Morgunblaðið - 26.09.2019, Síða 20

Morgunblaðið - 26.09.2019, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Þetta er gott fyrir líkama og sál. Alls konar fólk kemur saman og upp- lifir að svitna saman næstum nakið í þessari nánd, þá gerist alltaf eitthvað ótrúlega skemmtilegt. Þó að engir tveir hópar séu eins er alltaf mikil já- kvæðni ríkjandi. Þetta snýst líka um að þrauka, láta sig hafa það, bæði að vera í hitanum í gufunni og vera í kuldanum í sjónum, en hvort tveggja veitir mikla vellíðan eftir á. Allir koma á sínum forsendum og enginn er neyddur til eins eða neins,“ segir Hafdís Hrund Gísladóttir, Gúsfrú og eigandi fargufunnar Rjúkandi sem er í formi hjólhýsis sem hún útbjó sem gufubað og ferðast um með til að bjóða fólki að koma og njóta. „Þetta á allt upphaf sitt í því að ég fór fyrir nokkrum árum til Kaup- mannahafnar til að skoða baðaðstöðu þegar ég var starfandi strandvörður á Ylströndinni í Nauthólsvík. Í fram- haldi af því fór ég að fara meira til Danmerkur til vinkonu minnar þar og við böðuðum okkur í sjó og gufu saman og fórum á árlega gufu- viðburði sem stóðu yfir heila helgi. Tjöldum var skellt upp, heitum pott- um, veitingastöðum og fleiru og þar sá ég í fyrsta sinn nokkra hreyf- anlega gufuvagna, hjólhýsi. Ég gaf mér tvö ár til að hugsa um hvernig ég ætti að framkvæma hugmynd mína um fargufu á hjólum, tók svo tvö ár í að útbúa hjólhýsið og rúllaði af stað með það í sumar. Fólk er him- inlifandi með þetta,“ segir Hafdís, sem keypti notað hjólhýsi, reif allar innréttingar úr því, lagaði það sem þurfti að laga, klæddi að innan með krossviði og panel, smíðaði bekki og setti að lokum kamínu, viðarkyntan ofn. „Ég gerði þetta ein og sér og sjálf, sinnti þessu í garðinum heima eftir vinnu.“ Sungið, kveðið og spjallað Í Rjúkandi fargufu býður Haf- dís upp á svokallaða gufugusu sem felst í því að Gúsfrúin leiðir þriggja lotu kröftuga ofursánu með ilm- olíum. „Ég kveiki eld í kamínunni svo steinarnir ofan á henni hitni, fólk sest síðan inn í heita gufuna og dvel- ur þar með mér í tíu mínútur. Ég spila tónlist, spjalla, býð fólki til dæmis klaka til að kæla sig, kaffi- korg og blöðruþang til að skrúbba sig með á meðan ég eys vatni á sjóð- andi steinana. Síðan förum við út í kaldan sjó og eftir það aftur í gufuna. Í þrígang gengur það þannig og við drekkum vel á milli. Gufugusa er stunduð á Norðurlöndum og í Þýska- landi en þetta snýst um að vera í miklum hita og ég kalla þetta gusur, því ég gusa miklu vatni á sjóðheita steinana til að ýkja hitann. Hand- klæði er sveiflað með ákveðnum hætti inni í gufunni, en ég nota stór- an blævæng til þess, þá fer loftið á hreyfingu, Stundum er sungið, kveð- ið, leikið á gong, það er hægt að út- færa gufugusur á ótal vegu, hug- myndaflugið ræður för,“ segir Hafdís, sem er mikil sjósundskona og reynir því ævinlega að setja far- gufuna upp í nálægð við hafið, svo hún og þeir sem mæta í gufuna geti kælt sig í sjónum á milli heitu gus- anna. „Það þarf ekki nauðsynlega að vera við sjó, það er líka hægt að fara bara í gufu.“ Borgarstjóri mætti í gusu Fyrsta langferð Hafdísar með fargufuna í sumar var í Norðurfjörð á Ströndum og var það engin til- viljun. „Ástæðan fyrir því að fargufan heitir Rjúkandi, er sú að stofnun samtaka um verndun umhverfis, náttúru og menningarminja í Árnes- hreppi sem heita Rjúkandi var mikið rædd heima hjá mér á þeim tíma sem ég var að smíða og gera gufubaðið klárt. Ég sá að það var eina rétta nafnið á fargufuna,“ segir Hafdís, sem bauð blaðamanni í gufugusu til viðtals þar sem hún var stödd kvöld eitt við Ægisíðuna í Reykjavík. „Hér er alveg sérstakt and- rúmsloft og töfrar í lofti. Ákveðin þorpsstemning og notalegt að fólk gengur hér framhjá og kíkir við og forvitnast. Allir eru svo upprifnir yfir þessu og ánægðir eftir gufugusu. Dagur borgarstjóri kom í gusu til mín með vinahópi í óvissuferð og hann var harla ánægður.“ Bök Nokkrir á efri bekk, en þröngt mega sáttir sitja í fargufu. Á ferðinni Staldrað við nálægt hafi til að fara í gufu og sjó. Betri stofan Hafdís í rýminu framan við gufuna í hjólhýsinu. Flakkar um með Rjúkandi fargufu Við Ægisíðu Piltar á leið í fargufu, drykkjarvatn framan við og eldiviður tilbúinn til að kveikja upp í kamínu.  Gúsfrúin Hafdís Hrund breytti hjólhýsi í gufubað á hjólum og býður þar upp á gufugusur Fyrir þá sem langar að prófa er hægt að fylgjast með á fésbókar- síðunni Rjúkandi fargufa, hvar og hvenær fargufan er sett upp. Fólk þarf að skrá sig, því ekki er pláss fyrir fleiri en 10 manns í einu í hverri gusu. Fólk getur líka pantað að fá Hafdísi með fargufuna til sín í einkasamkvæmi ýmist á opin- berum stað eða heima hjá sér. OPNUM AFTUR Á MORGUN með nýja rétti 11.30 – 21.00 Hverfisgata 123 við Hlemm S: 588-2121 smelltu á yummi menu Opnunartími Lau og Sun. 17.00 – 21.00 banthai.isKíkið nýja matseðil á.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.