Morgunblaðið - 26.09.2019, Side 64
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ómar Ingi Magnússon, landsliðs-
maður í handknattleik, hefur ekki
getað leikið með dönsku meist-
urunum frá Álaborg í upphafi keppn-
istímabilsins vegna höfuðáverka sem
hann varð fyrir hinn 26. maí.
„Ég fékk höfuðhögg í leik á móti
Silkeborg í undanúrslitunum á síð-
asta tímabili. Tveir leikmenn fóru í
mig á sama augnabliki. Við það missti
ég alveg jafnvægið og lenti með
hnakkann í gólfinu. Ég fékk gat á
hausinn og tilheyrandi. Eftir það hef
ég verið frá,“ útskýrði Ómar Ingi
þegar Morgunblaðið tók púlsinn á
honum í gær.
Spurður um gang mála kveðst Óm-
ar reglulega fá höfuðverk og lítið hafi
þokast í rétta átt. „Staðan hefur lítið
breyst. Ég hef ekkert getað æft með
liðinu og er ég í rauninni mjög róleg-
ur þessa dagana. Höfuðverkurinn
kemur og fer en er eiginlega alltaf til
staðar í einhverri mynd. Ég prófaði
að hlaupa um daginn og það gekk
ekki nægilega vel. Þá hafði ég getað
hjólað í nokkurn tíma en það kom í
ljós að ég er ekki orðinn nægilega
góður til að hlaupa.“
Leitar til sérfræðinga
Fyrir lesendur sem ekki þekkja til
eru vinnureglurnar í grófum dráttum
þannig að „trappa“ skal íþróttamann
upp í æfingaálagi eftir heilahristing.
Þá kemur í ljós hvort viðkomandi þol-
ir álagið og hversu mikið. Fái fólk
annað höfuðhögg, þegar einkenni
heilahristings eru ekki horfin, getur
slíkt haft grafalvarlegar afleiðingar.
„Maður getur prófað sig aðeins áfram
með reglulegu millibili án þess að
ástandið verði mikið verra.“
Ómar segist hafa leitað ráða hjá
sérfræðingum í von um að ná bata.
Ekki er víst hægt að fara með neinar
galdraþulur til að losa fólk undan
höfuðverkjum sem þessum.
„Ég hef aðeins heimsótt einhverja
sérfræðinga til að heyra hvað þeir
leggja til. Hef leitað ráða bæði í Dan-
mörku og heima á Íslandi. Ég hef
fengið æfingar fyrir hnakka og augu
sem eiga að geta hjálpað mér. En
annars er þetta mikil þolinmæðis-
vinna,“ sagði Ómar sem ekki hefur
áður fengið einkenni heilahristings á
ferlinum.
Spenntur fyrir Magdeburg
Ómar er búinn að semja við þýska
félagið Magdeburg og gengur í raðir
þess næsta sumar. Gekk hann frá
samkomulagi þess efnis snemma á
þessu ári. Gerði hann fjögurra ára
samning við þýska félagið enda leist
honum vel á.
„Ég hafði mestan áhuga á Magde-
burg. Forráðamenn félagsins sýndu
mér mikinn áhuga og mér fannst
þetta mjög spennandi kostur. Ég fór
því einungis í samningaviðræður við
þá. Mig langaði til að fara í sterkara
lið, en Magdeburg hefur blandað sér í
toppbaráttuna í Þýskalandi. Liðið
hefur verið stöðugt síðustu árin en
vantar kannski að taka eitt skref til
viðbótar til að geta barist um efsta
sætið. Mér finnst liðið vera spennandi
og hlakka til að geta spilað með því,“
sagði Ómar, en Íslendingum hefur nú
fjölgað á ný í efstu deildinni í Þýska-
landi. „Já, já, það er nóg af þeim,“
sagði Ómar Ingi Magnússon enn
fremur í samtali við Morgunblaðið.
Ómar Ingi
glímir enn við
höfuðáverka
Óvissa ríkir um hvenær landsliðs-
maðurinn getur beitt sér á ný
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á sjúkralistanum Ómar Ingi Magnússon er ekki orðinn leikfær.
64 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
England
Deildabikarinn, 32ja liða úrslit:
Brighton – Aston Villa ............................. 1:3
Burton – Bournemouth............................ 2:0
Chelsea – Grimsby ................................... 7:1
MK Dons – Liverpool............................... 0:2
Oxford United – West Ham..................... 4:0
Sheffield United – Sunderland ............... 0:1
Wolves – Reading..................................... 1:1
Wolves áfram í vítakeppni, 4:2.
Manchester United – Rochdale .............. 1:1
Man. United áfram í vítakeppni 5:3.
Svíþjóð
AIK – Gautaborg ..................................... 1:0
Kolbeinn Sigþórsson tók út leikbann hjá
AIK.
Sirius – Hammarby ................................. 1:3
Aron Jóhannsson spilaði síðari hálfleik-
inn með Hammarby.
Hvíta-Rússland
Dinamo Brest – BATE Borisov.............. 1:1
Willum Þór Willumsson var ónotaður
varamaður hjá BATE.
Belgía
Bikarkeppnin, 32ja liðaúrslit:
Mandel United – Oostende ..................... 0:2
Ari Freyr Skúlason var á varamanna-
bekk Oostende.
Danmörk
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Skive – Bröndby ...................................... 2:3
Hjörtur Hermannsson var í byrjunarliði
Bröndby.
Hvidovre – SönderjyskE ........................ 2:4
Ísak Óli Ólafsson lék allan leikinn með
SönderjyskE en Eggert Gunnþór Jónsson
var ekki í leikmannahópnum.
AB – Viborg.............................................. 3:1
Ingvar Jónsson lék allan leikinn með Vi-
borg.
Rússland
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Mordovija – Rostov.................................. 0:2
Ragnar Sigurðsson og Björn Bergmann
Sigurðarson voru ekki í hóp hjá Rostov.
Alania Vladikavkaz – CSKA Moskva.... 1:3
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn og Arnór Sigurðsson fyrstu 65 mín-
útrnar með CSKA.
Khimki Moskva – Rubin Kazan.............. 3:0
Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn
með Rubin Kazan.
Nizhnij Novgorod – Krasnodar ............. 1:0
Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Krasnodar.
Pólland
Bikarkeppnin, 64-liða úrslit:
Cracovia – Jagiellonia ............................ 4:2
Böðvar Böðvarsson var ónotaður vara-
maður hjá Jagiellonia.
Polonia Sroda – Górnik Zabrze............. 0:6
Adam Örn Arnarson lék allan leikinn
með Górnik Zabrze.
KNATTSPYRNA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Sveindís Jane Jónsdóttir, framherj-
inn ungi hjá Keflavík, var besti leik-
maður úrvalsdeildar kvenna, Pepsi
Max-deildarinnar, í septembermán-
uði, samkvæmt M-gjöfinni, ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins.
Eins og fram kom í þriðjudags-
blaðinu var Sveindís jafnframt besti
leikmaður tímabilsins í heild, sam-
kvæmt M-gjöfinni, en hún varð efst
í henni með samtals 19 M í 17 leikj-
um sem hún spilaði með Keflavík.
Í september, þar sem þrjár síð-
ustu umferðir deildarinnar voru
leiknar, fengu þær Sveindís og
Hallbera Guðný Gísladóttir, vinstri
bakvörður Íslandsmeistara Vals,
flest M eða fjögur hvor. Sveindís
hlýtur útnefninguna því hún fékk M
í öllum þremur leikjunum, tvisvar
eitt og einu sinni
tvö, á meðan
Hallbera fékk
tvisvar tvö M en
ekkert í einum
leikjanna.
Þetta er í ann-
að sinn sem
Sveindís er leik-
maður mánaðar-
ins á þessu tíma-
bili en hún varð
líka efst í júnímánuði. Þessir leik-
menn fengu útnefningarnar fyrir
hvern mánuð fyrir sig:
Maí: Cloé Lacasse, ÍBV.
Júní: Sveindís Jane Jónsdóttir,
Keflavík.
Júlí: Hallbera Guðný Gísladóttir,
Val.
Ágúst: Elín Metta Jensen, Val.
September: Sveindís Jane Jóns-
dóttir, Keflavík.
Sveindís Jane var
líka best í september
4-5-1
Lið septembermánaðar hjá
Morgunblaðinu í Pepsi Max-deild kvenna 2019
Fjöldi sem leikmaður
fékk í mánuðinum
5
Varamenn:
Kelsey Wys, Selfossi
Viktoría V. Guðrúnard., Stjörnunni
Berglind Rós Ágústsdóttir, Fylki
Ásgerður Stefanía Baldursd., Val
Margrét Lára Viðarsdóttir, Val
Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki
Berglind Björg Þorvaldsd., Breiðabliki
2
2
2
2
2
2
2
Audrey Baldwin
HK/Víkingi
Anna María
Baldursdóttir
Stjörnunni
Kristín Dís
Árnadóttir
Breiðabliki
Barbára Sól
Gísladóttir
Selfossi
Hallbera Guðný
Gísladóttir
Val
Karólína Lea
Vilhjálmsdóttir
Breiðabliki
Betsy Hassett
KR
Karitas
Tómasdóttir
SelfossiNatasha Anasi
Kefl avík
Hulda Ósk
Jónsdóttir
Þór/KA
Sveindís Jane Jónsdóttir
Kefl avík
3
3
4
3 4
2 2
3 3
3 3
Sveindís Jane
Jónsdóttir