Morgunblaðið - 26.09.2019, Side 50
50 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
✝ Ragnar HeiðarMagnússon
fæddist á Brekku í
Langadal í Naut-
eyrarhreppi við
Ísafjarðardjúp 19.
nóvember 1935.
Hann lést á Höfða,
hjúkrunar- og
dvalarheimili á
Akranesi, 17.
september 2019.
Foreldrar hans
voru Magnús Jensson á Brekku
og síðar á Hamri, f. 30.8. 1896,
d. 19.9. 1969, og Jensína Arn-
finnsdóttir, f. 7.6. 1894, d 30.11.
1986. Systkini Ragnars voru: 1)
Jón Arnar Magnússon, f. 6.8.
1926, d. 24.1. 2002. 2) Guð-
mundur Kristján Magnússon, f.
27.10. 1927, d. 2.3. 2018. 3) Jens
Magnússon, f. 6.10. 1928, d. 7.2.
1930. 4) Kristín Magnúsdóttir, f.
25.10. 1929, d. 9.7. 2011. 5) Sig-
ríður Gyða Magnúsdóttir, f. 7.5.
1931, d. 11.8. 2018. 6) Margrét
Guðrún Magnúsdóttir, f. 9.6.
1932, d. 22.11. 1994. 7) Halldór
b) Lilja Dögg, maki Ingvar Örn
Ingólfsson, barn þeirra Aníta
Eir. c) Eva Lind, maki Þórarinn
S. Jónsson, barn hennar Eyrún
Irma, börn hans Jón Agnar og
Ingi Þór. 4) Júlía Björk, f. 21.9.
1964, maki Marinó Hákonarson,
börn þeirra eru a) Heiðar Ingi.
b) Steinar Bjarki, maki Svan-
fríður Guðrún Bergvinsdóttir,
börn þeirra Júlía Sif og Marín
Rún.
Ragnar fæddist á Brekku í
Langadal og ólst þar upp fram
til 1945 þegar fjölskyldan flutt-
ist að Hamri í sömu sveit. Hann
stundaði nám við Héraðsskólann
í Reykjanesi. Ragnar tók við búi
á Hamri af foreldrum sínum ár-
ið 1967.
Hann var m.a. umsjónarmað-
ur með Blævardalsárvirkjun
fyrir Orkubú Vestfjarða með
bústörfunum. Árið 1986 brá
hann búi og flutti út á Ísafjörð.
Hann gegndi ýmsum störfum
eftir það, m.a. umsjón og veiði-
vörslu í Langadalsá í nokkur
sumur og bjó þá á Hamri, hann
fluttist síðar til Hólmavíkur en
árið 1998 settist hann að á Akra-
nesi þar sem hann bjó til dánar-
dags.
Útförin fer fram frá Akranes-
kirkju í dag, 26. september
2019, klukkan 13.
Magnússon, f. 9.6.
1933, d. 22.5. 1976.
8) Edda Magnús-
dóttir, f. 5.7. 1937.
Ragnar kvæntist
Björk Sigurbjörgu
Júlíusdóttur 9.9.
1967 en þau slitu
samvistum 1986.
Þau eignuðust tvö
börn, 1) Jens Heið-
ar, f. 20.10. 1970,
maki Sonja Sveins-
dóttir, börn þeirra eru a) Sunna
Dís, maki Pétur Ingi Jónsson,
börn hennar Ísarr Myrkvi og
Eldey Rán. b) Alexander Freyr,
maki Ingibjörg Helga Rögn-
valdsdóttir. c) Karen Þöll. 2)
Lilja Ósk, f. 30.10. 1976, maki
Marías Hjálmar Guðmundsson,
dóttir hennar a) Ronja Ragney,
sonur hans Marteinn Bóas. Fóst-
urdætur Ragnars eru 3) Kristín
Anna, f. 11.9. 1962, maki Helgi
Lárus Guðlaugsson, börn þeirra
eru a) Helga Björk, maki Svanur
Ingi Halldórsson, börn þeirra
eru Birta Kristín og Róbert Ingi.
Nú er komið að kveðjustund,
elsku pabbi minn.
Mikið er ég lánsöm, betri pabba
hefði ég ekki getað fengið. Ég vildi
helst fá að fara með þér hvert sem
þú fórst og alltaf varst þú tilbúinn
með allri þinni þolinmæði og
gæsku að leyfa mér að koma með
að sinna þeim verkum sem til féllu
og leiðbeina mér þó að afköstin
væru ekki mikil og ég veit að oft
lengdi það vinnudaginn þinn til
muna.
Þú kenndir mér að biðja bæn-
irnar mínar og bera virðingu fyrir
öðrum. Þú varst alltaf að passa að
okkur liði vel og að engin hætta
væri á að við gætum farið okkur
að voða við leik og störf. Alltaf gat
ég leitað til þín ef eitthvað bjátaði
á. Þú hvattir mig til að fara í fram-
haldsnám, og þegar árin liðu og ég
eignaðist mína fjölskyldu þá
fylgdist þú alltaf með hvernig okk-
ur gengi og varst strákunum mín-
um mjög góður og dýrmætur afi.
Þú varst svo nægjusamur og
aldrei máttum við hafa neitt fyrir
þér en alltaf varst þú tilbúinn að
aðstoða okkur svo við hefðum það
sem allra best. Ég kveð þig með
söknuð í hjarta, takk fyrir allt. Þín
dóttir,
Júlía Björk.
Það er erfitt að setja niður í
nokkrum orðum heilt lífshlaup.
Það sem er efst í huga mér núna
er þakklæti fyrir stundirnar sem
við áttum saman. Pabbi var fædd-
ur og uppalinn í Ísafjarðardjúpi,
hann var góður og hæglátur mað-
ur og okkur systkinunum til fyr-
irmyndar. Hann fór ekki hamför-
um en fylgdi sinni sannfæringu,
og bar hag okkar og öryggi fyrir
brjósti. Hann var glaðlyndur og
hafði gaman af því að spjalla við
samferðafólk sitt.
Lengst af ævi sinnar var pabbi
bóndi þar sem hann sinnti bústörf-
um af miklum myndarskap. Ísa-
fjarðardjúpið er fallegur staður þó
að búseta væri hörð og veturnir
langir, þar undi hann sér vel og
átti þar góðar stundir. Pabbi var
mjög iðjusamur og handlaginn og
leysti öll þau verkefni sem upp
komu í kringum búskapinn ásamt
því að gefa sér tíma fyrir okkur
systkinin. Ég man eftir leikföng-
um sem hann smíðaði eða tálgaði
fyrir okkur og hvað mér fannst
þetta merkilegir hlutir. Einnig eru
mér minnisstæðar stundirnar sem
við áttum saman þegar þú last fyr-
ir mig áhugaverðar sögur fyrir
svefninn. Það er dýrmætt að eiga
þessar minningar til að ylja sér
við.
Pabbi var mjög fróðleiksfús og
hafði gaman af því að fræðast um
það sem var efst á baugi hverju
sinni, hann las mikið og sótti sér
fróðleik úr bókum, blöðum og fjöl-
miðlum. Eins og t.d. ef Ísland var
að spila landsleik í fótbolta þá var
hann mjög áhugasamur og búinn
að skoða íbúafjölda landa and-
stæðinganna og bera saman við
íbúafjölda á Íslandi.
Eftir að pabbi fór inn á dval-
arheimili varð okkur sérstaklega
tíðrætt um Ísafjarðardjúpið. Hug-
urinn leitaði oft vestur í Djúp og
man ég eftir skemmtilegum sam-
ræðum þar sem Djúpið, bæina og
fólkið bar á góma og hugurinn
hvarf aftur í Djúpið eins og það
var þegar hann var að alast upp.
Nú er komið að kveðjustund.
Þú skilur eftir þig stórt skarð og
þín er sárt saknað. Við þökkum
fyrir samfylgdina í gegnum lífið,
elsku pabbi, tengdapabbi, afi og
langafi Ragnar. Minning þín er
ljós í lífi okkar. Hvíl í friði.
Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi
minn
vegir okkar skiljast núna, við sjáumst
ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í hjörtum okkar
hér
því hamingjuna áttum við með þér.
Þökkum kærleika og elsku, þökkum
virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu, okkar
ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góð-
leg var þín lund
og gaman var að koma á þinn fund.
Með englum Guðs nú leikur þú og lítur
okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það
ég skil.
Og þegar geislar sólar um gluggann
skína inn
þá gleður okkur minning þín, elsku
pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á
braut
gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem
förunaut.
Og ferðirnar sem fórum við um landið út
og inn
er fjársjóðurinn okkar pabbi minn.
(Guðrún Sigurbjörnsdóttir)
Þinn sonur
Jens Heiðar, Sonja, barna-
börn og barnabarnabörn.
Elsku pabbi minn.
Tilhugsunin um að þú sért far-
inn af þessu tilverustigi er svo
erfið.
Söknuðurinn er mikill og sár,
en líka að vita að núna líður þér vel
er huggun.
Ég veit að þú heldur verndar-
hendi þinni yfir okkur eins og þú
gerðir alltaf.
Ómetanlegt var að fá þann
heiður að vera dóttir þín, allt sem
þú gerðir fyrir mig og hana Ronju
þína.
Það er mér svo dýrmætt hvað
þú gafst mér yndislega æsku og
samveru á fullorðinsárunum.
Ég veit að þú ert kominn heim
núna í sveitina og situr með Guð-
mundi bróður þínum og þið horfið
yfir djúpið. Báðir með pípu í
munnvikinu sem var oftast ekki
kveikt í.
Elsku besti pabbi minn, takk
fyrir allt .
Ég elska þig alltaf.
Þín dóttir
Lilja.
Móðurbróður minn og
uppeldisbróðir, Ragnar Heiðar
Magnússon frá Hamri við Ísa-
fjarðardjúp, er fallinn frá.
Hann var einstakt ljúfmenni,
algjörlega hrekklaus og vildi öll-
um vel.
Ég ólst upp á Hamri frá þriggja
ára aldri fram til 15 ára aldurs. Ég
á bara ljúfar og góðar minningar
með Ragnari. Hæst ber þegar við
vorum í heyskap, mjöltun, réttum
og sauðburði.
Á veturna gat verið basl að
koma mjólkinni út að Melgraseyri
þar sem djúpbáturinn Fagranes
sótti mjólk frá bændum tvisvar í
viku. Vegir voru ekki ruddir og oft
mikill snjómokstur og listin að
keyra á svellbólstrum var sigur í
hvert skipti. Hann var einnig góð
refaskytta.
Ragnar var næstyngstur níu
systkina og þegar ég kom að
Hamri þriggja ára til afa og ömmu
voru öll systkini Ragnars farin að
heiman og búin að finna sér maka
og stofna heimili. Hann hefur ef-
laust íhugað hvort hann ætti líka
að fara eða hjálpa foreldrum sín-
um með að reka búið. Hann fór og
var nokkra mánuði í byggingar-
vinnu í Reykjavík. En þegar vorið
kom og sauðburður var byrjaður
var Ragnar mættur og fór ekki
aftur.
Þegar systkini Ragnars komu í
heimsókn á sumrin með maka og
börn gat verið fjölmennt á Hamri
og annasamt.
Á hverju sumri réð afi til sín
kaupakonu til að létta á heimili og
heyskap. Síðasta kaupakonan var
Björk Júlíusdóttir frá Njarðvík og
hafði hún með sér sínar fallegu
dætur, þær Önnu og Júlíu.
Ragnar og Björk felldu saman
hugi og byrjuðu sambúð og eign-
uðust þau síðan tvö börn, Jens
Heiðar og Lilju Ósk.
Veturnir á Hamri voru langir,
enginn vegur var kominn til Ísa-
fjarðar og Steingrímsfjarðarheiði
var enn ekki opnuð. Einu sam-
göngurnar á veturna voru með
djúpbátnum Fagranesi sem fór
tvær ferðir á viku með farþega,
vörur og mjólk til og frá Ísafirði.
Leiðir Ragnars og Bjarkar
skildu og hætti Ragnar búskap
skömmu seinna. Eftir það starfaði
Ragnar víða, til dæmis við máln-
ingarvinnu, í sláturhúsi og við
heyskap.
Síðan flutti hann til Akraness
þar sem börn hans, Anna, Jens
Heiðar og Lilja Ósk búa, en Júlía
og fjölskylda búa á Ísafirði.
Þegar Ragnar kom í heimsókn
til Noregs til að heimsækja Lilju
dóttur sína kom hann til mín og
var eina helgi, þar voru rifjaðir
upp gamlir tímar og áttum við
frændur góðar og eftirminnilegar
stundir saman.
Við höfðum reglulega samband
í síma eða með bréfaskriftum.
Við hjónin heimsóttum hann í
tilefni áttræðisafmælis hans á
Akranesi. Tók ég sérstaklega eftir
því að börn hans, stjúpbörn og
barnabörn sýndu honum mikinn
kærleik, þetta fannst mér svo fal-
legt að ég varð hrærður og hugs-
aði að hér ætti hann heima í faðmi
fjölskyldunnar.
Ég er mjög þakklátur fyrir all-
ar þær góðu og eftirminnilegar
stundir sem við áttum saman.
Megi englar Guðs styrkja að-
standendur á þessum erfiðu tím-
um.
Innilegar samúðarkveðjur,
Magnús Ingvarsson.
Vor er indælt, ég það veit,
þá ástar kveður raustin.
En ekkert fegra’ á fold ég leit
en fagurt kvöld á haustin.
(Steingrímur Thorsteinsson)
Haustið hefur breitt skraut-
blæju sína yfir hlíðar Djúpsins.
Gullrautt, bleikt og grænt í bland
við brúnt og grátt grjótið silfur-
glitrandi í mildu haustregninu.
Þessi dýrð umvefur Hamar á
Langadalsströnd. Seinasti bónd-
inn þar, Ragnar Magnússon, hef-
ur nú kvatt og hans vil ég minnast
í fáeinum orðum, góðs nágranna í
mörg ár.
Ragnar og Edda systir hans
voru yngst í stórum systkinahópi.
Nú er hún ein eftir. Jensína Arn-
finnsdóttir og Magnús Jensson,
foreldrar þeirra, fluttu frá Brekku
í Langadal út að Hamri. Þar var
landrýmra og þægilegri aðstæður
á ýmsan hátt. Þegar ég kom hing-
að í sveitina 1958 bjó Ragnar á
Hamri og Guðmundur bróðir hans
bjó á Melgraseyri, næsta bæ.
Ragnar var ekki maður átaka
og umbrota, hann var þessi hljóð-
láti og prúði maður sem vann að
sínu, góður og óáleitinn nágranni
sem gott var að vita af, hafði góða
nærveru, tryggur og dagfarsprúð-
ur. Þannig fólk er ekki síður þarft
hverju samfélagi en þeir sem
standa í stafni og átökin brotna á.
Það þarf allt að fylgjast að.
Eftir að Ragnar hætti búskap
flutti hann á Akranes og þar voru
líka þrjú börn hans búsett. Ein
dóttirin átti heimili á Ísafirði og
hann kom oft hingað að Lauga-
landi þegar hann átti leið vestur.
Böndin við gömlu sveitina voru
sterk og mér hlýnaði alltaf í þeli
við komur hans. Þær rifjuðu upp
ánægjulega tíma og samveru-
stundir eins og við æfingar á
messusöng við Melgraseyrar-
kirkju og undirbúning samkomu-
halds og mannfagnaða sem þá
voru haldnir í heimahúsum meðan
ekkert samkomuhús var.
Eins og áður sagði bjó Ragnar
á Akranesi í nágrenni við börn sín
sem létu sér mjög annt um hann.
Þórður sonur minn lá þar á
sjúkrahúsi fyrir fáeinum árum og
þangað kom Ragnar í heimsókn til
hans og gaf honum myndir sem
teknar voru fyrir vestan þegar
Þórður var barn. Við skiptumst á
jólakortum í mörg ár, ég mun
sakna þess að fá ekki kortið frá
honum með hlýjum kveðjum,
skrifað með fallegri og skýrri rit-
hönd, en allt tekur enda.
Ég sendi Önnu, Júlíu, Jens og
Lilju innilegar samúðarkveðjur
frá mér og mínu fólki. Við þökkum
Ragnari á Hamri samfylgdina og
minnumst hans með hlýjum huga.
Þar sem góðir menn fara eru Guðs
vegir.
Ása Ketilsdóttir.
Ragnar Heiðar
Magnússon
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Magnús Sævar Magnússon,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Elsku hjartans eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR RÚNAR MAGNÚSSON
verkstjóri hjá Reykjavíkurborg,
konungssinni og fornbílaunnandi,
til heimilis að Lindargötu 61,
lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi í Fossvogi að morgni
28. ágúst eftir erfið veikindi. Útför fór fram í kyrrþey og hvílir
hann í Hvammi í Hvammssveit, Dalabyggð.
Ingibjörg Kr. Einarsdóttir
Erla Kr. B. Sigurðardóttir
Einar B. Sigurðarson Hafrún Gróa Árnadóttir
Sigurður Kr. Bergmann Kristján Bergmann
afastrákar
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ERNA BJÖRG VIGFÚSDÓTTIR,
fyrrverandi kaupmaður í Keflavík,
lést sunnudaginn 22. september.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Starfsfólk dvalarheimilisins Hlévangs fær þakkir fyrir góða
umönnun.
Birna Arnbjörnsdóttir
Ólafur Arnbjörnsson Sossa Björnsdóttir
Valgarður Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur vinur minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNAS JÓNSSON
húsasmíðameistari,
lést á Sólvangi í Hafnarfirði laugardaginn
21. september.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 30. september
klukkan 15.
Sólveig Helgadóttir
Gylfi Jónasson Hulda Hauksdóttir
Jón Halldór Jónasson Guðrún G. Gröndal
Þórir Jónasson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín og móðir,
HRÖNN GARÐARSDÓTTIR
heimilislæknir,
lést á krabbameinsdeild LHS aðfaranótt 24.
september.
Útför Hrannar verður gerð frá Vídalínskirkju
mánudaginn 7. október klukkan 13.00.
Minningarathöfn verður á Egilsstöðum. Upplýsingar um hana
verða auglýstar síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Páll Rúnarsson
Garðar Páll Pálsson