup og alls konar og kem þá með lög sem fólk þekkir og reyni að fá það til að syngja með og dansa. Ég hef verið að spila svolítið í Reykja- nesbæ og það er alltaf ótrúlega góð stemning. Þar er partý-fólkið, í Bítlabænum. Það er einhver teng- ing þarna greinilega.“ Þú er menntaður íþróttafræð- ingur. Af hverju ert þú ekki að kenna leikfimi í þínu bæjarfélagi? „Ég er alinn upp í Grindavík og fer svo að mennta mig í skóla annars staðar. Svo þegar ég kem til baka þá vantar ekki íþróttakennara og ég enda í almennri kennslu og var í því í alveg tíu, tólf ár. Svo ákvað ég að segja það gott og einbeita mér aðeins að þessu, listinni og gítarnum.“ Tapaði salsa stelpunni Þannig að íþróttafræðingurinn er líka myndlistarmaður og kennir líka dans? „Já, ég er að kenna salsa í Reykja- vík. Fyrir nokkrum árum síðan fór ég til Kúbu og var þar í tíu vikur og þvældist um eyjuna. Það voru svona ákveðin tímamót og ég fann að ég þyrfti að breyta eitthvað til. Ég hitti vin minn og hann hafði farið til Kúbu. Hann á konu og börn og sagðist ekki geta farið en sagði við mig: „Þú getur farið“. Það var ekkert að stoppa mig. Ég ákvað að hætta að kenna og skellti mér til Kúbu. Þar lærði ég svona grunn- skrefið í salsa. Ég var þarna að ferðast um og alls staðar er salsa. Ég kynnist því þar en mér fannst svo leiðinlegt að ég kynni ekki að dansa. Í eitt skiptið var ég á leiðinni á nýjan stað og kynnist þessari gullfallegu stúlku í rútunni, við tengjum vel saman og förum að skipuleggja einhverjar ferðir. Svo förum við út um kvöldið og á salsa- kvöld. Til að gera langa sögu stutta þá hverfur hún út í myrkrið með einhverjum salsa dúdda. Ég hugs- aði bara: „Þetta mun ekki gerast aftur. Nú skal ég læra salsa.“ Aftur til Grindavíkur. Ertu búinn að vera að spila eitthvað fyrir Grindvíkinga? „Nei, voða lítið. En ég segi oft að það geti verið svolítið erfitt að vera kóngur í eigin ríki. Líka sérstak- lega þar sem ég hef verið að vinna rosa mikið með börnum og þá er kannski svolítið skrýtið. Ég er mjög mikið á Reykjavíkursvæðinu en ég var á Fjörugum föstudegi í Fish House í Grindavík. Oftast er ég að spila á lokuðum viðburðum, einka- samkvæmum. Það er það sem mér finnst skemmtilegast, þegar fólk er ekki að koma til að hlusta á mig heldur að syngja með mér.“ Mikill knattspyrnuáhugi ungra Pálmar þykir hafa náð mjög góðum árangri í þjálfun ungra knattspyrnumanna í Grindavík og áhuginn er mjög mikill. Þetta hefur vakið athygli út fyrir bæjarfélagið. „Já, ég hef þjálfað í mörg ár. Það er mjög skemmtilegt að þjálfa þessa yngstu. Þar er náttúrulega grunnurinn. Ef maður vinnur vel með grunninn þá er hægt að gera ýmislegt seinna. En þó maður sé náttúrulega að búa til fótbolta- menn þá snýst þetta um að virkja krakkana, fá þau í íþróttirnar. Ég er með mjög hátt hlutfall krakka að æfa bæði yfir sumar og vetur. Það er árangur í fótbolta líka, að fá krakkana til að vilja vera með. Núna er ég með 6. og 7. flokk drengja og þar eru í heildina um 70 strákar.“ Sérðu einhvern Eið Smára í hópnum? „Það eru allavega margir sem vilja það. Það er fullt af efnilegum strákum og spennandi að fylgjast með þeim. Það er svo skemmtilegt við þjálfuna, að sjá þá vaxa áfram eftir að maður er hættur með þá. Þá halda þeir áfram og blómstra. Það er fín fótboltaaðstaða í Grindavík, meðal annars knatt- spyrnuhús. „Jú, áður vorum við í íþróttahús- inu yfir veturinn. Ég brosi ennþá yfir þessu húsi, Hópinu. Líka bara þekkjandi það þegar maður var sjálfur að æfa í gamla daga á möl- inni, þetta er allt annað.“ Fjölhæfasti Grindvíkingurinn Pálmar Örn Guðmundsson þjálfar unga knattspyrnumenn, sinnir myndlist, skógrækt, dans og tónlist. Gefur út nýtt lag í hverri viku í 40 vikur. 14 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.