Morgunblaðið - 12.09.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
Í tengslum við nýkynnt fjárlöghafa orðið umræður um sífellt
aukin útgjöld ríkisins og er ekki
vanþörf á. Í grein Óla Björns
Kárasonar alþingismanns hér í
blaðinu í gær
kom fram að
frá árinu
2017 til
næsta árs, á
þremur ár-
um, sé gert
ráð fyrir að
útgjöld ríkisins aukist um 139
milljarða króna, eða um 18% að
raungildi. Hvernig sem á það er
litið þá er það gríðarleg útgjalda-
aukning. Ef horft er lengra aftur
verða tölurnar enn meira sláandi
og ættu að vekja fólk til umhugs-
unar um að nauðsynlegt sé að
stöðva útgjaldaaukninguna eigi
ekki illa að fara.
Á vef Hagstofunnar má sjá línu-rit yfir þróun útgjalda hins
opinbera, ríkis og sveitarfélaga,
frá árinu 1980 til 2018, eða á 38
ára tímabili. Árið 1980 voru út-
gjöld hins opinbera 34% af lands-
framleiðslunni en voru 42% í fyrra.
Haldi þessi vöxtur áfram verður
hlutur hins opinbera kominn í um
það bil helming landsframleiðsl-
unnar um miðja öldina og flestir
hljóta að vera sammála um að slík
þróun er ískyggileg.
Hluti af vextinum kemur framhjá ríkinu, sem er með rúm
30% af landsframleiðslunni, en ört
vaxandi hlutur sveitarfélaganna,
sem farið hafa úr 7% í 13% lands-
framleiðslunnar, er enn meira
áhyggjuefni.
Nauðsynlegt er að stjórnmála-menn, bæði í sveitarstjórnum
og á Alþingi, séu meðvitaðir um
þessa hættulegu þróun og grípi til
ráðstafana til að draga úr umsvif-
unum áður en það verður um
seinan.
Ískyggilegur vöxtur
hins opinbera
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Garðabær hefur auglýst breytingu á
deiliskipulagi á Álftanesi vegna for-
setasetursins á Bessastöðum.
Tillagan gerir ráð fyrir breyting-
um á aðkomu og bílastæðum framan
við Bessastaði. Gert er ráð fyrir að
bílastæði í brekkunni norðan og
vestan við kirkju verð flutt yfir á
túnið norðan við núverandi heimreið
og fjær forsetasetrinu. Gert verður
ráð fyrir um 110 bílastæðum sem
munu hafa grænt yfirbragð og ætlað
að vera áfram hluti af túnum Bessa-
staða. Ný almenningsstæði á túninu
verða lögð hertum grasmottum.
Jafnframt verður gert ráð fyrir
stæðum fyrir hópferðabíla meðfram
heimreið að norðanverðu. Öryggis-
hlið færist til. Markmið breytingar-
tillögunnar er að að auka öryggi og
bæta aðgengi ferðamanna og ann-
arra sem sækja Bessastaði heim.
Fram kemur í greinargerð með
tillögunni að á síðustu árum hafi um-
ferð að Bessastöðum aukist veru-
lega, bæði í tengslum við fjölgun
ferðamanna og umfang við opinber-
ar móttökur embættisins. Það eitt
og sér hafi kallað á auknar öryggis-
kröfur og endurskoðun á umferðar-
flæði almennt.
Tillögurnar eru aðgengilegar á vef
Garðabæjar, www.gardabaer.is.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta geta gert athugasemdirer til
og með 22. október nk. sisi@mbl.is
Græn bílastæði við Bessastaði
Umferð að staðn-
um hefur stóraukist
undanfarin ár
Morgunblaðið/Ófeigur
Bessastaðir Umferð á staðinn hef-
ur stóraukist á undanförnum árum.
Að meðaltali voru 375 manns á bið-
lista eftir hjúkrunarrými á öðrum
fjórðungi ársins, samkvæmt upplýs-
ingum frá embætti landlæknis.
Fram kemur á heimasíðu embætt-
isins að biðlisti hafi lengst umtals-
vert frá árinu 2014 og náð hámarki í
lok árs 2018 en heldur styst það sem
af sé ári. Einkum fjölgaði í hópi
þeirra sem höfðu beðið lengur en 90
daga á tilgreindum tímapunktum.
Í yfirliti landlæknisembættisins
kemur fram að flestum rýmum hafi
verið úthlutað á fyrsta ársfjórðungi
hvers árs.
Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2019
fengu 273 einstaklingar hjúkrunar-
rými, fleiri en árin á undan. Af þeim
biðu ríflega 50% lengur en 90 daga.
Það hlutfall var innan við 20% á
sama tímabili ársins 2014 og fór í
fyrsta skipti yfir 50% á fyrsta árs-
fjórðungi ársins 2019.
Hjúkrunarrýmum fjölgar lítið
Lítil fjölgun varð á hjúkrunar-
rýmum á landsvísu á síðustu 10 ár-
um, að sögn landlæknisembættisins.
Árið 2017 fækkaði rýmum og ekkert
hjúkrunarrými bættist við árið 2018.
Á árinu 2019 hafa ný hjúkrunarrými
hins vegar verið opnuð á Seltjarnar-
nesi og í Hafnarfirði. Fjölgun hjúkr-
unarrýma á höfuðborgarsvæðinu
virðist þegar hafa haft jákvæð áhrif
á fjölda á biðlista. Alls eru 790
hjúkrunarrými á framkvæmdaáætl-
un til ársins 2023, þar af er fjölgun
um rúmlega 580 rými og endur-
bætur á yfir 200 rýmum. Segir
landlæknisembættið að toppnum
virðist hafa verið náð hvað varði
fjölda á biðlista á höfuðborgarsvæð-
inu, eftir stöðuga fjölgun á biðlistum
síðan 2014.
375 á biðlista eftir
hjúkrunarrými
Biðlistar hafa
heldur styst það sem
af er þessu ári
Morgunblaðið/Ómar
Rými Íbúð í hjúkrunarheimili.
HAUSTTILBOÐ
20% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
INNRÉTTINGUM
Í SEPTEMBER
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán. – Fim. 9–18
Föstudaga. 9–17
Laugardaga. 11–15