Morgunblaðið - 26.09.2019, Page 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
umferðaröngþveitið sem skapast á
morgnana og við lok vinnudags.
Héðan er hægt að ganga eða hjóla í
vinnu eða skóla,“ segir Garðar.
Þá verði góðar almennings-
samgöngur á svæðinu, sem verði
síðar tengt áformaðri borgarlínu.
Íbúðirnar á E-reit afhendast full-
búnar með gólfefnum. Þær eru með
stöðluðum innréttingum og tækjum.
Almennt er gert ráð fyrir þvottavél
og þurrkara inni á baðherbergi. Þá
mynda eldhús og stofa eitt rými og
er eldunareyja úti á gólfi í stærri
íbúðunum. Það vekur sérstaka at-
hygli hversu mikil lofthæð er í
íbúðunum á 4. hæð.
Mikið spurt um þakíbúðirnar
Íbúðirnar sem komið hafa í sölu
eru á hæðum 1-4. Þakíbúðir á
fimmtu hæð hafa hins vegar ekki
verið formlega auglýstar til sölu.
Garðar segir aðspurður að um 14
þakíbúðir sé að ræða. Frágangurinn
á þeim sé skemmra á veg kominn
enda muni kaupendur hugsanlega
vilja hanna þær eftir þörfum. Þær
séu hér um bil 160-320 fermetrar að
stærð, að meðtalinni geymslu og
minnst einu bílastæði. Margir hafi
þegar spurst fyrir um íbúðirnar. Þá
séu nokkrar fráteknar. Miðað við að
fermetrinn kosti 600 þúsund kosta
slíkar íbúðir 96-192 milljónir.
„Það er gjarnan farið frjálslega
með hugtakið þakíbúð. Menn kalla
íbúðir á efstu hæð þakíbúðir þótt
margt vanti upp á. Þakíbúðirnar hér
standa hins vegar undir nafni. Flest-
ar hafa þakgarð og allar eru með
stórum hjónasvítum. Þá eru í þeim
stórar stofur með nægu rými fyrir
húsgögn og listmuni,“ segir Garðar.
Hann sýndi Morgunblaðinu eina
af þakíbúðunum sem snúa til vesturs
að Háskóla Íslands. Gert er ráð fyrir
stórri hjónasvítu, fataherbergi og
Margir vilja búa á Hlíðarenda
Nýjar íbúðir á E-reit hafa selst hratt Þegar er búið að selja 60% íbúða í fimm stigagöngum
Alls 14 þakíbúðir á reitnum Allt að 320 fermetrar Mörgum þeirra fylgja stórir þakgarðar
Haukahlíð 5 Útsýni úr einni þakíbúðinni sem snýr til vesturs. Flugbrautirnar sjást vel. Þetta
eru fyrstu íbúðirnar í Reykjavík sem hafa slíkt útsýni yfir flugvallarsvæðið úr nálægð. Háskólasvæðið Aðalbygging Háskóla Íslands og Vísindagarðar í Vatnsmýri sjást úr þakíbúð.
Flugvöllurinn Myndin er tekin af svölum þakíbúðar í Haukahlíð 5. Skerja-
fjörðurinn og Álftanesið blasa við í suðri. Nýtt hverfi verður í Skerjafirði.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fasteignasali Garðar Hólm segir íbúðirnar henta fjölbreyttum hópi fólks.
Í Smyrilshlíð Horft yfir Icelandair-hótelið frá einni þakíbúðinni. Í Smyrilshlíð Um 90 fermetra þaksvalir fylgja þessari íbúð á fimmtu hæð.
Náttúra Öskjuhlíðin er steinsnar frá byggingarsvæðinu á Hlíðarenda. Smyrilshlíð – suðurhlið Íbúðir í þessum stigagöngum eru nær tilbúnar.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fyrsta íbúðin í nýjum íbúðakjarna á
Hlíðarenda var afhent í byrjun vik-
unnar. Íbúðirnar eru í nýrri götu,
Smyrilshlíð, en þar hafa fimm stiga-
gangar komið í sölu.
Á Hlíðarenda verða sex reitir með
íbúðum. Fyrsti reiturinn, reitur B,
fór í sölu sumarið 2017. Þar eru 40
íbúðir í fjölbýlishúsinu Arnarhlíð 1.
Uppsteypa á íbúðareitum C, D, E
og F er langt komin en þar verða alls
673 íbúðir.
Þar af eru 178 íbúðir á E-reit sem
er lengst kominn í byggingu. Íbúðir í
þremur stigagöngum komu í sölu í
júní og þær fyrstu voru afhentar í
vikubyrjun. Íbúðir í tveimur stiga-
göngum til viðbótar komu í sölu í
byrjun september og koma þær til
afhendingar í janúar. Alls eru þetta
73 íbúðir og er þegar búið að selja
um 60% þeirra. Það er athyglisvert í
ljósi þess að húsin eru enn í bygg-
ingu og malarvegir milli húsa.
Þegar Morgunblaðið leit inn í opið
hús á sunnudaginn var höfðu um 40
pör skoðað íbúðir á tveimur tímum
og átta skráð sig fyrir íbúð. Það
bendir ekki til ládeyðu á mark-
aðnum.
Fullfrágenginn 2020
Næstu þrír stigagangar koma í
sölu í mars á næsta ári en þeir eru
Smyrilshlíð 10 og tveir stigagangar
á austurhliðinni, í Fálkahlíð 6 og
Hlíðarfæti 17. Sölunni á E-reit lýkur
síðan með því að þrír stigagangar á
suðurhliðinni við Hlíðarfót 11, 13 og
15 koma í sölu næsta sumar. Stefnt
er að því að reiturinn verði fullfrá-
genginn haustið 2020.
Garðar Hólm, fasteignasali hjá
Trausta fasteignasölu, segir íbúð-
irnar á E-reitnum af fjölbreyttri
stærð. Þar sé allt frá litlum íbúðum
sem henti fyrstu kaupendum upp í
stórar þakíbúðir.
„Hingað er að veljast mjög bland-
aður hópur. Meðal kaupenda eru
fyrstu kaupendur, fjölskyldur og
fólk sem er að minnka við sig.
Fyrstu kaupendur sækja mikið í
minnstu íbúðirnar en allar eru íbúð-
irnar á hagkvæmu verði. Hér eru
margar tegundir af eignum. Íbúð-
irnar eru 2-5 herbergja en öllum
fylgir stæði í bílageymslu, sem er
mikill kostur. Þá fylgja öllum íbúð-
um rúmgóðar geymslur í kjallara,“
segir Garðar.
Stórir vinnustaðir í nágrenninu
„Staðsetningin er sérstaklega
góð. Hér erum við nærri háskól-
unum tveimur og stórum vinnustöð-
um á borð við Landspítalann og Ís-
lenska erfðagreiningu. Margir sjá
sér greinilega leik á borði og flytja
nær vinnu til að sleppa við
Morgunblaðið/Baldur