Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Side 52
52 MATUR 18. október 2019
Það er lítið mál að töfra fram dásamlegt brauðmeti heima fyrir – Hér eru þrjár mjög ólíkar uppskriftir
Hráefni:
n 2 msk. þurrger
n 2 bollar volgt vatn
n 3 msk. sykur
n 2 tsk. salt
n 6 ½ bolli brauðhveiti
n 3 egg
n 50 g brætt smjör
Aðferð:
Byrjið á því að blanda þurrgeri, volgu
vatni, sykri, salti og helmingnum af
hveitinu vel saman. Leyfið þessu að
standa í 5 mínútur. Blandið síðan
eggjunum við, einu í einu. Því næst
er smjörinu blandað við og því næst
restinni af hveitinu. Skellið deig-
inu á hreinan borðflöt sem búið er
að dusta með hveiti og hnoðið það
létt. Skellið deiginu í skál, stráið smá
hveiti yfir, setjið hreint viskastykki yfir
skálina og leyfið deiginu að hefast í
1 klukkustund á þurrum og volgum
stað. Skellið deiginu aftur á borð-
flötinn og hnoðið það upp með smá
hveiti. Skiptið deiginu í sirka 15 parta
og búið til kúlur úr því. Raðið þeim á
smjörpappírsklædda ofnplötu. Setj-
ið viskastykkið yfir og leyfið stykkjun-
um að hefast í 20–30 mínútur. Hitið
ofninn í 200°C og bakið rúnnstykkin
í 15–20 mínútur. Penslið þau með
smjöri um leið og þau koma úr ofnin-
um. Þið getið líka nuddað smjörstykk-
inu á þau, þar sem smjörið bráðnar á
stundinni. Njótið!
Deig – Hráefni:
n 1/3 bolli volgt vatn
n ½ bolli léttmjólk
n 1 msk. smjör
n 1 pakki þurrger
n 1 ½ tsk. sjávarsalt
n 3 bollar hveiti
n 1 egg
n 3 msk. ólífuolía
Fylling – Hráefni:
n ¾ bolli rifinn ostur
n 3 msk. rifinn parmesanostur
n ½ bolli ólífur (saxaðar)
n 2 hvítlauksgeirar (saxaðir)
n 1 bolli skinka (grófsöxuð)
n ¼ bolli ferskt basil (saxað)
Toppur – Hráefni:
n 1 msk. ólífuolía
n 1 tsk. ítalskt krydd
n ½ tsk. sjávarsalt
n ½ tsk. hvítlaukskrydd
Aðferð:
Byrjum á deiginu. Hitið mjólkina og smjör-
ið saman í örbylgjuofni þar til blandan
er orðin volg og smjörið nánast bráðnað.
Blandið þessu saman við vatnið, gerið og
sjávarsaltið og leyfið þessu að bíða í um
fimm mínútur, eða þar til blandan byrjar
að freyða. Blandið síðan restinni af hrá-
efnunum saman við og hnoðið vel saman.
Smyrjið skál með örlítilli olíu og setjið
deigið í hana. Setjið hreint viskastykki eða
klút yfir skálina og leyfið deiginu að hefast
í um klukkustund.
Fletjið deigið út og dreifið fyllingunni yfir.
Rúllið deiginu síðan upp eins og þegar
þið bakið kanilsnúða og færið rúlluna yfir
á smjörpappírsklædda ofnplötu. Passið
að snúa sárinu niður. Takið ykkur skæri í
hönd og klippið í deigið hér og þar – þetta
skref er ekki nauðsynlegt en gerir brauðið
voða fallegt og leyfir fyllingunni að gægjast
út hér og þar. Klæðið herlegheitin í plast-
filmu og leyfið deiginu að hefast aftur í um
40 mínútur.
Hitið ofninn í 175°C. Takið plastfilmuna
af deiginu og blandið öllu vel saman sem
á að fara í toppinn. Í toppinn má að sjálf-
sögðu nota hvaða krydd sem er – fer allt
eftir smekk. Penslið deigið vel með topp-
inum og setjið plötuna síðan inn í ofn í
35–40 mínútur, eða þar til brauðið er orðið
fallega gullinbrúnt. Leyfið brauðinu aðeins
að bíða, bara í nokkrar mínútur, og byrjið
svo gúfferíið!
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Æðisleg
rúnnstykki
Ómótstæðilegt
ítalskt brauð
Hráefni:
n 2¼ tsk. þurrger
n 1 bolli volgt vatn
n 2 msk. volg nýmjólk
n 3 msk. púðursykur
n 4 msk. brætt smjör
n 1 tsk. sjávarsalt
n 3 bollar hveiti
n 2 lítrar vatn
n ½ bolli matarsódi
Aðferð:
Blandið vatni, mjólk, púðursykri og
sjávarsalti saman í stórri skál og strá-
ið þurrgeri yfir blönduna. Leyfið
þessu að standa í um fimm mínútur
eða þar til blandan byrjar að freyða.
Blandið smjöri og hveiti saman við
gerblönduna og hrærið þokkalega
vel saman. Hnoðið deigið í 1–2 mín-
útur í skálinni, skellið deiginu sem
er búið að dusta hveiti á og hnoðið
í 2–3 mínútur í viðbót. Smyrjið smá
olíu í skálina og dembið deigkúlunni
ofan í hana. Setjið hreint viskastykki
yfir skálina og leyfið þessu að hefast í
55–60 mínútur á volgum stað. Stillið
ofninn á 230°C og setjið smjörpappír
á ofnplötu.
Hellið vatni og matarsóda í stóran pott
og látið koma upp suðu á hæsta hita.
Á meðan vatnið er að hita sig búið þið
til bollur úr deiginu, eins stórar og þið
viljið. Þegar vatnið er byrjað að bull-
sjóða skellið þið bollunum ofan í það,
bara 1–2 í einu, og látið þær liggja í
vatns- og matarsódablöndunni í 30
sekúndur. Takið bollurnar upp úr
vatninu og raðið á ofnplötuna. Sker-
ið x í bollurnar, ekki mjög djúpt, strá-
ið vel af sjávarsalti yfir þær og bakið í
14–16 mínútur, eða þar til bollurnar
eru orðnar dásamlega dökkar og djú-
sí. Ekki er verra að pensla þær með
smjöri um leið og þær koma úr ofn-
inum.
Pretzel-rúnnstykki