Morgunblaðið - 26.09.2019, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 26.09.2019, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019 um vandlega listina á veggina. Ég er einnig hrifin af orkusteinum og raða þeim þannig upp að andrúms- loftið sé heilbrigt og hollt öllum sem eru næmir fyrir slíku.“ Tanit er mikið fyrir forn heilög mynstur. Hún er einnig með fjórar teg- undir af ekta bambus ,,koshi“ bjöll- um. Þær standa fyrir jörð, vatn, eld og vind. „Þegar kemur að orkusteinunum, þá hreinsar glær kvars (Clear Quartz) orkuna í húsinu, í raun um- breytir neikvæðri orku í jákvæða. Rósakvars (Rose Quarz) er kristall ástarinnar. Hann opnar hjartastöð- ina og minnir okkur á að við erum öll hluti af heildinni. Mér þykir gaman að raða steinunum upp í ákveðið form og hef trú á að þeir hjálpi til við að halda orkunni hreinni og uppbyggilegri inni í hús- inu á alls konar vegu.“ Kynntist Andra ofan í sjó Tanit segir hjónaband þeirra Andra einstakt. Þau njóti þess að vera saman en einnig að eiga tíma fyrir sig. Þau hafa verið saman í þrjú ár og sagan á bak við það hvernig þau kynntust tengist að sjálfsögðu köldu vatni og íslenskri náttúru. „Eftir að ég hafði kynnst landinu langaði mig að prófa að búa hér. Ég fékk áhugaverða stöðu í dásamlegu íslensku fyrirtæki, en það má segja að ég hafi elskað vinnuna mína að- eins of mikið. Ég örmagnaðist eftir of mikla vinnu og þurfti að leita mér allskonar leiða til að byggja mig aft- ur upp. Það var þá sem ég kynntist Andra. Við hittumst fyrst í Naut- hólsvík, í febrúar þegar ég var að prófa að kæla til að endurheimta orkuna. Ég sá Andra sitjandi í ís- köldum sjónum með friðsælan ham- ingjusvip. Vinir mínir bentu mér á hann svo ég gekk bara til hans og byrjaði að spjalla. Að sjálfsögðu komst ég ekki ofan í sjóinn til hans, en hann leið- beindi mér ofan í og þaðan varð ekki aftur snúið. Þegar ég settist of- an í sjóinn fann ég fyrir algjörri slökun, einhverju sem ég hafði aldr- ei upplifað áður. Það má segja að á þessu augnabliki hafi ANDRI ICE- LAND orðið til. Með þessum leið- um náði ég að safna orkunni aftur og þetta er eitt að því sem ég kenni á námskeiðunum okkar. Ég gef áfram til annarra hvernig hægt er að vinna sig upp úr kulnun í lífi og starfi, og í raun örmögnun eins og ég upplifði á þessum tíma í mínu lífi.“ Á von á fyrsta barni sínu bráðlega Tanit og Andri eiga von á fyrsta barninu sínu eftir nokkrar vikur þegar lítil stúlka mun líta dagsins ljós. Fyrir á Andri tvær dætur sem deila heimili með þeim í Hafnarfirði en einnig með móður sinni þess á milli. „Herbergi stúlknanna eru hlið við hlið, sem mér finnst dásamlegt. Yngri dóttir Andra á fallegt barna- herbergi sem er innréttað í hennar stíl. Eldri dóttir hans og systir mín skiptast á að nota herbergið þar við hliðina sem er fallega innréttað eftir höfði þeirra beggja. Við erum ennþá að móta herbergið sem yngsta dótt- ir okkar mun eiga. Náttúran spilar meginhlutverk og við höfum ákveð- ið að hafa fáa hluti fyrst um sinn í herberginu. Á meðan við erum að finna hvað mun henta henni best.“ Í opna rýminu á neðri hæðinni er svæði þar sem Andri situr oft með bók eða tölvuna sína. Sófinn er lág- ur og er einnig góður til að hugleiða í. Inni í því rými eru einnig bækur og altarið þar sem kristallar og bjöllurnar eru. Húsið þeirra Tanit og Andra er í stöðugri þróun. Þau eru með aðbún- að til að kæla úti í garði og fallega verönd þar sem náttúran leikur ekki síður hlutverk en svæðið inn í húsinu. „Ég fer daglega berfætt út í garðinn okkar til að tengja mig með aðstoð náttúrunnar. Hér er ein- staklega mikill friður, hér eru álfar og steinar, tröll og falleg orka sem umvefur okkur í garðinum. Það er dásamlegt að standa í garðinum berfættur og vera úti í náttúrunni og leyfa henni að endurnæra það sem þarf að gerast innra með okkur hverju sinni.“ Fer berfætt út í garð sama hvernig viðrar Tanit fer út í garð berfætt sama hvernig viðrar. „Ég fer út í garð berfætt á öllum árstíðum. Ef mér sem dæmi líður ekki vel einn daginn fer ég út og það minnir mig á að allt verður í lagi aftur.“ Af hverju heldurðu að þú hafir tengt svona vel við Ísland allt frá byrjun? „Umhverfið og menningin hér er svo allt öðruvísi en á Spáni. Í Barselóna sem dæmi þá gat ég aldrei lagt frá mér töskuna mína. Þar er mikið um spennu í umhverf- inu og maður er í raun og veru aldr- ei alveg öruggur. Það er andstæðan við það sem ég upplifi hér. Ég eign- aðist strax marga vini og við vorum dugleg að fara út í náttúruna, tjöld- uðum og áttum dýrmætar stundir saman inni á milli þess sem við lærðum og unnum. Orkan í nátt- úrunni hér hefur heillað mig frá upphafi, síðan finnst mér dásamlegt að geta lifað í því öryggi sem ég upplifi hér daglega.“ Slökun „Koshi“-bjöllur úr bambus gefa frá sér róandi hljóð. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Öðruvísi uppröðun Innigarður sem Tanit hefur skapað. Íslensk náttúra Orkusteinar sem raðað er upp á sérstakan hátt. Friðsælt Garðurinn í kringum húsið í Hafnafirði er gulls ígildi. Nóg pláss Tanit og Vilhjálmur Andri geta tekið á móti allt að 20 manns. V E R T Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum. - því að sumt virkar betur saman Stundum þarf tvo til
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.