Morgunblaðið - 26.09.2019, Síða 63
ÞÓR
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Þór frá Akureyri spilar í efstu deild
karla í körfubolta í vetur eftir eins
árs veru í 1. deild. Lárus Jónsson var
ráðinn þjálfari liðsins eftir fall úr úr-
valsdeildinni þarsíðasta vetur og
undir stjórn hans vann liðið 17 af 21
leik á síðasta tímabili og bar sigur úr
býtum í 1. deild. Þórsliðið mætir mik-
ið breytt til leiks í vetur og eru leik-
menn sem áttu stóran þátt í að liðið
tryggði sér sæti í efstu deild að nýju
horfnir á braut. Félagið hélt hins veg-
ar hinum efnilega Júlíusi Orra
Ágústssyni, sem er 18 ára gamall.
„Þetta er búið að ganga frekar vel.
Stemningin í liðinu er mjög góð og
við erum mjög spenntir fyrir þessu,“
sagði Júlíus við Morgunblaðið. Hann
vonast til að Þórsarar geti byggt ofan
á gott tímabil síðasta vetur, þótt liðið
sé mikið breytt. „Við ætlum að reyna
að byggja ofan á það sem við gerðum
í fyrra, þrátt fyrir að vera með frekar
breyttan hóp. Lalli stillir okkur vel
saman. Við ætlum auðvitað að reyna
að halda okkur uppi. Það er helsta
markmiðið og við gerum allt sem við
þurfum að gera til að ná því.“
Þór hefur samið við fjóra erlenda
leikmenn fyrir tímabilið; Hansel
Atencia, landsliðsmann Kólumbíu,
Litháann Mantas Virbalas, Pablo
Hernández frá Spáni og Bandaríkja-
manninn Jamal Palmer.
„Þetta eru mjög spennandi leik-
menn. Kólumbíumaðurinn er virki-
lega skemmtilegur, góður og
snöggur. Ég held hann geti gert
mjög góða hluti í þessari deild.
Mantas er mjög sterkur inni í teign-
um. Hann getur bitið vel frá sér og
ætti að vera sterkur líka. Svo fengum
við Spánverja sem heitir Pablo. Hann
getur teygt á vellinum og er mjög
góður að skjóta. Jamal er síðan ný-
kominn til landsins og ég veit hann er
mjög góður að skora og það er mikil
sprengja í honum. Þeir líta allir mjög
vel út,“ sagði Júlíus um nýju liðs-
félagana.
Júlíus spilaði alla 22 leiki Þórs
tímabilið 2017/18, þá aðeins sextán
ára gamall. Hann skoraði þá 7,1 stig
að meðaltali. Síðasta vetur bætti
hann í og skoraði 12,2 stig að meðal-
tali. Reikna má með að Júlíus verði í
stóru hlutverki í vetur og má segja að
hann verði leiðtogi ungu og uppöldu
Þórsaranna. „Ég býst við að ég verði
í frekar stóru hlutverki í vetur og
verði fyrirliði líka. Ég reyni að leiða
þessa stráka áfram. Það er mjög
spennandi og gott tækifæri til að
sýna hvað ég get. Það verður mikið
fylgst með manni og það verður mjög
spennandi að sýna þessu fólki hvað
maður getur.“
Fallegt af Þór að gera þetta
Mikil rekistefna varð í sumar þeg-
ar fréttir bárust af því að Þórsarar
gætu dregið lið sitt úr keppni í vetur
vegna áhyggja um fjármagn. „Þetta
var mjög fljótt að ganga yfir og ég
held við leikmennirnir hafi ekki mikið
tekið eftir þessu. Við vissum alltaf af
þessu en við treystum stjórninni í að
gera það sem þurfti og gera það vel.
Þessu var reddað fljótt og það er
komið flott fólk í stjórnina núna,“
sagði Júlíus.
Þórsarar spila með áletrunina
„Fyrir Ágúst“ aftan á treyjum sínum
í vetur til heiðurs Ágúst Guðmunds-
syni. Ágúst starfaði lengi við þjálfun
hjá Þór, en varð að láta af störfum er
hann greindist með MND-sjúkdóm-
inn, sem hann berst nú við. Ágúst er
einmitt faðir Júlíusar, sem er stoltur
að spila með nafn föður síns á bakinu.
„Það hefur mjög mikla þýðingu fyrir
mig og ég er stoltur af þessu. Það er
fallegt af Þór að gera þetta. Hann
hefur staðið vel við bakið á Þór og
það er fallegt af félaginu að gera
þetta fyrir hann,“ sagði Júlíus Orri
Ágústsson.
Reyni að
leiða þessa
stráka áfram
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ungur Júlíus Orri Ágústsson lék alla leiki Þórs í úrvalsdeildinni fyrir tveim-
ur árum, þá aðeins 16 ára gamall, og er hér í baráttu gegn Val.
Þór Akureyri leikur í efstu deild eftir
árs fjarveru Átján ára lykilmaður
ÍÞRÓTTIR 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is
Verkfæralagerinn
án.-m. kl. 9-18, fs. kl. 9-18
0, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-1
Kolibri trnur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavrum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
BAKVERÐIR:
Egill Elvarsson
Hansel Athencia
Jamal Palmer
Júlíus Orri Ágústsson
Kolbeinn Fannar Gíslason
Sigurður Traustason
Smári Jónsson
FRAMHERJAR:
Baldur Örn Jóhannesson
Einar Húmi Valsson
Pablo Hernández
Ragnar Ágústsson
Róbert Orri Heiðmarsson
MIÐHERJI:
Mantas Virbalas
Þjálfari: Lárus Jónsson.
Aðstoðarþjálfari: Hlynur Frið-
riksson.
Árangur 2018-19: Sigurvegari í 1.
deild karla.
Íslandsmeistari: Aldrei.
Bikarmeistari: Aldrei.
Þórsarar mæta Haukum á úti-
velli í 1. umferð deildarinnar
fimmtudaginn 3. október og fá
síðan Fjölni í heimsókn föstudag-
inn 11. október.
Lið Þórs 2019-20
KOMNIR
Hansel Atencia frá Master’s Uni-
versity (Bandaríkjunum)
Jamal Palmer frá Lynn Univers-
ity (Bandaríkjunum)
Mantas Virbalas frá Bozole
(Frakklandi)
Pablo Hernández frá Missouri
Baptist (Bandaríkjunum)
FARNIR
Bjarni Rúnar Lárusson í Hamar
Damir Mijic, óvíst
Ingvi Rafn Ingvarsson, óvíst
Kristján Pétur Andrésson, óvíst
Larry Thomas í Breiðablik
Pálmi Geir Jónsson í Hamar
Breytingar á liði Þórs
Það stefnir í erfiðan vetur hjá Þórsurum.
Þeir hafa misst marga lykilmenn og tefla fram ansi
ungu liði ásamt fjórum erlendum atvinnumönnum.
Júlíus Orri Ágústsson er eini unglingur liðsins sem
er með einhverja reynslu til að tala um af íslenska
kjarnanum. Hann er samt bara nýorðinn 18 ára.
Af útlendingahersveitinni hafa tveir sýnt mér gæði
sem nýtast liðinu en hinir tveir þurfa að rífa sig í
gang ekki seinna en strax ef Þór á að eiga mögu-
leika á að halda sér uppi.
Benedikt Guðmundsson
um Þór Akureyri
Valur er Íslandsmeistari
kvenna í knattspyrnu í ellefta
sinn, verðskuldað svo því sé nú
haldið til haga. Valskonur fóru
taplausar í gegnum mótið með
50 stig ásamt því að skora 65
mörk. Sömu sögu er að segja
um Breiðablik, sem endaði í
öðru sætinu með 48 stig. Valur
og Breiðablik eru langbestu lið
landsins en Selfoss, næsta lið á
eftir þeim, fékk 34 stig.
Jón Þór Hauksson, þjálfari ís-
lenska kvennalandsliðsins, valdi
á dögunum landsliðhóp Íslands
sem mætir Frökkum í æfinga-
leik 4. október í Nimes og svo
Lettlandi í Liepaja í und-
ankeppni EM 2021. Af þeim 23
leikmönnum sem eru í hópnum
leika þrettán þeirra á Íslandi.
Tólf af þessum þrettán leik-
mönnum spila með Breiðabliki
eða Val.
Í 23 manna hópnum fyrir leik-
ina gegn Ungverjalandi og Slóv-
akíu í undankeppni EM sem
fram fóru í lok ágúst og byrjun
september voru 14 leikmenn frá
Breiðabliki eða Val. Auðvitað
gefur það augaleið að bestu
leikmenn landsins eru valdir í
landsliðið en eykur það mögu-
leika manns að spila fyrir ann-
aðhvort Breiðablik eða Val? Það
er draumur hjá mörgum ungum
knattspyrnukonum að spila fyrir
land sitt.
Það hefur lengi verið í um-
ræðunni að í keppnisferðum
yngri landsliða sé markvisst
reynt að selja ungum leik-
mönnum það að möguleikar
þeirra um að spila með A-
landsliðinu aukist til muna ef
þeir skrifa undir í Kópavogi eða
á Hlíðarenda. Ég vona hins veg-
ar að ungir leikmenn hætti að
láta glepjast af gylliboðum og
haldi kyrru fyrir hjá uppeldis-
félögum sínum þar sem þær fá
alvöru spilatíma, í það minnsta
þangað til þær verða tvítugar.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is