Víkurfréttir - 19.12.2019, Blaðsíða 16
Enginn vinningur?
Þú átt enn möguleika! Skilaðu miðanum
í kassa í næstu Nettó-verslun á Suðurnesjum.
Næsti útdráttur er á Þorláksmessu kl. 18:00.
Skafmiðaleikur Víku
rfrétta og verslana á
SuðurnesjumJólalukka
Rúna Björg Júlíusdóttir, starfsmaður Icelandair
og líftækninemi við Háskóla Akureyrar:
Horfir á
klassísku
jólamynd-
irnar með
litla bróður
Hvað ætlar þú að gera það sem eftir
lifir desembermánaðar?
„Ég ætla njóta með fjölskyldunni,
klára loksins bókina sem ég byrjaði
á í sumar og slaka á.“
Hvað finnst þér það besta við
þennan tíma?
„Það besta við jólin er þegar prófin
eru búin og maður þarf ekki pæla
í neinum lærdómi.“
Hver er þín uppáhaldsjólahefð?
„Uppáhalds hefðin mín er að
horfa á klassísku jólamyndirnar,
þá sérstaklega Grinch, með yngri
bróður mínum og borða jóla-
mat.“
Ætlar þú að láta gott af þér leiða
í desember? Ef svo er, hvernig?
„Ég hafði í rauninni ekki pælt í
því, eins slæmt og það hljómar,
en þar sem þú spyrð þá finn ég
eitthvað til að gefa af mér.“
Fyrir hvað ertu þakklát/ur?
„Ég er annars mjög þakklát
fyrir mína nánustu, kallinn
minn og fjölskylduna mína.“
Valþór Pétursson:
Maturinn það besta við jólin
Hvað ætlar þú að gera það
sem eftir lifir desember-
mánaðar?
„Það á eftir að versla í jóla-
matinn, pakka inn pökkum
og svo þarf víst að setja upp
jólatré á Þorláksmessu.“
Hvað finnst þér það besta við
þennan tíma?
„Klárlega maturinn.“
Hver er þín uppáhaldsjólahefð?
„Hangikjöt hjá ömmu og afa.“
Ætlar þú að láta gott af þér leiða í
desember? Ef svo er, hvernig?
„Ég hef ekkert hugsað út í það,
maður veit þó aldrei.“
Fyrir hvað ertu þakklát/ur?
„Ég er þakklátur fyrir allt góða fólkið
í kringum mig.“
Sara Böðvarsdóttir, starfsmaður
Líkama&Boost í Sporthúsinu:
Vill að
allir hafi
það gott
um jólin
Hvað ætlar þú að gera það
sem eftir lifir desember-
mánaðar?
„Ég ætla njóta þess að
vera til, æfa eins og ég
get og slaka á þar á
milli þar sem ég kláraði
allt jólastúss snemma í
desember.“
Hvað finnst þér það besta við
þennan tíma?
„Myrkrið, jólaljósin, kertaljós, jólalögin og jólaskrautið. Ég
elska jólin.“
Hver er þín uppáhaldsjólahefð?
„Uppáhaldsjólahefðin mín er klárlega möndlugrauturinn á að-
fangadag.“
Ætlar þú að láta gott af þér leiða í desember? Ef svo er, hvernig?
„Ég reyni alltaf að vera góð við alla, hjálpsöm sérstaklega í
desember ef ég veit að vinir eða kunningjar þurfa á því að halda.
Vil að allir hafi það gott um jólin.“
Fyrir hvað ertu þakklát?
„Ég er þakklát fyrir fjölskylduna mína, vini og bara lífið.“
MIKIÐ ÚRVAL AF
FALLEGUM JÓLAGJÖFUM
KROSSMÓA - REYKJANESBÆ
Yfir hátíðirnar verður opið sem hér segir:
Mánudag 23. des.: 9–16.30
Þriðjudag 24. des.: Lokað
Föstudag 27. des.: 9–16.30
Mánudag 30. des.: 9–16.30
Þriðjudag 31. des.: 10-12
Fimmtudag 2. jan.: Lokað vegna vörutalningar
Minnum á að eftir áramót verður opið
á laugardögum kl. 10–13
Starfsfólk Dýralæknastofu Suðurnesja óskar
viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
með þökk fyrir viðskiptin á árinu.
16 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM