Víkurfréttir - 19.12.2019, Qupperneq 36
Una er á heimavelli í höfuðstöðvum Íslandsbanka í
Norðurturni Smáralindar í Kópavogi. Una er fram-
kvæmdastjóri viðskiptabanka Íslands en hjá bankanum
starfa yfir áttahundruð manns. Við spyrjum hana út í
fækkun starfsmanna hjá bönkunum undanfarin ár.
„Þeim mun fækka en það er svo
sem ekkert nýtt við það. Ég var
einu sinni að stjórna þrjátíu útibú
um, nú erum við með fjórtán. Við
erum samt með fleiri viðskiptavini.
Breytingarnar eru auðvitað mjög
hraðar. Aðalatriðið er bara að fylgja
þeim eftir, aðlaga okkur að þeim og
sjá tækifærin í þeim líka. Það eru
fullt af tækifærum í breytingum en
þetta er ekkert auðvelt. Það er allt
af erfitt að takast á við breytingar.“
Áskorun í breytingaástandi
Hvað er viðskiptavinurinn að
græða á öllum þessum breyt-
ingum í bankaheiminum?
„ Við vorum einmitt að gera eina
breytingu á einu útibúi þar sem
við áttum samtöl með fjölda við
skiptavina um það af hverju við
værum að gera þetta og hlustuðum
á hverjar væntingar þeirra væru
til þjónustu. Viðskiptavinurinn vill
bara fá góða, mannlega, persónu
lega þjónustu. Það er svo margt
sem þeir gera í símanum sem er
frábært og þegar þú byrjar að nota
tæki og tækni þá vill maður ekki
fara til baka. Það eru auðveldir
hlutir sem þú vilt bara klára, milli
færslur, sjá stöðuna og allt þetta
en svo þarftu náttúrulega ráðgjöf.
Þá geta þeir að sjálfsögðu talað við
ráðgjafa sinn en þetta er að breyt
ast rosalega hratt. Þetta breytist
með nýju kynslóðunum sem eru
að koma inn. Ég heimsæki mikið
af fyrirtækjum og það eru allir að
tala um það sama. Það er verið að
breyta kerfum, setja upp sölu á net
inu og reyna einhvern veginn að að
laga þetta, velta því fyrir sér hvern
ig þeir eigi að tala við viðskiptavini
og svo framvegis. Þjónustan hjá
okkur er okkar sýn. Við ætlum að
vera með góða þjónustu en það er
auðvitað áskorun í svona miklu
breytingaástandi. En við verðum að
hugsa um viðskiptavininn, númer
eitt, tvö og þrjú.“
Við höfum spurt viðskiptavini
bankanna í Víkurfréttum hvort
þeir fari í bankann og það var
aðallega af tveimur ástæðum, að
hitta ráðgjafa út af lánamálum
og fara í hraðbankann. Þurfið þið
allt þetta húsnæði þegar heim-
sóknum fækkar og þjónustan
færist meira á netið?
„Við erum alltaf að minnka við hús
næðið. Um leið og útibúum hefur
farið fækkandi þá hefur fermetrum
verið að fækka. Við höfum líka
verið að búa til minni útibú og svo
framvegis þannig að við aðlögum
okkur bara að breytingunum
eins og við gerðum hér í höfuð
stöðvunum.“
En það verða alltaf bankar, útibú?
Þetta verður aldrei allt á netinu.
„Bankinn verður alls konar dreifi
leiðir, síminn, ráðgjafinn, net
bankinn o.s.frv.. Það verður alltaf
bankaþjónusta en formið á henni
er auðvitað að breytast mjög mikið.
Fólk er ennþá mikið að koma í
útibú til þess að greiða reikninga
en það er alltaf að minnka. Ég
myndi ekki setja þetta á eldri kyn
slóðina, það er líka fólk á miðjum
aldri og jafnvel yngra. Það hefur
alveg komið á óvart. Þú getur líka
pantað mjólkina á netinu en þú
ferð samt alltaf út í búð og nærð í
mjólkina. Það er einhver skýring
á þessu. Við erum bara að fylgja
þessu og fara ekkert á undan við
skiptavininum. Við ætlum að gera
þetta saman með honum.“
Mannfræðin góð
Hvernig varðst þú svona mikil
bankamanneskja? Var þetta
draumurinn?
„Ég fór í viðskiptafræði í Fjöl
Una Steinsdóttir er kraftmikil Kefla-
víkurmær og hefur látið að sér
kveða í bankageiranum og unnið
hjá Íslandsbanka í þrjátíu ár. Hún
varð yngsti bankaútibússtjóri Ís-
landsbanka aðeins þrítug og hefur starfað hjá bank-
anum frá því hún var í framhaldsskóla. „Ég er lands-
byggðartútta og held uppi merkjum landsbyggðarinnar
eins mikið og ég get,“ segir hún stolt þegar Víkurfrétta-
menn heimsóttu hana ekki alls fyrir löngu. Hún var
viðmælandi Sjónvarps Víkurfrétta í þáttaröðinni Suður
með sjó en þátturinn er aðgengilegur á vf.is.
Una er dóttir hjónanna Steins Erl
ingssonar og Hildar Guðmunds
dóttur og hún á systurina Dagnýju
og átti bræðurna Guðmund og Einar
en þeir eru báðir látnir. Sorgin hefur
því barið dyra hjá fjölskyldunni og
við ræðum það við Unu síðar í viðtal
inu. En byrjum á því að spyrja hana
út í bernskuna þegar við hittum
hana á Garðskaga. Faðir hennar,
Steinn Erlingsson, var með í för og
hann blandar sér aðeins í viðtalið.
Hann er uppalinn í Garðinum.
Í höfuðið á merkri
konu í Garði
„Ég er skírð í höfuðið á Unu í Garði.
Ég get stolt sagt frá því að ég er víst
fyrsta Unan sem var skírð í höfuðið
á henni og hún hélt á mér undir
skírn. Una í Garði var fræg og þekkt
fyrir ýmsa hæfileika á dulræna
sviðinu. Hún var ekki frænka mín.
Við vorum ekkert skyldar. Hún var
afskaplega lágvaxin kona. Við fórum
rosa mikið með pabba og mömmu í
Garðinn í Sjólyst. Þar átti hún lítið,
gult hús. Allt var rosalega lítið og
þegar maður kom inn þá þurfti að
beygja sig. Það var mikil dulúð yfir
þessu en ég var nú stolt af því að
vera skírð í höfuðið á þessari konu.“
Steinn: „Maður komst ekkert hjá
því.“
Una: Við hliðina á Sjólyst var síðan
Steinshús og þaðan er þessi karl
hann pabbi, enda heitir hann Steinn.
Steinn: „Langafi minn hét Steinn
Lárusson Knudsen og byggði þarna
gamalt hús sem var eiginlega eins og
Unuhús, eða nærri Sjólyst. Ég fékk
þetta nafn, Steinn. Það vantar bara
Lárus,“ segir hann og hlær.
Una: „Já, það er rosa mikið af
Steinum í þessari fjölskyldu, Steinn,
Steinunn og Þorsteinn, sem sagt
mikið af grjótumt.“
Var æska hennar eitthvað í líkingu
við þína, sem ungur strákur hérna
Steinn?
Steinn: „Nei, það var ekkert í lík
ingu. Maður var ekkert með síma,“
segir hann og lítur á farsíma dóttur
innar sem hún veifar í viðtalinu.
Una: „Hvað meinarðu?“
Steinn: „Það varð að fara upp á sím
stöð til að fá pantað símtal. Ekki
alveg svoleiðis í dag.“
Una: „Það er ekkert svo rosalega
langt síðan, pabbi. En við pabbi
erum voða mikið að koma hingað
því núna erum við alltaf að spila golf
úti í Sandgerði. Hann segir að það sé
svo gott að spila golf í Sandgerði því
það er svo mikið logn af þessum vita
hérna í Garðinum. Þetta er svo mikil
vitleysa,“ segir hún og hlær meira.
Steinn: „Það er skjól í norðanátt
inni hérna.“
Una: „Mér finnst bara svo gaman að
koma hingað því maður kom hingað
sirka sjö sinnum í viku þegar maður
var að alast upp. Maður var náttúru
lega dálítið heilaþvegin, keyrt hingað
í hverri viku og svo átti maður að
þekkja öll hús sem maður náttúru
lega gleymdi strax aftur. En svo hef
ég verið að reyna að muna þetta allt
saman í seinni tíð.“
Þetta er nú einn af fallegri stöðum
á Suðurnesjum.
Una: „Já, þetta er ofsalega fallegur
staður.“
Steinn: „Þetta er það. Þetta er
ómetanlegur staður.“
Þú varst í handbolta sem ung stelpa
en ert komin í golfið núna.
Una: „Já, ég byrjaði að spila hand
bolta í Keflavík. Svo lagðist nú hand
boltinn niður. Ég var um þrítugt
þegar ég hætti að spila handbolta
þannig að ég gerði mitt þar. Svo
þegar fór ég Reykjavíkur og spilaði
bæði með Val og Stjörnunni í mörg
ár, það var algjörlega mitt áhugamál.
Alveg brjálæðislega áhugaverður
og skemmtilegur tími. Þar kynnist
maður fólki sem á eftir að fylgja
manni alla leið. Það aldeilis víkkaði
tengslanetið að vera í íþróttum. Ég
ætlaði að byrja í golfi fyrir tíu árum
en nú er ég byrjuð og það er gott að
hafa pabba með.“
Þú varst góð í handbolta.
Una: „Já, ég var alveg ágæt. Ég á
nokkuð marga landsleiki að baki en
þeir voru ekkert margir landsleik
irnir hjá stelpunum á þessum tíma.“
Það eru örugglega ekkert margar
konur á Suðurnesjum sem eiga
landsleiki í handbolta.
Una: „Nokkrar, þó nokkuð margar!
Það var náttúrlega rosa flott hand
boltalið hérna á árum áður og
maður gæti talið upp nokkrar. En
auðvitað, klárlega hafa þær orðið
færri eftir því sem tíminn hefur
liðið.
Það eru margir íþróttamenn og -kon-
ur sem segja þetta: „Ég vildi að ég
hefði byrjað fyrr í golfi.
Una: Já, algjörlega. Þetta er rosalega
tímafrekt en þegar maður skipu
leggur sig þá er allt hægt. Þetta
er rosalega skemmtilegt sport og
þegar maður hefur smá bolta í sér
þá kemur þetta oft fljótar en hjá
hinum. Þetta er ofsalega gaman og
líka bara gaman að vera á Íslandi.“
Segðu okkur, Steinn, hvernig stelpa
var þetta?
Steinn: „Hún var alveg indæl hún
Una. Það var ekkert vandamál. Hún
fór í skólann og kom heim. Þetta var
allt voða reglubundið.“
Hún er leiðtogi. Kom það snemma
í ljós?
Steinn: „Já, það gerði það. En því
miður tókst mér ekki að fylgjast
nógu vel með krökkunum því ég
var svo mikið á sjónum í burtu. Ég
hef verið meira með þeim núna,
sem betur fer.“
Hún er búin að vera svolítið spræk
þessi stelpa.
Steinn: „Já, þetta er svolítið í ætt
inni, að vera alltaf að, ekki að hanga
yfir hlutunum. Hún hefur tekið það
mjög ríkulega til sín. Það er mjög
gaman og áhugavert þegar fólk er lif
andi í því sem það er að gera, starfar
þannig. Það er ekki öllum gefið.“
Una: „Svo vorum við pabbi saman í
skóla þegar hann hendir sér í Tón
listarskólann svona á miðjum aldri
og fer að leggja fyrir sig sönginn
meira. Það var samt rosa erfitt að
kenna honum tónfræði.“
Steinn: „Já, ég veit ekkert af hverju
ég fór í þetta. En svona með tím
anum þá hefur maður orðið var við
það að þau sem eru að syngja er allt
gott fólk. Þetta er svona sáluhjálp
líka. Það hjálpar mér gríðarlega
mikið að syngja.“
Páll Ketilsson
pket@vf.is
VIÐTAL
Landsbyggðartútta
36 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM