Morgunblaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019 umferðaröngþveitið sem skapast á morgnana og við lok vinnudags. Héðan er hægt að ganga eða hjóla í vinnu eða skóla,“ segir Garðar. Þá verði góðar almennings- samgöngur á svæðinu, sem verði síðar tengt áformaðri borgarlínu. Íbúðirnar á E-reit afhendast full- búnar með gólfefnum. Þær eru með stöðluðum innréttingum og tækjum. Almennt er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherbergi. Þá mynda eldhús og stofa eitt rými og er eldunareyja úti á gólfi í stærri íbúðunum. Það vekur sérstaka at- hygli hversu mikil lofthæð er í íbúðunum á 4. hæð. Mikið spurt um þakíbúðirnar Íbúðirnar sem komið hafa í sölu eru á hæðum 1-4. Þakíbúðir á fimmtu hæð hafa hins vegar ekki verið formlega auglýstar til sölu. Garðar segir aðspurður að um 14 þakíbúðir sé að ræða. Frágangurinn á þeim sé skemmra á veg kominn enda muni kaupendur hugsanlega vilja hanna þær eftir þörfum. Þær séu hér um bil 160-320 fermetrar að stærð, að meðtalinni geymslu og minnst einu bílastæði. Margir hafi þegar spurst fyrir um íbúðirnar. Þá séu nokkrar fráteknar. Miðað við að fermetrinn kosti 600 þúsund kosta slíkar íbúðir 96-192 milljónir. „Það er gjarnan farið frjálslega með hugtakið þakíbúð. Menn kalla íbúðir á efstu hæð þakíbúðir þótt margt vanti upp á. Þakíbúðirnar hér standa hins vegar undir nafni. Flest- ar hafa þakgarð og allar eru með stórum hjónasvítum. Þá eru í þeim stórar stofur með nægu rými fyrir húsgögn og listmuni,“ segir Garðar. Hann sýndi Morgunblaðinu eina af þakíbúðunum sem snúa til vesturs að Háskóla Íslands. Gert er ráð fyrir stórri hjónasvítu, fataherbergi og Margir vilja búa á Hlíðarenda  Nýjar íbúðir á E-reit hafa selst hratt  Þegar er búið að selja 60% íbúða í fimm stigagöngum  Alls 14 þakíbúðir á reitnum  Allt að 320 fermetrar  Mörgum þeirra fylgja stórir þakgarðar Haukahlíð 5 Útsýni úr einni þakíbúðinni sem snýr til vesturs. Flugbrautirnar sjást vel. Þetta eru fyrstu íbúðirnar í Reykjavík sem hafa slíkt útsýni yfir flugvallarsvæðið úr nálægð. Háskólasvæðið Aðalbygging Háskóla Íslands og Vísindagarðar í Vatnsmýri sjást úr þakíbúð. Flugvöllurinn Myndin er tekin af svölum þakíbúðar í Haukahlíð 5. Skerja- fjörðurinn og Álftanesið blasa við í suðri. Nýtt hverfi verður í Skerjafirði. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fasteignasali Garðar Hólm segir íbúðirnar henta fjölbreyttum hópi fólks. Í Smyrilshlíð Horft yfir Icelandair-hótelið frá einni þakíbúðinni. Í Smyrilshlíð Um 90 fermetra þaksvalir fylgja þessari íbúð á fimmtu hæð. Náttúra Öskjuhlíðin er steinsnar frá byggingarsvæðinu á Hlíðarenda. Smyrilshlíð – suðurhlið Íbúðir í þessum stigagöngum eru nær tilbúnar. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fyrsta íbúðin í nýjum íbúðakjarna á Hlíðarenda var afhent í byrjun vik- unnar. Íbúðirnar eru í nýrri götu, Smyrilshlíð, en þar hafa fimm stiga- gangar komið í sölu. Á Hlíðarenda verða sex reitir með íbúðum. Fyrsti reiturinn, reitur B, fór í sölu sumarið 2017. Þar eru 40 íbúðir í fjölbýlishúsinu Arnarhlíð 1. Uppsteypa á íbúðareitum C, D, E og F er langt komin en þar verða alls 673 íbúðir. Þar af eru 178 íbúðir á E-reit sem er lengst kominn í byggingu. Íbúðir í þremur stigagöngum komu í sölu í júní og þær fyrstu voru afhentar í vikubyrjun. Íbúðir í tveimur stiga- göngum til viðbótar komu í sölu í byrjun september og koma þær til afhendingar í janúar. Alls eru þetta 73 íbúðir og er þegar búið að selja um 60% þeirra. Það er athyglisvert í ljósi þess að húsin eru enn í bygg- ingu og malarvegir milli húsa. Þegar Morgunblaðið leit inn í opið hús á sunnudaginn var höfðu um 40 pör skoðað íbúðir á tveimur tímum og átta skráð sig fyrir íbúð. Það bendir ekki til ládeyðu á mark- aðnum. Fullfrágenginn 2020 Næstu þrír stigagangar koma í sölu í mars á næsta ári en þeir eru Smyrilshlíð 10 og tveir stigagangar á austurhliðinni, í Fálkahlíð 6 og Hlíðarfæti 17. Sölunni á E-reit lýkur síðan með því að þrír stigagangar á suðurhliðinni við Hlíðarfót 11, 13 og 15 koma í sölu næsta sumar. Stefnt er að því að reiturinn verði fullfrá- genginn haustið 2020. Garðar Hólm, fasteignasali hjá Trausta fasteignasölu, segir íbúð- irnar á E-reitnum af fjölbreyttri stærð. Þar sé allt frá litlum íbúðum sem henti fyrstu kaupendum upp í stórar þakíbúðir. „Hingað er að veljast mjög bland- aður hópur. Meðal kaupenda eru fyrstu kaupendur, fjölskyldur og fólk sem er að minnka við sig. Fyrstu kaupendur sækja mikið í minnstu íbúðirnar en allar eru íbúð- irnar á hagkvæmu verði. Hér eru margar tegundir af eignum. Íbúð- irnar eru 2-5 herbergja en öllum fylgir stæði í bílageymslu, sem er mikill kostur. Þá fylgja öllum íbúð- um rúmgóðar geymslur í kjallara,“ segir Garðar. Stórir vinnustaðir í nágrenninu „Staðsetningin er sérstaklega góð. Hér erum við nærri háskól- unum tveimur og stórum vinnustöð- um á borð við Landspítalann og Ís- lenska erfðagreiningu. Margir sjá sér greinilega leik á borði og flytja nær vinnu til að sleppa við Morgunblaðið/Baldur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.