Morgunblaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Björgun hefur hætt starfsemi í
Sævarhöfða í Reykjavík og undirbýr
flutning að Álfsnesvík á Álfsnesi,
gegnt Þerney innst í Kollafirði.
Miklar og kostnaðarsamar fram-
kvæmdir fylgja því að fyrirtækið
haslar sér völl á nýjum stað. Um er
að ræða framkvæmdir á landi og um-
fangsmiklar landfyllingar.
Í frummatsskýrslu, sem ráðgjaf-
arfyrirtækið Alta hefur unnið fyrir
Björgun, kemur fram að svæðið er
fremur láglent, að hluta vel gróið og
þýft og að hluta jarðvegssnautt og
grýtt. Ströndin er bæði grýtt og
sendin og standa klappir upp úr en
upp af ströndinni er mýri. Engar
þekktar fornleifar eru í sjó en merki
um mógrafir eru í mýrinni.
Viðlegukantur 130 metrar
Efnisþörf í landfyllingar er um
435.000 rúmmetrar sem verða fengn-
ir með skeringum á landi og úr dýpk-
unum. Þá verður fengið efni frá at-
hafnasvæði Sorpu í skiptum fyrir
jarðveg frá framkvæmdasvæðinu.
Gert er ráð fyrir viðlegukanti með
allt að 130 metra löngu þili og miðað
við að þar geti lagst að skip sem eru
meira en 1.700 brúttólestir.
Skip Björgunar sækja sand og
malarefni í námur á sjávarbotni sem
verður landað á nýtt athafnasvæði til
frekari vinnslu. Þar til gerður verður
varanlegur viðlegukantur verður
efninu landað um rör úr skipum sem
liggja við akkeri utan við landfyll-
inguna.
Heildarstærð lóðar fyrir vinnslu-
svæðið er áætluð 7,5 hektarar
(75.000 fermetrar) og þar af eru um
4,1 ha á nýrri landfyllingu og 3,4 ha á
landi. Auk þessa er gert ráð fyrir
fyllingarfláa sjómegin og skering-
arfláa landmegin, en skeringarfláinn
verður utan við lóð Björgunar.
Á lóðinni er gert ráð fyrir tveimur
setlónum, öðru minna þar sem seti
(möl og sandi) verður landað, og hinu
stærra sem tekur við afrennsli frá
fyrra lóninu. Hlutverk fyrra lónsins
er að afvatna setið sem er dælt á
land, svo það verði nýtilegt, en í
seinna lónið fer sjóblandað affallið af
því fyrra. Þar fær gruggið tækifæri
til að setjast og verða eftir í lóninu.
Lónið er lokað, og þar gætir flóðs
og fjöru. Sjórinn síast í gegnum
kjarnafyllingu milli sjávar og lónsins
og skilar sér aftur út í sjó án gruggs.
Efnisþörf í landfyllingar með setlón-
um og viðlegukanti er um um 310.000
m³ sem verða fengnir með skering-
um á landi og úr dýpkun vegna inn-
siglingar. Þá verður fengið efni frá
athafnasvæði Sorpu í skiptum fyrir
jarðveg frá framkvæmdasvæðinu. Á
meðan skip Björgunar landa efni
með því að dæla því upp á land með
sjó er gert ráð fyrir setlónum á land-
fyllingunni. Í framtíðinni er mögu-
legt að fjárfest verði í skipi sem not-
ar aðferð til þurrlosunar við löndun á
efni, og þá verður hægt að fylla í set-
lónin til að búa þar til land. Til þess
þarf um 125.000 m3 af efni sem fengið
yrði úr efnisnámum Björgunar í sjó.
Með fyllingu í setlónin er heildarefn-
isþörf landfyllingarinnar talin vera
435.000 rúmmetrar.
Bráðabirgðavegur í fyrstu
Í fyrstu verður lögð áhersla á að
leggja bráðabirgðaveg, leggja út
landfyllingu með efnisþró og setlóni
og vinna lóðina inn í landið. Efni
verður landað um rör úr skipum sem
liggja fyrir utan landfyllinguna þar
sem viðlegukanturinn verður ekki
tilbúinn og dýpkun innsiglingarinnar
mun miða við það.
Síðar verður farið í að ganga frá
viðlegukanti en það er áætlað á
seinni stigum framkvæmdarinnar og
verður einn af síðustu verkþátt-
unum.
Fram kemur í frummatsskýrsl-
unni að framkvæmdum sem þessum
fylgi ávallt nokkurt rask. Bein áhrif
framkvæmdarinnar eru bundin við
lóð fyrirtækisins og allra næsta um-
hverfi. Gripið verði til ýmissa að-
gerða, bæði á framkvæmdatíma og á
rekstrartíma til að lágmarka þessi
áhrif.
Skoðaðir voru átta umhverfis-
þættir og var niðurstaðan sú að
framkvæmdin mun hafa óveruleg
eða engin áhrif á sjö af þeim átta um-
hverfisþáttum sem metnir voru.
Niðurstaða matsins er að heildar-
áhrif framkvæmdarinnar að teknu
tilliti til mótvægisaðgerða verði
óveruleg, nema á samfélag sem telj-
ast talsvert jákvæð.
Gögn málsins má sjá á
www.reykjavik,is og www.bjorg-
un.is. Athugasemdafrestur er til og
með 11. október nk.
Landfyllingar í Álfsnesvík
Björgun hf. undirbýr nýja aðstöðu á Álfsnesi í Kollafirði Skipulagsbreytingar hafa verið auglýstar
Umfangsmiklar framkvæmdir og landfyllingar Efnisþörf í landfyllingar er um 435.000 rúmmetrar
Mynd/Alta
Framtíðarsvæði Björgunar Hin nýja aðstaða verður á Álfsnesi, gegnt Þerney. Mannvirki verða á landi og landfyllingum. Lega Sundabrautar er einnig sýnd.
Skip Björgunar sækja sand og
malarefni úr sjó í Kollafjörð,
Hvalfjörð og Faxaflóa til efnis-
vinnslu. Síðan er siglt með efnið
að landi þar sem það unnið
frekar. Meðalmagn á ári frá
2008 hefur verið um 180.000
rúmmetrar en frá aldamótum til
ársins 2008 var þetta meira.
Áætlanir Björgunar miðast við
að landað magn við eðlilega eft-
irspurn sé um 200-350.000
þúsund rúmmetrar á ári.
Efninu dælt
af hafsbotni
STARFSEMI BJÖRGUNAR
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbanda-
lagsins við Ísland hefst að nýju með
komu flugsveitar ítalska flughersins
til landsins í vikunni, að því fram
kemur í frétt á heimasíðu Land-
helgisgæslunnar.
Um 140 liðsmenn ítalska flughers-
ins taka þátt í verkefninu og til við-
bótar starfsmenn frá stjórnstöð
NATO í Uedem, Þýskalandi (Comb-
ined Air Operations Center). Flug-
sveitin kemur til landsins með sex
F-35 orrustuþotur.
Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum
að varaflugvöllum á Akureyri og
Egilsstöðum á tímabilinu 26. sept-
ember til 4. október.
Loftrýmisgæslan verður í sam-
ræmi við loftrýmisáætlun Atlants-
hafsbandalagsins fyrir Ísland og
fyrirkomulagið verður með sama
hætti og verið hefur.
Flugsveitin verður með aðsetur á
öryggissvæðinu á Keflavíkurflug-
velli en þetta er í annað sinn á þessu
ári sem ítalski flugherinn er hér á
landi við loftrýmisgæslu. Gert er ráð
fyrir að verkefninu ljúki fyrir lok
október.
Landhelgisgæsla Íslands annast
verkefnið í samvinnu við Isavia.
Í mars á þessu ári tóku 140 liðs-
menn ítalska flughersins þátt í loft-
rýmisgæslu við Ísland. Flugsveitin
kom til landsins með fjórar Euro-
fighter Typhoon EF-2000 orrustu-
þotur.
Um miðjan júlí síðastliðinn kom
flugsveit bandaríska flughersins til
að sinna loftrýmisgæslu við Ísland.
Alls tóku 110 liðsmenn flughersins
þátt í verkefninu. Flugsveitin kom
til landsins með fimm F16 orrustu-
þotur. Verkefninu lauk í ágústlok.
Nú hafa Ítalir tekið við keflinu og
verða hér á landi næstu vikurnar.
sisi@mbl.is
AFP
Gæsla Ítalska flugsveitin kemur til
landsins með sex F-35 orrustuþotur.
Ítalir mættir til að
gæta loftrýmisins
Aðflugsæfingar verða á flugvöll-
unum á Akureyri og Egilsstöðum
KEILIR Kuldagalli
Kr. 14.990.-