Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Side 4

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Side 4
4 www.virk.is S TA R FS E N D U R H Æ FI N G A R S JÓ Ð U R starfsendurhæfingu hér á landi, en þrátt fyrir miklar umræður og umfjöllun um málið þá hefur lítið orðið úr fyrirheitum og efndum. Aðilar vinnumarkaðarins hér á landi hafa iðulega haft frumkvæði að því að tryggja einstaklingum á vinnumarkaði mikilvæg réttindi auk þess að byggja upp og reka fjölbreytta þjónustu, svo sem á sviði sí- og endurmenntunar, fullorðinsfræðslu, sjúkratrygginga og lífeyrisréttinda. Markmiðið er bæði að tryggja félagsmönnum mikilvæg réttindi og nauðsynlega þjónustu og auka samkeppnis- hæfni íslensks atvinnulífs þar sem mikilvægt er að sérhver einstaklingur fái notið hæfileika sinna og getu. Stofnun Starfsendurhæfingarsjóðs er rökrétt framhald af þessari þróun og samvinnu og mikilvægt skref í þá átt að tryggja snemmbært inngrip til að auðvelda fólki endurkomu til vinnu og tryggja öllum starfsmönnum á vinnumarkaði þjónustu í formi starfsendurhæfingar ef um er að ræða skerta vinnugetu vegna veikinda eða slysa. Vegna þess að vinnumarkaðurinn axlar ábyrgð á fjármögnun starfsendurhæfingar fyrir þátt- takendur á vinnumarkaði er stjórnvöldum gert mun auðveldar um vik að sinna þeim einstakling- um, sem ekki eiga réttindi á vinnumarkaði. Þessi „Starfsendurhæfingarsjóður er nú að ljúka sínu fyrsta heila starfsári. Samið var um sjóðinn í kjarasamningum á árinu 2008, fyrst af hálfu ASÍ og SA en síðar af hálfu BSRB, BHM, KÍ og annarra samtaka. Sjóðurinn var síðan stofnaður formlega í maí 2008 og hóf starfsemi í ágúst það ár. Haustið 2008 var síðan rætt við fulltrúa opinberu samtakanna og náðist breið samstaða um að breyta samþykktum hans til að tryggja aðkomu þeirra að sjóðnum og stjórn hans. Að sjóðnum standa því öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda á Íslandi – bæði á almennum- og opinberum vinnumarkaði – og undirstrikar það meira en allt annað mikla áherslu þessara aðila á að gefa þeim sem veikjast alvarlega eða lenda í slysum tækifæri til að komast aftur til starfa. Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum. Áhersla er lögð á að byggja upp ráðgjöf í samstarfi við stéttarfélög um allt land og sjóðnum er tryggt fjármagn til að fjármagna bæði gerð áætlunar um starfsendurhæfingu með aðkomu sérfræðinga og einnig nauðsynleg starfsendurhæfingarúrræði fyrir einstaklinga. Örorka hefur farið ört vaxandi hér á landi undanfarin tíu ár án þess að við því hafi verið brugðist á kerfisbundinn hátt af hálfu stjórnvalda. Þessi þróun hefur valdið auknum kostnaði bæði hjá stjórnvöldum, lífeyrissjóðum og í atvinnulífinu og síðast en ekki síst skerðir hún lífsgæði þeirra einstaklinga sem missa getu til þátttöku á vinnumarkaði. Flestir hafa verið sammála um mikilvægi og hagkvæmni þess að efla verulega Ávarp formanns Gylfi Arnbjörnsson formaður stjórnar Starfsendurhæfingarsjóðs „Starfsendur- hæfingarsjóður er að taka sín fyrstu skref og starf hans á eftir að eflast og þróast á næstu árum. Starfsemin er mikilvæg – ekki síst á tímum erfiðleika og kreppu þegar öllu máli skiptir að standa vörð um velferð og getu sérhvers einstaklings og ekki síst þeirra sem ekki hafa fulla starfs- getu.“

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.