Morgunblaðið - 26.09.2019, Side 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
„Ég vonast til þess að það verði
fyrirferðarmikil skógrækt á Vopna-
firði á komandi árum,“ segir Þór
Steinarsson, sveitarstjóri á Vopna-
firði.
Við kynningu á uppbyggingar-
áformum breska auðmannsins Jim
Ratcliffe á laxveiðiám á Norðaustur-
landi sem fór fram í Vopnafirði í
byrjun vikunnar komu fram áhuga-
verðar hugmyndir um að reyna að
bæta lífsskilyrði laxa með nýskóg-
rækt og endurheimt gróðurfars.
Eins og kom fram í Morgunblaðinu á
þriðjudag hefur Else Möller, verk-
efnastjóri á skógræktarsviði Vopna-
fjarðarhrepps, þegar hafið þá vinnu
og mun fylgja henni eftir næstu 4-5
árin.
Þór sveitarstjóri segir að þessi
vinna sé mjög áhugaverð. Hún sé þó
aðeins hluti af stórum áformum
sveitarfélagsins á sviði skógræktar.
„Við höfum metnað til þess að
auka hér skógrækt töluvert. Sveitar-
félagið hefur tekið það frumkvæði að
ræða við bændur og hvetja þá til
þess að fara í samstarf við skógrækt-
ina og svo á hreppurinn töluvert land
sem við getum nýtt til kolefnisbind-
ingar,“ segir Þór. Hann segir að
skógræktarfélagið á staðnum sé lítið
sjálfboðaliðafélag og því liggi beint
við að hreppurinn, í krafti umfangs
síns, ýti þessum áformum af stað.
„Við viljum vera í samstarfi við
alla Vopnfirðinga um skógrækt,
bæði einstaklinga, fyrirtæki og veiði-
félög,“ segir sveitarstjórinn, en auk
samstarfs við veiðifélagið Streng er
stefnan að fá til liðs við verkefnið út-
gerðarfyrirtækið Brim og önnur
fyrirtæki á Vopnafirði.
„Vopnafjörður vill gjarnan fjölga
stoðum undir atvinnulíf sitt og það er
nærtækt að hugsa um ferðaþjónustu
í því samhengi. En ef maður hugsar
málið aðeins betur er miklu nærtæk-
ara að horfa til skógræktar. Þetta er
mjög umsvifamikil starfsemi; það
þarf að sinna stígagerð, girða,
planta, bera á og fylgjast með öllu.
Ég vonast til að þessi fyrirferð-
armikla skógrækt á Vopnafirði á
komandi árum verði hluti af því
markmiði að við verðum kolefnis-
hlutlaust land.“
Sveitarstjórinn kveðst raunar
stefna að því að Vopnafjörður verði
stór þátttakandi í áformum um kol-
efnishlutlaust land. „Ég á mér þann
draum að Vopnafjörður verði fyrsta
kolefnishlutlausa sveitarfélagið á Ís-
landi og ég vona að það geti orðið
töluvert áður en almenn krafa um
slíkt verði komin upp. Ríkisstjórnin
talar um að það markmið náist 2040.
Ég held að það geti gerst töluvert
fyrr hér og ég held að allir séu ein-
huga um það.“
Else Möller skógfræðingur fagnar
þessum metnaðarfullu áformum
sveitarfélagsins. „Þetta er stórt
markmið en frábært. Það er mjög
gaman að fá að taka þátt í því. Ég
trúi því að þetta gæti orðið öðrum
sveitarfélögum hvatning og fyrir-
mynd. Það gerist allt miklu hraðar ef
það er skógfræðingur á hverjum
stað.“
Meðal verkefna Else hefur verið
að hvetja landeigendur til að gera
samning við skógræktina um að
gróðursetja samfelldan skóg á jörð-
um þeirra. Þá hefur hún unnið að
samstarfi við Kolvið um að hefja
plöntun á svæði í Vopnafirði. „Þá
geta fyrirtæki hér á Vopnafirði kol-
efnisjafnað sig hér á Vopnafirði en
ekki á svæðum annars staðar á land-
inu.“ hdm@mbl.is
Háleit markmið Else Möller skógfræðingur leiðir vinnu á Vopnafirði við að
sveitarfélagið verði í forystu við kolefnisjöfnun hér á landi á næstu árum.
Háleit markmið
í skógræktinni
Vopnafjörður verði í fararbroddi
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Áform breska auðmannsins Jim
Ratcliffe um verndun á villtum laxi
í ám á Norðausturlandi voru kynnt
í byrjun vikunnar. Eins og Morgun-
blaðið greindi frá á þriðjudag munu
félög í eigu Ratcliffe verja yfir
hundrað milljónum króna í rann-
sóknir og uppbyggingu tengda
laxastofninum og veiðiám í Vopna-
firði á næstu árum.
Stærsta verkefnið er 85 milljóna
króna rannsókn á laxastofninum í
samstarfi við Hafrannsóknastofnun
og Imperial College í London.
Munu tveir doktorsnemar fá það
verkefni að greina „flöskuhálsa í
viðgangi laxins“. Þar fyrir utan er
ráðist í hrognagröft á efri svæðum
Selár og skógrækt sem er nýmæli
hér á landi. Eins og kom fram í
blaðinu á þriðjudag er veiðifélagið
Strengur sömuleiðis með frekari
uppbyggingaráform á teikniborðinu
í ám á svæðinu; byggingu laxastiga
og nýrra veiðihúsa. Alls gæti þessi
uppbygging kostað um 600 millj-
ónir króna á næstu árum.
Umdeild jarðakaup
Jarðakaup Jims Ratcliffe á Norð-
austurlandi og yfirráð hans yfir
mörgum af bestu laxveiðiám lands-
ins hafa verið umdeild. Morgun-
blaðið hefur síðustu misseri fjallað
ítarlega um jarðakaupin. Blaða- og
fréttamönnum var boðið til fundar í
Vopnafirði á mánudag og var flogið
með hóp þeirra frá Reykjavík að
morgni og til baka um kvöldið. Gísli
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri
Strengs, viðurkenndi fúslega að
þessi kynningartörn væri meðal
annars til að bregðast við nei-
kvæðri umfjöllun um umsvif Rat-
cliffe.
Skiptar skoðanir í bænum
Þór Steinarsson, sveitarstjóri á
Vopnafirði, kannast vel við að
skiptar skoðanir séu á jarðakaup-
unum.
„Ég held að bæjarbúar hafi bara
misjafnar skoðanir á þeim. Gísli Ás-
geirsson og Jóhannes Kristjánsson
og þessir Strengs-menn hafa verið
hér lengi og þekkja hvern einasta
bónda í Vopnafirði. Þeir eru bara
hluti af samfélaginu hér. En svo
koma auðvitað þessir miklu pen-
ingar til sögunnar og það hefur alls
konar afleiðingar. Til að mynda
hækkar þetta jarðaverð og það hef-
ur gert fólki kleift að selja ævistarf
sitt fyrir álitlegar upphæðir, eða
alla vega eitthvað sem það er sam-
þykkt að selja fyrir. Svo fylgir
svona miklu eignarhaldi auðvitað
óvissa. Það getur vel verið að hon-
um gangi gott eitt til og ég held
raunar að það sé tilfellið. En svo
veit maður ekkert hver eignast
þessar jarðir eftir fimmtíu ár, eða
hvenær sem það er sem eitthvað
breytist,“ segir Þór.
Búið verði á öllum jörðum
Hann segir að eyða þurfi óvissu
og tortryggni, það sé verkefni sem
þurfi að leysa.
„Ég held að það sé hægt að vinna
þetta verkefni þannig að hægt sé að
minnka alla tortryggni og búa
þannig um að hér sé búið helst á
öllum jörðum. Það gengur auðvitað
ekki að hér verði eyðijarðir um all-
ar sveitir, hér þarf að vera fólk sem
ræktar jarðirnar og heldur þeim
við – fólk sem er hluti af samfélag-
inu og borgar skatta. Þá er kannski
ekki aðalatriðið hver er skrifaður
eigandi jarðarinnar. Verkefni mitt
og okkar er að tryggja það með öll-
um ráðum að hérna sé blómleg
byggð alls staðar. Ég verð bara að
vinna við þær aðstæður sem eru
hverju sinni í því verkefni.“
Morgunblaðið/Hari
Sveitarstjórinn Þór Steinarsson tók við starfi sveitarstjóra á Vopnafirði í fyrra. Hann segir að það sé verkefni sitt
að tryggja blómlega byggð í sveitinni og telur að hægt sé að minnka tortryggni vegna jarðakaupa Jims Ratcliffe.
Eyða þarf óvissu og tortryggni
Sveitarstjórinn á Vopnafirði segir jarðakaup breska auðmannsins James Ratcliffe hafa skapað óvissu
á svæðinu Mikilvægt sé að tryggja búsetu á jörðunum og blómlega byggð í sveitinni til frambúðar
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma