Fréttablaðið - 28.09.2017, Side 10
Regnið byrjar með
stökum dropa.
Manal al-Sharif,
skipuleggjandi
Women2Drive
herferðarinnar
Sádi-ArAbíA „Ég trúði þessu ekki. Ég
fór bara að hlæja, hoppa og öskra.
Þetta er mikill sigur,“ sagði Sahar
Nassif, sádiarabísk baráttukona, í
viðtali við BBC í gær en í fyrrinótt
gaf Salman konungur tilskipun
þess efnis að konum yrði heimilt
að keyra bíla. Sagðist Nassif ætla að
kaupa draumabílinn sinn af þessu
tilefni, svartan og gulan Mustang
blæjubíl.
Mikil fagnaðarlæti voru í Persa-
flóaríkinu vegna tíðindanna í gær.
„Þetta er risavaxið skref fyrir konur.
Það er frábært að sjá konur við stýr-
ið, bæði bókstaflega og í táknrænni
merkingu. Feðraveldið er hægt en
örugglega að breytast í jafnréttisríki.
Þetta er stórkostlegt. Þetta eru fyrstu
skrefin í átt að frelsi,“ sagði hin 26
ára Sultana al-Saud í samtali við The
Guardian í gær.
Manal al-Sharif, einn skipuleggj-
enda Women2Drive herferðarinnar,
sem hefur jafnframt verið fang-
elsuð fyrir að setjast undir stýri í
Sádi-Arabíu, fagnaði tíðindunum
á Twitter og sagði að Sádi-Arabía
yrði aldrei söm. „Regnið byrjar með
stökum dropa,“ tísti al-Sharif.
Er þetta annar jafnréttissigur
kvenna á skömmum tíma en þeim
var í fyrsta skipti heimilt að taka
þátt í að fagna þjóðhátíðardegi Sádi-
Araba á mánudag.
Með tilskipun konungs varð Sádi-
Arabía síðasta ríki heims til þess að
leyfa konum að keyra. Aðeins karl-
menn hafa hingað til mátt taka bíl-
próf og hættu konur sem keyrðu á
að verða handteknar og sektaðar.
Næstu skref eru þau að sérstök
nefnd verður skipuð til þess að ráð-
leggja stjórnvöldum um hvernig sé
best að aflétta banninu. Verður til-
skipunin síðan að lögum þann 24.
júní árið 2018.
Khaled bin Salman, prins og
sendiherra Sádi-Arabíu í Bandaríkj-
unum, sagði í gær að konur þyrftu
jafnframt ekki leyfi karlmanns
til þess að taka bílpróf og að þær
mættu keyra hvar sem þær vildu.
Alþjóðasamfélagið tók þátt í
fagnaðarlátunum og var António
Guterr es, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, ánægður með
skrefið. „Ég styð ákvörðun Sádi-
Araba um að aflétta banni við akstri
kvenna. Þetta er mikilvægt skref í
rétta átt,“ tísti Guterres.
Ekki hafa þó allir Sádi-Arabar
tekið tíðindunum fagnandi en
ríkið er eitt það íhaldssamasta í
heiminum þegar kemur að jafn-
rétti kynjanna. Greinir BBC frá því
að íhaldssömustu raddirnar hafi
sagt ríkisstjórnina brjóta sjaríalög.
Langt er þó í land fyrir sádi-
arabískar konur. Þurfa þær til að
mynda að hlýða ströngum lögum
um klæðaburð, þær mega ekki gefa
sig á tal við ókunnuga karlmenn og
verða að vera í fylgd karlmanns, eða
fá skriflegt samþykki karlmanns,
vilji þær ferðast, vinna eða sækja
þjónustu innan heilbrigðiskerfisins.
thorgnyr@frettabladid.is
Konur fagna afléttingu akstursbanns
Gleði ríkti á meðal sádiarabískra kvenna í gær eftir að konungur leyfði þeim að keyra. Sádi-Arabía er síðasta ríkið til að heimila konum
að aka bifreið. Baráttan fyrir akstursréttindum löng. Enn er þó langt í land og konur þykja kúgaðar á fjölmörgum sviðum samfélagsins.
Konum í Sádi-Arabíu verður brátt heimilt að keyra. NordicphotoS/AFp
írAk Haider al-Abadi, forsætis-
ráðherra Íraks, fór í gær fram á að
yfirvöld í Íraska Kúrdistan ógiltu
niðurstöður nýafstaðinna kosninga
um sjálfstæði svæðisins. Kosið var
á mánudag og greiddu 92 prósent
kjósenda með því að lýsa yfir sjálf-
stæði en kjörsókn var rúm sjötíu
prósent.
Írakar, sem og alþjóðasamfélagið,
hafa gagnrýnt kosningarnar harð-
lega. Krafðist íraska ríkisstjórnin
þess að þær yrðu ekki haldnar og
lýsti þær ólöglegar.
Al-Abadi sagði í gær að hann
myndi „aldrei nokkurn tímann ræða
niðurstöðuna“ við yfirvöld á svæð-
inu og kallaði eftir því að Kúrdar
hæfu viðræður á hátt sem stenst
stjórnarskrá landsins.
Kúrdar hafa áður sagt að jákvæð
útkoma kosninganna myndi ekki
þýða tafarlausa sjálfstæðisyfir-
lýsingu. Hún myndi fremur veita
umboð til að hefja viðræður við
Íraksstjórn og nærliggjandi ríki um
sjálfstæði.
„Ef þau vilja hefja viðræður verða
þau að ógilda niðurstöður kosning-
anna sem og kosningarnar sjálfar,“
sagði al-Abadi. Enn fremur sagði
hann forgangsmál sitt nú vera að
vernda íbúa ríkisins og lofaði hann
því að verja Kúrda gegn hvaða árás-
um sem er. – þea
Niðurstöðurnar verði gerðar ógildar
haider al-Abadi krefst ógildingar kosninga Kúrda. FréttAblAðið/EpA
ÞýSkAlAnd Óljóst er hvaða flokkar
munu mynda ríkisstjórn í Þýskalandi
eftir nýafstaðnar kosningar. BBC
greinir frá því að óvissan hafi leitt
til þess að gengi evrunnar mældist
lægra í gær en það hefur gert undan-
farinn mánuð.
Líklegast þykir að Kristilegir
demókratar (CDU/CSU), undir for-
ystu Angelu Merkel, muni leiða ríkis-
stjórn með Frjálslynda demókrata
(FDP) og Græningja sér við hlið.
Það er eini mögulegi meirihlutinn
ef frá eru talin stjórnarmynstur með
flokkum sem hafa útilokað samstarf
með ákveðnum flokkum eða ríkis-
stjórnarsetu alfarið.
Christian Lindner, leiðtogi FDP,
sagði í samtali við Die Welt í gær
að þótt stærðfræðin gengi upp teldi
flokkurinn sig hafa umboð til að
breyta stefnu þýskra stjórnmála.
Flokkur Linder var annar tveggja
sem bættu við sig meira en eins pró-
sentustigs fylgi frá 2013.
Talið er að lengst sé á milli Græn-
ingja og FDP. Eru flokkarnir til að
mynda ósammála í mennta-, inn-
flytjenda- og Evrópumálum, að því
er BBC greinir frá. – þea
Erfitt verkefni fram undan
Angela Merkel kanslari reynir að
mynda ríkisstjórn. NordicphotoS/AFp
· Skýrsla stjórnar
· Endurskoðaðir reikningar félagsins
· Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins
· Atkvæði um skýrslu stjórnar og endurskoðaða reikninga
· Breytingar á samþykktum félagsins
· Kjör formanns til eins árs
· Stjórnarkjör
· Kjör löggilts endurskoðanda
og eins skoðunarmanns
· Ákvörðun um félagsgjald
· Önnur mál
Aðalfundur AFS á Íslandi verður
haldinn kl. 14.00, laugardaginn 7. október
í húsnæði samtakanna í Skipholti 50c.
Skipholt 50C | 552 5450 | info-isl@afs.org | afs.isfacebook.com/skiptinemi
AÐALFUNDUR #AFSeffect
Fu
n
d
ar
ef
n
i
Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Sólgleraugnadagar
20%
afsláttur
2 8 . S e p t e m b e r 2 0 1 7 F i m m t U d A G U r10 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð