Morgunblaðið - 26.09.2019, Qupperneq 70
70 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2019
Sýningin Letur og list verður opn-
uð í dag kl. 17 í Galleríi Gróttu. Á
henni munu Þorvaldur Jónasson,
skrautritari og myndskreytir og
bókbandsmeistararnir Ragnar G.
Einarsson og Guðlaug Friðriks-
dóttir sýna letursöguna og hvern-
ig hún hefur þróast allt frá
Kristsburði, ásamt einstöku list-
bókbandi, eins og segir í tilkynn-
ingu.
Gallerí Grótta er í Bókasafni
Seltjarnarness á 2. hæð Eiðistorgs
og er sýningin opin á meðan það
er opið.
Sýnendur Þorvaldur, Guðlaug og
Ragnar á sýningunni í Galleríi Gróttu.
Letursaga og list-
bókband í Gróttu
Sváfnir Sigurðarson heldur tón-
leika á Hard Rock í kvöld kl. 21
ásamt hljómsveit. Leikin verða
lög af plötunni Loforð um nýjan
dag sem kom út fyrir þremur ár-
um og einnig lög af væntanlegri
sólóplötu Sváfnis.
Fyrsta lagið sem gefið hefur
verið út af plötunni, „Fólk breyt-
ist“, hefur notið vinsælda í sumar
og sat í 13 vikur á vinsældalista
Rásar 2. Í dag verður annað lag
af plötunni, „Fer sem fer“, frum-
flutt á Rás 2. Með Sváfni koma
fram á tónleikunum þeir Pálmi
Sigurhjartarson píanóleikari,
Kristján Freyr Halldórsson
trommari, Flosi Þorgeirsson
bassaleikari og Stefán Magnússon
gítarleikari. Miðasala fer fram á
tix.is
Kvintett Sváfnir í fagurrauðum bol
með félögum sínum í hljómsveitinni.
Sváfnir og félagar á Hard Rock Café
Sæunn Þorsteinsdóttir, einn fremsti
sellóleikari Íslands, leikur Selló-
konsert í D-dúr eftir Joseph Haydn
á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands í Eldborg í kvöld. Hljómsveitin
mun auk þess flytja Egmont forleik
eftir Ludwig van Beethoven og Sin-
fóníu nr. 5 eftir Dmítríj Shostako-
vitsj.
„Dramatísk örlög og frelsisþrá
eru leiðarstef í kraftmiklum verkum
Beethovens og Shostakovitsj sem
hljóma á þessum tónleikum. Beetho-
ven samdi forleik sinn við leikritið
Egmont eftir Goethe, sem segir frá
frelsishetju á Niðurlöndum á 16. öld.
Egmont leiðir uppreisn gegn
spænska einveldinu en mistekst og
er dæmdur til dauða. Shostakovitsj
samdi fimmtu sinfóníu sína um það
leyti sem ofsóknir Stalíns stóðu sem
hæst, og verkið varð til þess að
bjarga ferli tónskáldsins á við-
kvæmum tíma,“ segir á vef Hörpu
um tónleika kvöldsins og að selló-
konsertinn sé svo gleðin og létt-
værðin uppmáluð.
Á tónleikunum verður líka frum-
flutt ný einleikskadensa sem Anna
Þorvaldsdóttir, staðartónskáld sin-
fóníuhljómsveitarinnar sem er auk
þess menntaður sellóleikari, hefur
samið við konsertinn sérstaklega af
þessu tilefni.
Tónleikakynning verður haldin í
Hörpuhorni fyrir tónleikana í kvöld
og hefst hún klukkan 18.
Sæunn hefur haldið tónleika víða
um lönd, er m.a. fastagestur í Carne-
gie Hall og kom fram með Fílharm-
óníusveitinni í Los Angeles á róm-
aðri Íslandshátíð hennar og var
nýverið tilnefnd til Tónlistarverð-
launa Norðurlandaráðs. Sæunn hélt
útgáfutónleika í Ásmundarsal 20.
febrúar sl. út af nýrri plötu sinni
Vernacular sem kom út 8. mars á
vegum bandarísku útgáfunnar Sono
Luminus og hefur að geyma fjögur
verk eftir jafnmörg íslensk tón-
skáld.
Hlaut Solti-verðlaunin
Hljómsveitarstjóri á tónleikunum
í kvöld verður Karina Canellakis,
aðalstjórnandi Hollensku útvarps-
hljómsveitarinnar, og segir um hana
að hún hafi vakið mikla hrifningu
fyrir innblásna hljómsveitarstjórn
og þá m.a. á Nóbelstónleikunum í
Stokkhólmi í desember í fyrra.
Canellakis hlaut Solti-hljómsveitar-
stjóraverðlaunin árið 2016 og ári síð-
ar stjórnaði hún Sinfóníuhljómsveit
Íslands á tónleikum sveitarinnar í
Eldborg og hlaut mikið lof fyrir.
Sæunn Þorsteinsdóttir leikur Sellókonsert í D-dúr eftir
Haydn á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld
Dramatík og frelsisþrá
Morgunblaðið/Hari
Hæfileikafólk Sæunn á æfingu með
SÍ og Canellakis í Eldborg í gær.
Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur verður framlag
Íslands til Óskarsverðlaunanna á næsta ári. Meðlimir
Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar kusu
um framlagið í rafrænni atkvæðagreiðslu og hlaut
myndin meirihluta atkvæða.
Hlynur Pálmason leikstýrði og skrifaði handritið að
Hvítum, hvítum degi sem hlotið hefur lof gagnrýn-
enda og var frumsýnd í maí á Critics‘ Week sem er
hliðardagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes. Þar
hlaut Ingvar E. Sigurðsson verðlaun sem besti leikari
í aðalhlutverki.
Hvítur, hvítur dagur framlag Íslands
Hlynur Pálmason
Metropolitan-óperan í New York hefur vikið óperu-
söngvaranum Plácido Domingo úr starfi vegna fjölda
ásakana á hendur honum um kynferðislega áreitni í
garð kvenna. Domingo átti að syngja aðalhlutverkið í
óperunni Macbeth eftir Verdi sem frumsýnd var í Metro-
politan í gær. Domingo hefur neitað öllum ásökunum og
sendi frá sér yfirlýsingu í fyrradag þar sem hann segir
51 árs sambandi sínu við óperuhúsið lokið.
Alls hafa 20 konur sakað spænska söngvarann um
kynferðislega áreitni og ósæmilega hegðun í þeirra garð
og einnig að hafa skemmt fyrir þeim í starfi eftir að þær
höfnuðu honum.
Domingo sagt upp hjá Metropolitan
Plácido Domingo
Enska hljómsveitin Tindersticks
heldur tónleika í Hljómahöllinni í
Reykjanesbæ 7. febrúar á næsta ári
og hefst miðasala á tónleikana á
morgun á tix.is.
Tindersticks var stofnuð árið
1992 og á sér fjölmennan og dygg-
an hóp aðdáenda. Hún hefur gefið
út tíu breiðskífur og sú ellefta, No
Treasure but Hope, kemur út í
nóvember, að því er fram kemur á
Facebook-síðu tónleikanna.
Í tilefni af útgáfunni heldur
hljómsveitin í tónleikaferð um Evr-
ópu og er Ísland einn viðkomu-
staða. Hljómsveitin hefur þó leikið
hér áður því hún hélt tónleika á
Nasa fyrir 11 árum.
Rútuferðir verða í boði á milli
Reykjavíkur og Hljómahallarinnar
og verður lagt af stað frá BSÍ kl. 19
á tónleikadegi. Verður hægt að
kaupa rútumiða um leið og tón-
leikamiðar eru keyptir.
Tindersticks leikur í Hljómahöllinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á Nasa Tindersticks á tónleikum sínum hér á landi 11. september árið 2008.
EKKI GLEYMA AÐ SKRIFA UNDIR
Á FINNUMLAUSNIR.IS