Morgunblaðið - 26.09.2019, Síða 39

Morgunblaðið - 26.09.2019, Síða 39
39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019 Steinahlaup Léttklæddur skokkari hljóp eftir Sæbrautinni óhefðbundna leið á hleðslusteinunum. Kristinn Magnússon Meirihluti borgar- stjórnar hefur kynnt áform um breytingar á skólahaldi í norðan- verðum Grafarvogi. Fyrirhugað er afnám skólahalds í Staða- hverfi og sameiningar skóla sem áður voru fjórar aðskildar skóla- einingar. Börnum Staðahverfis verður nú gert að sækja skóla utan hverfis. Íbúar eru að vonum ósáttir. Breytingarnar munu hafa í för með sér umferðaróöryggi og slysa- hættu fyrir börn. Langar vegalengd- ir verða til skóla meðfram umferð- arþungum götum. Hættan hefur legið fyrir um árabil en engar ráð- stafanir verið gerðar til að auka ör- yggi barna. Íbúar borgarhlutans hafa áður staðið frammi fyrir sambærilegum sameiningum. Árið 2012 kvartaði hluti íbúa til umboðsmanns Alþingis vegna samskonar áforma. Komst umboðsmaður að þeirri niðurstöðu að ekki væri unnt að gera breytingar á skólahaldi án undanfarandi breyt- inga á deiliskipulagi, enda gerir deiliskipulag ráð fyrir skóla- starfsemi í hverfinu. Þess var ekki gætt við breytingar ársins 2012. Þess hefur ekki verið gætt við fyr- irhugaðar breytingar í Staðahverfi. Ábendingar umboðsmanns virðast hafðar að engu. Það er eðlileg forsenda við bú- setuval fjölskyldufólks að í nærliggj- andi umhverfi megi finna grunn- skóla. Fyrirhugaðar breytingar á skólahaldi eru því alvarlegur for- sendubrestur fyrir íbúa hverfisins. Foreldrum er mætt af skilningsleysi og meðal uppgefinna ástæðna er hagræðing. Víða í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar eru tækifæri til niður- skurðar. Síðastliðinn vetur var ráðist í stjórnkerfisbreytingar hjá Reykjavíkurborg. Ætla mátti að til- gangur breytinganna væri hagræðing í rekstri borgarinnar. Það skaut því skökku við þegar breyting- arnar voru kynntar – þær skiluðu nákvæmlega engri hag- ræðingu. Hið sama mátti sjá í ný- legri samantekt á starfslýsingum hjá miðlægri stjórnsýslu. Samantektin tók eingöngu til afmarkaðs hluta af yfirbyggingu borgarinnar en sam- anstóð af ríflega 600 blaðsíðum. Síðufjöldinn talar sínu máli. Vannýtt tækifæri til hagræðingar blasa við. Reykjavíkurborg þarf sannarlega að bregðast við slæmri fjárhags- stöðu með hagræðingu af fjölþætt- um meiði. Niðurskurðarhnífnum skal þó aldrei beitt fyrst gagnvart lögbundnum verkefnum sveitarfé- lags – né heldur grunnskólabörnum og fjölskyldum þeirra. Réttara væri að hagræða fyrst í yfirbyggingunni og fækka blaðsíðum hins 600 blað- síðna bindis. Af nógu er að taka. Eftir Hildi Björnsdóttur » Víða í stjórnkerfinu eru tækifæri til niðurskurðar. Rétt er að skera fyrst niður í yfirbyggingu, áður en ráðist er í niðurskurð á grunnþjónustu. Hildur Björnsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. hildurb@reykjavik.is 600 blaðsíðna bindi Hér á landi er al- gengt að líta á hús- næðismál með þeim augum að það sé ein- göngu hlutverk mark- aðarins að leysa málin. Þetta sé einfaldlega spurning um framboð og eftirspurn. Vissu- lega er mikilvægt að huga að samspili fram- boðs og eftirspurnar en húsnæði er fyrst og síð- ast ein af grunnþörfum allra fjöl- skyldna. Í því ljósi eiga húsnæðismál að fá aukið vægi í umræðunni um stöðu fjölskyldna og í raun allri um- ræðu um velferðarmál. Mikill meirihluti vill komast í eigið húsnæði Áætlað er að í kringum 30.000 heimili séu á leigumarkaði á Íslandi. Þetta svarar til um 17 prósent ein- staklinga yfir 18 ára aldri. Leigu- markaðurinn nærri tvöfaldaðist í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008 og samkvæmt könnun Íbúða- lánasjóðs telja 92 prósent leigjenda það óhagstætt að leigja og einungis átta prósent telja sig geta farið af leigumarkaði innan sex mánaða. Á sama tíma segjast 86 prósent leigj- enda myndu vilja búa í eigin húsnæði samkvæmt nýlegri könnun Íbúða- lánasjóðs og aðeins átta prósent leigj- enda segjast vera á leigumarkaði af því þeir vilja vera þar. Af þessu má draga þá ályktun að mikill meirihluti þeirra sem er á leigumarkaði vilji komast í eigið húsnæði. Fleiri þurfa aðstoð fjölskyldu við kaup á húsnæði Í mörgum tilfellum nær fólk ein- faldlega ekki að brúa bilið sem þarf til að leggja fram 20-30 prósenta eigið fé við kaup á íbúð. Niðurstöður könn- unar sem framkvæmd var í fyrra bendir til þess að 44 prósent þeirra sem keyptu sína fyrstu fasteign á ár- unum 2000-2009 hafi fengið aðstoð frá vinum eða ættingjum en á meðal þeirra sem keyptu fyrstu fasteign sína árið 2010 eða síðar hafi hlutfallið verið 59 prósent. Þessar niður- stöður gefa til kynna að innan við helmingur þeirra sem hafa keypt fyrstu fasteign sína á undanförnum árum hafi gert það hjálparlaust. Sam- hliða þessu fer hlutfall þeirra sem eru í lægstu tekjutíundum samfélagsins hækkandi á leigumarkaði. Þá eru þrjú af hverjum fjórum heimilum á leigumarkaði með samanlagðar heimilistekjur undir 800.000 kr. á mánuði og meira en helmingur með undir 550.000 kr. Aðgerðir hjálpi öllum að eignast húsnæði Í ljósi ofanritaðs hljótum við að geta verið sammála um að óheftur markaðurinn hefur ekki skilað úr- lausn fyrir þann hóp sem nú er á leigumarkaði. Þess vegna erum við nú að skoða kerfisbreytingar sem miða að því að styðja við íbúðarkaup ungs fólks, tekjulægri einstaklinga og fjölskyldna sem misstu eignir sínar í hruninu. Þarna er bæði unnið að því að hægt verði að nýta lífeyrissparnað sem innborgun við fasteignakaup en einnig er unnið að frumvarpi til inn- leiðingar á sérstökum hlutdeildar- lánum að skoskri og breskri fyrir- mynd. Hlutdeildarlán til að yfirstíga þröskuldinn Hlutdeildarlán er úrræði sem hugsað er til að mæta þeim bresti sem nú ríkir á húsnæðismarkaði og er ætlað að auðvelda ungu fólki og tekjulágu að eignast eigið húsnæði. Hlutdeildarlánin bera lægri vexti og afborganir fyrstu árin og eiga þannig að gera tekjulágum kleift að komast yfir útborgunarþröskuldinn þar sem krafa um eigið fé er lægri. Ríkið fær síðan endurgreitt þegar eigandi selur viðkomandi íbúð eða greiðir lánið upp á matsvirði. Helstu kostir eru aug- ljósir. Ungir og tekjulágir eiga auð- veldara með að koma sér þaki yfir höfuðið, byggingaraðilar njóta aukins fyrirsjáanleika um markað fyrir íbúð- ir og lánveitendur fá öruggari lán með lægra veðhlutfalli og ættu því að geta boðið hagstæðari kjör. Útfærsla á hlutdeildarlánum eru nú í vinnslu í góðu samstarfi við aðila vinnumarkaðar líkt og lífskjarasamn- ingar lögðu grunn að. Þetta úrræði hefur skilað góðum árangri í Bret- landi og Skotlandi síðastliðin sex ár og erum við í góðu samstarfi við stjórnvöld þar um heppilega innleið- ingu og útfærslur. Eitt af meginmarkmiðum mínum í embætti ráðherra er að gera ungu og tekjulágu fólki kleift að kaupa sínu fyrstu íbúð. Hlutdeildarlán eru góð og skynsamleg leið til koma íbúðar- kaupendum yfir útborgunar- þröskuldinn í upphafi. Ég bind mikl- ar vonir við að þau muni ryðja sér til rúms á íslenskum húsnæðismarkaði og hjálpi ungu fólki, tekjulágum og fólki sem misst hefur húsnæði að eignast þak yfir höfuðið. Eftir Ásmund Einar Daðason »Eitt af meginmark- miðum mínum í embætti ráðherra er að gera ungu og tekjulágu fólki kleift að kaupa fyrstu íbúð sína. Ásmundur Einar Daðason Höfundur er félags- og barnamálaráðherra. Hvers vegna þarf að styðja ungt og tekjulágt fólk til fasteignakaupa? Í samræmi við sam- starfssáttmála ríkis- stjórnarinnar um efl- ingu hafrannsókna er í fjárlagafrumvarpi næsta árs mælt fyrir um 750 milljón króna framlag til Hafrann- sóknastofnunar til rannsókna og fjárfest- inga. Þar er annars vegar um að ræða 600 milljóna króna framlag í byggingu nýs hafrannsóknaskips sem mun stórefla grunnrannsóknir. Alls hefur þá verið varið 900 milljónum króna til þessa verkefnis sem sérstök bygg- ingarnefnd hefur umsjón með. Í byrj- un september skrifuðu Hafrann- sóknastofnun og Ríkiskaup undir samning um útboðsvinnu fyrir skipið. Áformað er að smíði skipsins verði boðin út á fyrri hluta næsta árs en nýtt skip mun marka tímamót í haf- rannsóknum Íslendinga Hins vegar er um að ræða 150 milljóna króna framlag til Hafrann- sóknastofnunar vegna samdráttar í framlögum úr Verkefnasjóði sjávar- útvegsins til stofnunarinnar. Það framlag kemur til viðbótar 250 millj- óna króna framlagi á þessu ári. Rétt er að gera nokkra grein fyrir þessari aukningu. Þannig er að undanfarin ár hefur nokkuð verið fjallað um fjár- framlög til Hafrannsóknastofnunar en sú umræða var til þess fallin að varpa skýru ljósi á ýmsa veikleika varðandi það hvernig stofnunin hefur verið fjármögnuð. Munar þar mest um að stofnunin hefur verið mjög háð framlögum úr verkefnasjóði sjávar- útvegsins og hafa þær tekjur lækkað mikið á undanförnum árum. Með fjárlagafrumvarpi næsta árs er verið að breyta þessu fyrirkomulagi og tryggja stofnuninni fastar tekjur þannig að hún verði ekki lengur háð sveiflu- kenndum tekjustofnum með tilheyrandi óvissu. Þrátt fyrir framan- greint þarf stofnunin, líkt og allar aðrar stofn- anir ríkisins, að takast á við þá hagræðingar- kröfu sem sett er í fjár- lögum hvers árs enda er sú sjálfsagða krafa gerð á allar stofnanir að þurfa stöðugt að huga að forgangsröðun verkefna og gæta aðhalds í rekstri. Á sama tíma hefur ráðuneytið staðið fyrir úttekt á fjár- hag stofnunarinnar með það að mark- miði að nýta betur fjármuni til kjarnaverkefna stofnunarinnar. Loks má nefna varðandi fjár- framlög til Hafrannsóknastofnunar að á þessu ári fær stofnunin einnig fjármuni til húsnæðismála, en á næstu mánuðum mun stofnunin koma sér fyrir í nýju húsnæði í Hafnarfirði þar sem öll starfsemin verður þá undir sama þaki. Allt eru þetta markverð skref í þá veru að stuðla að öflugum hafrann- sóknum en þær eru ein af undir- stöðum verðmætasköpunar í sjávar- útvegi. Þannig tryggjum við um leið sterka stöðu Íslands sem fiskveiði- þjóðar. Dregið úr óvissu Eftir Kristján Þór Júlíusson Kristján Þór Júlíusson » „… og tryggja stofnuninni fastar tekjur þannig að hún verði ekki lengur háð sveiflukenndum tekjustofnum með tilheyrandi óvissu.“ Höfundur er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.